Fleiri fréttir

Góð rödd gerir gæfumuninn

Nýleg rannsókn á röddum formanna íslensku stjórnmálaflokkanna sýnir að djúpar, yfirvegaðar raddir eru mest sannfærandi. Leiðtogarnir fimm eru afar misjafnir í þessu tilliti.

Clinton skammaði repúblikana

Repúblikanar reyna að hræða óákveðna kjósendur frá John Kerry og reyna að hræða stuðningsmenn hans frá því að kjósa, sagði Bill Clinton, fyrrum Bandaríkjaforseti, þegar hann kom fram á kosningafundi með Kerry í gær. Clinton hóf þar þátttöku sína í kosningabaráttunni eftir langa sjúkralegu.

Brotthvarf rætt í skugga ofbeldis

Blóðsúthellingar í flóttamannabúðum á Gaza og mesta öryggisgæsla í sögu Ísraelsþing voru í algleymingi þegar Ariel Sharon forsætisráðherra tók til máls í ísraelska þinginu og hvatti þingmenn til að styðja áætlun sína um brotthvarf ísraelskra hermanna og landtökumanna frá Gaza.

Vímuefnaneysla eykst í verkfalli

Kennaraverkfallið er að skapa hættulegt ástand í sumum hverfum borgarinnar að mati Láru Björnsdóttur, félagsmálastjóra Reykjavíkurborgar. Félagsmálaráð borgarinnar ákvað að fylgjast sérstaklega með ungmennum í borginni eftir að verkfallið hófst. Unglingafulltrúar sem hafa farið um hverfin sjá að vímuefnaneysla unglinga er að aukast að sögn Láru.

Miklu magni sprengiefna stolið

Nokkur hundruð tonn af sprengiefnum eru horfin úr vopnabúri Írakshers. Sprengiefnunum var stolið úr vopnabúri sem Alþjóða kjarnorkumálastofnunin hafði bent Bandaríkjaher sérstaklega á að hafa eftirlit með. Þjófar hafa ítrekað stolið sprengiefnum þar og hafa líkur verið leiddar að því að hluti efnisins hafi verið notaður í árásum vígamanna í Írak.

Þremenningarnir á leiðinni heim

Íslensku friðargæsluliðarnir sem særðust í sjálfsvígssprengjuárás í Kabúl í Afganistan á laugardag koma heim í sjúkraleyfi á föstudag. Tveir þeirra fara aftur til Kabúl eftir viku til tíu daga en óvíst er hvort Stefán Gunnarsson fari aftur út. Hann slasaðist mest af Íslendingunum í árásinni, fékk sprengjubrot í fót og neðri hluta líkamans. Afgönsk stúlka og bandarísk kona létust í árásinni.

Fjölgar í 30 ár enn

Kínverjar telja tæpan einn og hálfan milljarð eftir þrjátíu ár en eftir það fer þeim að fækka. Þannig hljómar ný mannfjöldaspá kínverskra stjórnvalda. "Landsmönnum fjölgar um tíu milljónir árlega og verða flestir 1.460 milljónir um miðjan fjórða áratuginn," sagði Zhang Weiqing, yfirmaður mannfjöldamála, í viðtali við kínverskt dagblað.

Kratar stærstir í sveitarstjórnum

Finnskir jafnaðarmenn bættu við sig fylgi í sveitarstjórnarkosningum á sunnudag. Þeir fengu 24 prósent atkvæða og eru öflugasti flokkurinn í finnskum sveitarstjórnum á nýjan leik. Næstur kemur Íhaldsflokkurinn sem fór úr 21 prósenti í 22 prósent. Miðflokkurinn tapaði fylgi og fékk 23 prósent atkvæða.

Milljónir þjást vegna mengunar

Tveir af hverjum fimm íbúum Nýju Delí eiga við lungnasjúkdóma að stríða af völdum loftmengunar í þessari fjórtán milljón manna höfuðborg Indlands.

