Erlent

Milljónir þjást vegna mengunar

Tveir af hverjum fimm íbúum Nýju Delí eiga við lungnasjúkdóma að stríða af völdum loftmengunar í þessari fjórtán milljón manna höfuðborg Indlands. Ný rannsókn á skaðsemi loftmengunar leiðir í ljós hversu alvarlegt ástandið er, auk lungnasjúkdóma hefur mengunin skaðað lifur, blóð og ónæmiskerfi íbúanna. Forystumenn Mengunarráðs segja að brugðist verði við þessu með því að lækka leyfileg mörk útblásturs frá verksmiðjum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×