Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stjórnvöld fordæma árásina Íslensk stjórnvöld fordæma harðlega sprengjuárásina í Kabúl í gær þar sem tveir íslenskir friðargæsluliðar særðust og einn skrámaðist. Þá fordæma stjórnvöld yfirlýsingu talíbana í kjölfar árásarinnar, í garð erlendra friðargæslusveita í Afganistan sem eru í landinu í umboði Sameinuðu þjóðanna við endurreisnarstarf. 24.10.2004 00:01
Þúsundir á vergangi Þúsundir þreyttra og óttasleginna íbúa norðurhluta Tókýó hafa nú hafst við í tvær nætur í skýlum, bílum eða á bersvæði frá því að mannskæðasti jarðskjálftinn þar í landi í tæpan áratug reið yfir. 24.10.2004 00:01
Holtasóley er þjóðarblóm Sama Sömum brá í brún þegar Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra tilkynnti heimsbyggðinni á föstudag að Íslendingar hefðu valið sér holtasóley sem þjóðarblóm. Holtasóleyin hefur nefnilega verið þjóðarblóm í Lapplandi um árabil enda afar algeng þar í landi. 24.10.2004 00:01
Búlgarar særðust í sprengingu Tveir búlgarskir hermenn særðust alvarlega þegar bílsprengja sprakk í Kerbala í suðurhluta Íraks í dag. Þetta er haft eftir talsmanni varnarmálaráðuneytis Búlgaríu. 24.10.2004 00:01
Ríkisstjórn mynduð sem fyrst Albanskir stjórnmálaflokkar eru sigurvegarar kosninganna í Kósóvó. Við því var reyndar búist þar sem um níutíu prósent íbúa héraðsins eru af albönsku bergi brotin. Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna í Kósóvó hvöttu í dag leiðtoga flokkanna til að mynda nýja ríkisstjórn sem fyrst. 24.10.2004 00:01
Blaðamönnunum bráðum sleppt Tveimur frönskum blaðamönnum sem haldið hefur verið í gíslingu í Írak á þriðja mánuð verður sleppt áður en langt um líður, að sögn talsmanns íraks hóps. Frönsk útvarpsstöð tók við hann viðtal um síma frá Bagdad. Franska utanríkisráðuneytið hefur neitað að tjá sig um þessi nýjustu tíðindi. 24.10.2004 00:01
Ferðin ekki verkfallsbrot Skólastjóri Ingunnarskóla segir fyrirhugaða námsferð kennara til Bandaríkjanna á föstudag eiga eftir að gagnast nemendum vel. Formaður Kennarasambandsins segir þegar búið að greiða fyrir þá vinnu sem þarna fari fram og vinnan því ekki verkfallsbrot. 24.10.2004 00:01
Eftirvænting á Hvammstanga Íbúar Hvammstanga bíða spenntir eftir að berja útsendingar Skjás eins augum. 24.10.2004 00:01
Stefán áfram á sjúkrahúsi Stefán Gunnarsson, friðargæsluliði í Afganistan, fékk sprengjubrot í fót og neðri hluta líkamans við sjálfsmorðsárásina í Kabúl í Afganistan á laugardag. Arnór Sigurjónsson, skrifstofustjóri Íslensku friðargæslunnar, segir Stefán verða áfram á sjúkrahúsi. Ellefu ára afgönsk stúlka og 23 ára bandarísk kona létust í sjálfsmorðsárásinni. 24.10.2004 00:01
Varð alvarleikinn ljós í fréttum Eyrún Björnsdóttir, eiginkona Stefáns Gunnarssonar, íslenska friðargæsluliðans sem slasaðist í Kabúl á laugardag, segist hafa það þokkalegt eftir að hún náði í Stefán og gat talað við hann. Sprengjuárásin var á laugardagsmorgun en hún náði ekki tali af honum fyrr en í fyrrinótt. 24.10.2004 00:01
Milljónatjón á Neskaupstað Harður árekstur varð við bryggjuna á Neskaupstað laust fyrir klukkan hálf níu í gærmorgun, þegar skip Samherja, Baldvin Þorsteinsson EA, keyrði á bryggjuna með þeim afleiðingum að hún stórskemmdist. 24.10.2004 00:01
Fíkniefnaneytandi ók undir áhrifum Ökumaður var stöðvaður á Dalvík í fyrrinótt, grunaður um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna 24.10.2004 00:01
Rann út á gatnamótin Ekki urðu meiðsli á fólki við árekstur tveggja bíla á mótum Dalsbrautar og Borgarbrautar á Akureyri í gærdag. 24.10.2004 00:01
Undir áhrifum daginn eftir Ökumaður var tekinn í Hafnarfirði um klukkan tvö í gær grunaður um ölvun við akstur 24.10.2004 00:01