Tóku ástina fram yfir munkslífið

Tveir búddamunkar sneru baki við skírlífsheiti sínu eftir að þeir urðu ástfangnir af unglingsstúlkum sem hafa þann starfa að selja bjór nærri musteri munkanna.

Fékk aðeins 95 prósent atkvæða

Zine El Abidine Ben Ali, forseti Túnis, var endurkjörinn sem forseti með 95 prósentum greiddra atkvæða að sögn embættismanna. Þetta er heldur lakari niðurstaða fyrir forsetann en í síðustu kosningum, sem fóru fram 1999, þá hlaut hann 99,4 prósent atkvæða samkvæmt opinberum tölum.

Misbeita ríkisvaldi vegna R-lista

Sveitarfélögin fá ekki auknar tekjur á meðan Sjálfstæðisflokkurinn er í ríkisstjórn og Reykjavíkurlistinn er við völd í Reykjavík. Þetta segir Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans og formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar.

Fyrrum forseti sýknaður

Rolandas Paksas, fyrrum forseti Litháens, var á mánudag sýknaður af ákærum um að hafa greint fjárhagslegum bakhjarli sínum frá ríkisleyndarmálum. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að engar sannanir væru fyrir því að forsetinn fyrrverandi hefði gert það sem hann var sakaður um.

Höfuðpaur Sínaí-árása fundinn

Höfuðpaur hryðjuverkamannanna sem sprengdu hótel á Sínaískaga og kostuðu 34 einstaklinga lífið var Palestínumaður sem lést í árásinni. Þetta er niðurstaða rannsóknar egypsku lögreglunnar.

Koma heim í lok vikunnar

Íslendingarnir þrír sem særðust í sjálfsmorðsárásinni í Kabúl á laugardag koma heim til Íslands í lok vikunnar. Þeir ætla að hugsa sinn gang og meta framhaldið, en halda líklega aftur til Afganistans eftir sjúkraleyfi.

Vilja álit Umboðsmanns barna

Reykjavíkurborg ætlar að fá Umboðsmann barna til að svara því hvort réttur kennara til að fara í verkfall, eða skylda sveitarfélaganna til að veita börnum fræðslu sé sterkari Foreldrar grunnskólabarna hafa bent á í verkfallinu að á Íslandi sé skólaskylda og réttur barna til menntunar skilgreindur í lögum.

Bólusetning virkar bara á 25%

Bólusetning gegn flensu virkar einungis á einn af hverjum fjórum sem láta bólusetja sig, samkvæmt nýrri viðamikilli rannsókn. Ítalskur læknir sem stóð að henni segir það ekki góða fjárfestingu fyrir fyrirtæki að bólusetja alla starfsmenn sína eða að stuðla að því að bólusetja stóran hluta þjóðar.

Fundur á morgun

Ríkissáttasemjari hefur boðað samningafund í kennaradeilunni á morgun, eftir fundahöld með forsætisráðherra í dag. Áður stóð ekki til að halda fund fyrr en eftir tíu daga. Lög á deiluna eru ekki í bígerð, og ólíklegt að gripið verði til þess að setja málið í gerðardóm. Sveitarfélögin segja að síðasta tilboð standi enn.

Fötluð börn fá gæslu

Rúmlega 60 fötluðum börnum í Reykjavík hefur verið boðið að nýta frístundarheimili Íþrótta- og tómstundaráðs í verkfalli kennara.

Aftur í Karphúsið án lausnar

"Menn koma fullkomlega óbundnir til fundarins," segir Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari sem boðað hefur samninganefndir kennara og sveitarfélaganna í Karphúsið eftir fund með forsætisráðherra.

Áhyggjur 10. bekkinga í verkfalli

Rannveig Elba Magnúsdóttir nemandi í tíunda bekk Háteigsskóla hefur miklar áhyggjur af áhrifum af verkfalli kennara á nám hennar.

