Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lögreglan þegir áfram Lögreglan þegir áfram þunnu hljóði um hvarf indónesískrar þriggja barna móður sem saknað hefur verið í níu daga. Hún segir að fréttamenn verði að geta í eyðurnar um framgang mála. Niðurstöðu rannsóknar á blóði sem fannst í íbúð manns sem grunaður er um aðild að hvarfi konunnar er enn beðið. <font size="2"></font> 13.7.2004 00:01
Uppsagnir hjá Eimskipum Uppsagnir eru fyrirhugaðar hjá Eimskipafélagi Íslands vegna skipulagsbreytinga sem verða kynntar samhliða hálfsársuppgjöri félagsins í lok mánaðarins. Baldur Guðnason, forstjóri félagsins, segir að með breytingunum sé verið að bregðast við breyttu starfsumhverfi. 13.7.2004 00:01
Falleinkunn fjárlaganna Ráðuneyti og tilteknar ríkisstofnanir hafa ár eftir ár farið langt fram úr fjárheimildum sem gefnar voru í fjárlögum. Ríkisendurskoðun segir þessa framúrkeyrslu óásættanlega og gefur framkvæmd fjárlaganna falleinkunn. 13.7.2004 00:01
Dregin út úr Niagarafossum Ung kona var bókstaflega dregin út úr Niagarafossum um helgina. Ekki er vitað hvernig konan lenti í fossunum en hún náði að hanga í kletti við fossana. 13.7.2004 00:01
Skiptar skoðanir lögspekinga Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður telur að nýtt fjölmiðlafrumvarp sé ótækt og lýsi valdníðslu ríkisstjórnarinnar. Herdís Þorgeirsdóttir þjóðréttarfræðingur segir að stjórnarskráin banni forseta Íslands að staðfesta ný fjölmiðlalög en Jón Sveinsson hæstaréttarlögmaður telur að Alþingi sé heimilt að setja ný fjölmiðlalög. 13.7.2004 00:01
Hannes gerir mynd um Davíð Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor vinnur að heimildarmynd um Davíð Oddsson forsætisráðherra. Hann var staddur í Hvíta húsinu í þeim erindagjörðum á dögunum þegar Davíð hitti George Bush Bandaríkjaforseta. 13.7.2004 00:01
Grunaður morðingi í kvikmynd Maðurinn sem er í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa orðið valdur að hvarfi indónesísku konunnar Sri Ramahwati leikur í nýrri íslenskri kvikmynd sem verður frumsýnd í næsta mánuði. Hann leikur forsætisráðherra Íslands á hernámsárunum. 13.7.2004 00:01
10 ára börn í herþjálfunarbúðum Tíu ára palestínskum börnum er kennt að drepa og sprengja í sérstökum herþjálfunarbúðum á Gasasvæðinu. Myndir frá þessum illræmdu búðum komu í fyrsta sinn fyrir almenningssjónir í dag á sjónvarpsstöðinni Sky. 13.7.2004 00:01
Siðblindir leggja í stæði fatlaðra Sigurður Björnsson, hjá samtökunum Sjálfsbjörg, gagnrýnir harkalega þá sem leggja í bílastæði sem ætluð eru fötluðum ökumönnum. Árni Johnsen, fyrrum þingmaður og nýskipaður stjórnarmaður hjá Rafmagnsveitu ríkisins, var gripinn glóðvolgur á dögunum þar sem hann sótti jeppabifreið sína á bílastæði eftir sólarhringsdvöl. 13.7.2004 00:01
Forstöðumanni verði vikið frá Hjón sem reka meðferðarheimilið Torfastaði krefjast þess að félagsmálaráðherra víki forstöðumanni Barnaverndarstofu úr starfi vegna aðkomu hans að meintu kynferðisbrotamáli gagnvart stúlku sem var á heimilinu. Ríkissaksóknari hefur vísað frá kæru á hendur syni hjónanna sem var sakaður um brotin. 13.7.2004 00:01
Helga hjartaþega heilsast vel Helgi Einar Harðarson, sem gekkst undir hjarta- og nýrnaígræðslu í Svíþjóð í síðasta mánuði, segist svo hress að hann langi mest til að hlaupa um allt. Hann þykir hafa náð sér ótrúlega vel eftir aðgerðina. 13.7.2004 00:01
Útihátíð eða ekki útihátíð "Ég man ekki betur en þeir lögreglumenn sem komu hingað aukalega í fyrra hafi kvartað í fréttablöðin okkar hvað það væri nú rólegt og lítið að gera," segir Þór Vilhjálmsson, formaður stjórnar héraðssambands Íþróttabandalags Vestmannaeyja, ÍBV. 13.7.2004 00:01
Vantar tæki, tól og peninga Tækjakostnaður kemur í veg fyrir að margar stofnanir hér á landi geti með góðu móti sinnt rannsóknarskyldum er á þær eru lagðar og verða að gera sér að góðu að senda gögn og sýni ýmiss konar utan til frekari rannsókna en slíkt getur verið afar tímafrekt. 13.7.2004 00:01