Friðargæslustarfið heldur áfram Íslensk stjórnvöld fordæma harðlega sprengjuárásina í Kabúl í Afganistan í gær og yfirlýsingu Talíbana í kjölfar hennar. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að atburðirnir í Kabúl hafi engin áhrif á starf Íslensku friðargæslunnar þar. Ögmundur Jónasson alþingismaður segir að stjórnvöld hafi leynt og ljóst verið að koma upp vísi að íslenskum her. 24.10.2004 00:01
Gráir fyrir járnum Íslensku friðargæsluliðarnir í Kabúl eru gráir fyrir járnum þegar þeir fara út af herbækisstöðinni við flugvöllinn. Þá eru þeir með riffla og skammbyssur og klæddir skotheldum vestum. Líðan friðargæsluliðana sem særðust í sjálfsmorðsárás í gær er sögð góð. 24.10.2004 00:01
49 írakskir hermenn aflífaðir Lík fjörutíu og níu írakskra hermanna hafa fundist í Írak um helgina. Talið er að skæruliðar hafi ráðist á þá þar sem þeir voru á leið heim í frí, og tekið þá af lífi. 24.10.2004 00:01
Enn frekari einkarekstur Þorvaldur Gylfason, prófessor við Háskóla Íslands, segir nauðsynlegt að koma heilbrigðisþjónustunni út úr þeim ógöngum sem hún er í með því að leyfa enn frekari einkarekstur. Þetta kom fram á málþingi sem Samfylkingin stóð fyrir þar sem rætt var um einkarekstur í íslensku heilbrigðiskerfi. 24.10.2004 00:01
Ekkert annað en vísir að her Það er alltaf slæmt að heyra af mannfalli og slysförum hvort sem það eru Íslendingar eða útlendingar sem eiga í hlut," segir Stefán Pálsson, formaður félags herstöðvaandstæðinga, um sjálfsmorðsárásina í Kabúl þar sem þrír Íslendingar særðust. 24.10.2004 00:01
Karzai forseti Hamid Karzai, leiðtogi bráðabirgðastjórnar Afganistan, verður að öllum líkindum næsti forseti Afganistans. Verður hann þar með sá fyrsti sem kosinn er í landinu með lýðræðislegum hætti. 24.10.2004 00:01
51 hermaður drepinn Lík 51 írasks hermanns fundust á afskekktum vegi í austurhluta Íraks í gær, skammt frá írönsku landamærunum 24.10.2004 00:01
21 fórst í Japan Að minnsta kosti 21 fórst og um tvö þúsund manns slösuðust í mikilli jarðskjálftahrinu í Japan sem hófst á laugardagskvöld. Í gær var talið að von væri á öðrum stórum skjálfta. 24.10.2004 00:01
Fær stuðning Washington Post Hið áhrifaríka dagblað, Washington Post, hefur lýst yfir stuðningi á demókratanum John Kerry í framboði hans til forseta Bandaríkjanna 24.10.2004 00:01
Flutti 12 fanga í laumi frá Írak Bandaríska leyniþjónustan, CIA, hefur flutt tólf fanga í laumi út úr Írak á síðustu sex mánuðum til yfirheyrslna. 24.10.2004 00:01
Vændishringir upprættir Lögreglan í Grikklandi hefur handtekið sex manneskjur úr tveimur vændishringjum fyrir mansal. Fólkið er sakað um að hafa smyglað stúlkum frá Litháen og Rússlandi til landsins og neytt þær til að stunda vændi. 24.10.2004 00:01
Brasilískur sigurvegari Pricilla de Almeda, læknanemi frá Brasilíu, var kjörin ungfrú jörð í fegurðarsamkeppni sem haldin var á Filippseyjum um helgina. 24.10.2004 00:01
Bush og Kerry breyta engu Bandarískir hagfræðingar í einkageiranum telja að engu máli skipti fyrir bandarískan efnahag hvort George W. Bush eða John Kerry verði kjörinn forseti í landinu. 24.10.2004 00:01
Heilsugæsla sprengd upp Öflug sprengjuárás var gerð á heilsugæslustöð í Bagdad, höfuðborg Íraks. Að sögn talsmanns Bandaríkjahers særðist enginn í árásinni 24.10.2004 00:01
Fyrsti djöfladýrkandinn 24 ára gamall djöfladýrkandi hefur verið skráður í breska sjóherinn. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkur dýrkandi fær þar inngöngu 24.10.2004 00:01
Útlit ekki aðalmálið hjá leiðtogum Það er útbreiddur misskilningur að útlit og útgeislun stjórnmálaleiðtoga skipti öllu máli þegar kemur að kjörfylgi. Rannsóknir sýna að það eru málefnin og stjórnmálaflokkurinn sem ræður því hvað fólk kýs. 24.10.2004 00:01
Lögreglumaður skotinn til bana Einn lögreglumaður var skotinn til bana af skæruliðum á Haítí, sem eru hliðhollir forsetanum fyrrverandi Jean-Bertrand Aristide. 24.10.2004 00:01