Átta í verkfalli

Átta kennarar einkaskóla á höfuðborgarsvæðinu eru í verkfalli. Þar af eru sex kennarar af sextán í Ísaksskóla sem eru æviráðnir og á ábyrgð borgaryfirvalda, samkvæmt Eddu Huld Sigurðardóttur skólastjóra Ísaksskóla.

Hagar kaupa Skeljung

Hagar, sem reka Bónus og Hagkaup, hafa nú keypt Skeljung. Forstjóri Haga segir að neytendur njóti góðs af. Ekki stendur til að gera neinar breytingar á rekstrarfyrirkomulagi Skeljungs og verður fyrirtækið áfram rekið sem sjálfstætt hlutafélag.

Kaldaljós með 8 tilnefningar

Kvikmyndin Kaldaljós hlýtur átta tilnefningar til Eddunnar, íslensku kvikmyndaverðlaunanna. Karlar og konur eru nú í fyrsta sinn tilnefnd saman til leikaraverðlauna. Páll Steingrímsson fær heiðursverðlaun Eddunnar í ár, fyrstur íslenskra kvikmyndagerðarmanna.

Börn hringja meira sjálf

Börn eru í auknum mæli sjálf farin að tilkynna um ofbeldi og vanrækslu. Sjöfalt fleiri börn hringja í Neyðarlínuna vegna þessara mála nú en um síðustu áramót. Neyðarlínan, 112, hefur tekið á móti símtölum er varða barnavernd síðan rétt fyrir síðustu áramót, en í febrúar var þessi leið auglýst sérstaklega.

Þolendurnir þurfa aðstoð

Þolendur eineltis brotna saman og ná sér ekki nema með utanaðkomandi aðstoð hafi eineltið verið langt og viðvarandi. Rannsóknir sýna að í fyrstu hafa þolendur eineltis tilhneigingu til að leiða það hjá sér.

Eitt hús á hættusvæði

Stefanía Traustadóttir, bæjarstjóri í Ólafsfirði, segir húsið sem hýsir bæði heilsugæsluna og dvalarheimili bæjarins vera það eina sem er inni á hættusvæði samkvæmt nýju ofanflóðamati. Hún segir rétt að hafa í huga að líkurnar á flóði á húsin séu samt sem áður mjög litlar.

Afneitun mæðra algeng

Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segir almennt að þegar brotið er kynferðislega gegn börnum geti það oft valdið svo miklum sársauka hjá mæðrum barnanna að þær bregðist við með afneitun. Slíkt segir hann geta komið illa út gagnvart barninu sem sé skelfilegt en jafnframt segir hann að hægt sé að vinna með slíka hluti.

Tveir fyrir dóm vegna bankaráns

Tuttugu og eins árs maður hefur játað fyrir dómi að hafa framið vopnað bankarán í útibúi Búnaðarbanka Íslands á Vesturgötu í Reykjavík 17. nóvember í fyrra. Aðalmeðferð málsins var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Braut gegn fósturdóttur sinni

Maður var í Héraðsdómi Reykjaness dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að hafa haft samfarir og önnur kynferðismök við fósturdóttur sína. Hann var jafnframt sakfelldur fyrir að hafa káfað á vinkonu hennar og fyrir vörslu barnakláms.

Barna íslenskar lesbíur í Danmörku

Sambýliskonurnar Íris Dögg Jónsdóttir og Margrét Guðjónsdóttir neyddust til þess að fá tæknifrjóvgun í Danmörku á Írisi til að eignast langþráð barn. Einhleypar konur og lesbíur fá ekki tæknifrjóvgun á Íslandi en danskur hjúkrunarfræðingur nýtir glufu í þarlendri löggjöf til að greiða götu kvenna í þessari stöðu.

Eldur í Ósk KE

"Við vorum ný hættir að draga og vorum á heimleið þegar við sáum þá veifa til okkar," sagði Sverrir Þór Jónsson, á Brynhildi HF-83, þegar hann var á leið í land með Ósk KE-5 í togi eftir að kviknaði í bátnum um ellefu sjómílur norðvestur af Sandgerði.

