Erlent

Bloggari fangelsaður

Yfirréttur í Kína staðfesti í gær dóm undirréttar yfir manni sem dæmdur hafði verið í þriggja ára fangelsi fyrir að grafa undan kínverskum yfirvöldum með því að halda úti pólitískri vefsíðu. Du Daobin hafði birt 26 greinar á vefsíðu sinni sem yfirvöld sögðu að væri undirróður gegn yfirvöldum. Þriggja ára fangelsisdómur undirréttar þótti þó óvenju mildur því aðrir höfðu hlotið allt að 11 ára fangelsi fyrir sambærilega "glæpi" og Du var sakaður um.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×