Öryggisráðið fundaði á Íslandi Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fundaði í Odda, byggingu félagsvísindadeildar Háskóla Íslands, um málefni Ísraels og Palestínu í dag. Illa gekk að ná niðurstöðu sem leysir deiluna. 24.10.2004 00:01
Samkomulag þarf um gerðardóm Kennarar útiloka ekki gerðardóm en formaður launanefndar sveitarfélaganna telur þá leið ólíklega til árangurs. Forsætisráðherra hefur boðað deilendur til fundar og kennarar funda sjálfir. Lög á deiluna eru talin ólíkleg. 24.10.2004 00:01
Nafni breytt með trega Félag dagabátaeigenda hefur með trega verið knúið til að breyta nafni sínu í <em>Félag kvótabátaeigenda</em> að því er fram kemur í ályktunum félagsins á aðalfundi sem haldinn var í Borgarnesi á laugardag. 24.10.2004 00:01
Hljóðkútur inn um framrúðu Hljóðkútur kastaðist af vagni vörubifreiðar og inn um glugga fólksbíls skammt norður af Borgarnesi um miðjan dag í gær. 24.10.2004 00:01
Erill hjá Keflavíkurlögreglu Lögreglan í Keflavík handtók fyrir stundu karlmann í bíl í bænum með ætluð fíkniefni og eru yfirheyrslur að hefjast yfir honum. Talið er að hann hafi verið með eitt gramm af amfetamíni í fórum sínum og einhverja sveppi. 23.10.2004 00:01
13 hið minnnsta látnir Níu fórust þegar öflug bílsprengja sprakk í morgun við bandarísk-írakska herstöð í vesturhluta Íraks. Ekki færri en fimmtíu særðust í sprengingunni og segja talsmenn sjúkrahússins á staðnum ástæðu til að ætla að tala fallinna muni hækka. Auk þess féllu fjórir í sjálfsmorðsárás á eftirlitsstöð norður af Bagdad fyrir stundu. 23.10.2004 00:01
Rétt að innheimta skólagjöld Ungir Sjálfstæðismenn segja rétt að veita ríkisháskólum rétt til innheimtu skólagjalda, enda verði þau lánshæf. Þetta kemur fram í ályktun stjórnar Sambands ungra sjálfstæðismanna. 23.10.2004 00:01
Kosningar í Kósóvó í dag Kosningar verða í dag haldnar í Kósóvó í annað skipti frá því að Sameinuðu þjóðirnar skilgreindu héraðið sem sérstakt verndarsvæði. 1,4 milljónir kjósenda eiga rétt á að greiða atkvæði í kosningunum og er meirihluti þeirra af albönsku bergi brotinn. 23.10.2004 00:01
Eldur í fjölbýlishúsi í Kópavogi Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað út laust fyrir klukkan 10 í morgun vegna elds í fjölbýlishúsi við Þverbrekku 4 í Kópavogi. Minni hætta reyndist þó á ferðum en virtist í fyrstu, því reyk lagði upp úr þaki hússins. 23.10.2004 00:01
Öflugir jarðskjálftar í Japan Einn fórst í öflugum jarðskálftum sem skóku Japan í morgun. Fyrsti skjálftinn reið yfir Tókýó í morgun og reyndist hann 6,8 að styrkleika. Hann átti upptök sín um 250 kílómetra norður af Tókýó. Engar skemmdir munu hafa orðið í fyrsta skjálftanum, enda eru byggingar í Japan reistar með hliðsjón af því að jarðskjálftar eru mjög tíðir. 23.10.2004 00:01
Eldri borgarar afskiptir? Eru eldri borgarar afskiptir í tannlæknaþjónustu? spyr Tannlæknafélag Íslands en félagið stendur fyrir málþingi um það í dag. Í tilkynningu frá félaginu segir að fjárframlag ríkisins til tannlækninga taki ekki mið af þeirri þróun að eldri borgurum með eigin tennur fjölgi sífellt. 23.10.2004 00:01
Fyrsti heiðursdoktorinn Brautskráningar verða bæði hjá Háskóla Íslands og Kennaraháskóla Íslands í dag. Meðal annars útskrifast fyrsti meistaraneminn úr heilsuhagfræði og tilkynnt verður um kjör fyrsta heiðusdoktorsins í viðskipta- og hagfræðideild, sem og kjöri heiðursdoktors í heimspekideild. 23.10.2004 00:01
Bush með 2% forskot George Bush er með tveggja prósentustiga forskot á John Kerry samkvæmt nýjustu könnun Reuters og Zogby sem birt var á tólfta tímanum. Þetta er annar dagurinn í röð sem Bush mælist með forskot hjá Reuters og Zogby en hann nýtur fylgis 47 prósenta aðspurðra og Kerry 45 prósenta. 23.10.2004 00:01
Eldur í fjölbýlishúsi Allt tiltækt lið slökkviliðs var kallað út vegna bruna í fjölbýlishúsi í Þverbrekku í Kópavogi skömmu fyrir klukkan tíu í morgun. Eldur kom upp í ruslageymslu hússins og reyndist auðvelt að ráða niðurlögum hans. 23.10.2004 00:01