Ráðherra svarar verkfræðinemum

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra þekktist í gær boð verkfræðinema við Háskóla Íslands um að heimsækja þá og kynna sér skólastarfið. Nemarnir skoruðu á ráðherra að mæta í opnu bréfi sem þeir rituðu síðasta föstudag.

Gögnin lágu fyrir

Viðeigandi gögn lágu fyrir þegar Kópavogsbær úthlutaði byggingarfélaginu Viðari ehf. byggingarrétt fyrir fjölbýlishús við Ásakór í Kópavogi í febrúar síðastliðnum, að mati Gunnars I. Birgissonar, formanns bæjarráðs.

Frestur sorpstöðvar framlengdur

Sveitarstjórn Ölfuss hefur veitt stjórn Sorpstöðvar Suðurlands frest fram á miðvikudag í næstu viku til að ná samkomulagi um fyrirkomulag urðunar sorps, að sögn Einars Njálssonar sveitarstjóra Árborgar.

Sölvi ráðinn skólastjóri

Sölvi Sveinsson, skólameistari Fjölbrautaskólans við Ármúla, hefur verið ráðinn í starf skólastjóra Verslunarskóla Íslands. Núverandi skólastjóri, Þorvarður Elíasson, mun láta af störfum í ágúst á næsta ári.

Langflestir eru sómakrakkar

"Það hefur verið heldur dauft í verkfallinu," segir Þorleifur G. Sigurðsson, umsjónarmaður í Austurbæjarskóla þar sem hann hefur starfað í tólf ár, þegar hann er spurður að því hvað sé að frétta.

Aldraðir fái boðlega þjónustu

Framlag hins opinbera til tannlæknaþjónustu eldri borgara þarf að hækka, sagði Heimir Sindrason formaður Tannlæknafélags Íslands á málþingi sem félagið hélt um helgina.

Einn Íslendinganna þungt haldinn

Einn íslensku friðargæsluliðanna sem lentu í sjálfsmorðsárás í Kabúl í Afganistan í gær er þungt haldinn á sjúkrahúsi, samkvæmt því sem talsmaður friðargæsluliðs NATO í landinu segir. Samkvæmt frétt Reuters voru það íslenskir hermenn sem urðu fyrir árásinni.

49 lík írakskra hermanna finnast

Lík fjörutíu og níu írakskra hermanna hafa fundist skammt norðaustur af Bagdad að sögn yfirvalda í Írak. Þrjátíu og sjö fundust í gær og tólf við viðbótar í morgun. Svo virðist sem skæruliðar hafi setið fyrir hermönnunum þar sem þeir voru á leið heim í leyfi.

Skjálftavirkni í Mýrdalsjökli

Nokkur skjálftavirkni hefur verið í Mýrdalsjökli í morgun, sá öflugasti 2,8 á Richter. Þá hefur jörð aðeins skolfið á Suðurlandi og á Hengilssvæðinu í nótt og í morgun.

Erill hjá lögreglu á Ísafirði

Erill var hjá lögreglunni á Ísafirði í gærkvöldi og í nótt, einkum í tengslum við dansleik sem einstaklingar héldu á Suðureyri. Tilkynnt var um eina líkamsárás en kæra hefur ekki borist.

Kosningar í Litháen í dag

Kosið er til þings í Litháen í dag og er grannt fylgst með kosningunum, bæði í Rússlandi og innan Evrópusambandsins. Efnahagur Litháens vex nú hraðar en efnahagskerfi annarra Evrópusambandslanda.

Bandarískur embættismaður drepinn

Bandarískur embættismaður var drepinn í sprengjuárás í Írak í morgun. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, greindi frá þessu í tilkynningu fyrir stundu.

Sjá næstu 50 fréttir