Eins og skólatöskur í framan Allir ljósabekkir verða horfnir af sundstöðum höfuðborgarinnar frá og með áramótum vegna hættunnar sem fylgir mikilli notkun þeirra. Aðstoðarlandlæknir segir öfugsnúið að bjóða upp á heilsuspillandi ljósabekki á líkamsræktarstöðvum og bendir á að krakkar sem stundi þá geti litið út eins og skólatöskur í framan síðar á ævinni. 13.7.2004 00:01
Leyfa eftirlíkingar alnæmislyfja Jacques Chirac, forseti Frakklands, kallar það jafngildi fjárkúgunar að Bandaríkjamenn skuli þrýsta á fátækar þjóðir að gefa eftir rétt sinn til að framleiða ódýrar eftirlíkingar af alnæmislyfjum í skiptum fyrir tilslakanir í viðskiptum. 13.7.2004 00:01
Frumvarpið verði dregið til baka Samhljómur var á fundi Framsóknarfélags Reykjavíkur suður um að ríkisstjórnin ætti að draga nýja fjölmiðlafrumvarpið til baka og leyfa þjóðinni að segja álit sitt um frumvarpið er forseti synjaði staðfestingar. 13.7.2004 00:01
Veirur orðnar fleiri en í fyrra Þótt árið 2004 sé rétt hálfnað eru tölvuveirur þegar orðnar fleiri en allt árið 2003. Sasser kallaðist sá síðasti og gerði stormandi ólukku víða um heim, einn af mörgum ormum með mörgum afbrigðum, en slíkir ormar virðast einmitt vera í sérstakri tísku nú um stundir, ef þannig má að orði komast.Þetta má lesa á vef Tæknivals, <strong><a href="http://www.taeknival.is/" target="_blank">taeknival.is.</a></strong> 13.7.2004 00:01
Mikið blóð bendir til átaka Mikið blóð var í íbúð mannsins sem nú situr í gæsluvarðhaldi, grunaður um að eiga þátt í hvarfi á fyrrum sambýliskonu sinni og barnsmóður. Magn blóðsins bendir til að átök hafi átt sér stað. Niðurstöður úr DNA rannsókn er væntanlegar eftir helgi og munu þær segja til um hvort blóðið sé úr konunni sem enn er saknað. 12.7.2004 00:01
Áttræður flækti tugi í svikamyllu Forstjóri á eftirlaunum og fyrrverandi varaþingmaður Alþýðuflokksins hefur fengið fjölda þekktra Íslendinga til að leggja sér til stórfé í því skyni að losa út arf sem hann sagði að sér hefði tæmst í Þýskalandi. Forstjórinn, sem er rúmlega áttræður, lofaði þeim sem lögðu fé að mörkum að þeir myndu fá allt að áttfaldan hagnað. 12.7.2004 00:01
Peres og Sharon vinna saman Shimon Peres, einn leiðtoga Verkamannaflokks Ísraels, hefur fallist á að vinna með Ariel Sharon forsætisráðherra að brotthvarfi frá Gasa-svæðinu. Stjórnmálaleiðtogarnir ræddu einnig hugsanlega myndun þjóðstjórnar. 12.7.2004 00:01
Tvö innbrot í nótt Brotist var inn í sendiferðabíl í vesturbæ Reykjavíkur í nótt og stolið úr honum tölvu og nokkrum tölvuskjám. Þá var tölvu og tölvuskjá einnig stolið úr báti í Reykjavíkurhöfn. 12.7.2004 00:01
Ferðamenn týndust í Ásbyrgi Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá Húsavík, Kópaskeri og Raufarhöfn voru í gærkvöld kallaðar út til að leita að tveimur erlendum ferðamönnum sem voru villtir í Ásbyrgi við Jökulsárgljúfur. Skömmu eftir að leit hófst komu þeir sjálfir fram, heilir á húfi. 12.7.2004 00:01
Óvissa um örlög gíslsins Óvissa ríkir um örlög filipseysk gísls sem mannræningjar í Írak hafa hótað að drepa. Mannræningjarnir vilja að Filipseyingar kalli hermenn sína til baka þegar í stað en yfirvöld hafa hafnað því og segja þá koma heim að loknum verkefnum sínum í ágúst. 12.7.2004 00:01
Fjölgun erlendra lækna í Danmörku Fjöldi erlendra lækna sem starfa í Danmörku hefur þrefaldast á síðustu árum. Vegna mikils skorts á heilbrigðisstarfsfólki í landinu ráðgera stjórnvöld nú að flytja inn starfsfólk frá Austur- Evrópu. 12.7.2004 00:01
Nikkei hækkar vegna kosninga Japanska hlutabréfavísitalan, Nikkei, hækkar í dag um 1,39 prósent, eftir að ljóst varð að samsteypustjórn Koizumis forsætisráðherra héldi meirihluta í efri deild japanska þingsins. Endanleg úrslit í kosningunum hafa ekki verið birt en samkvæmt spám tapar flokkur Koizumis fylgi og hlýtur 49 af 121 þingsæti í efri deildinni. 12.7.2004 00:01
Stálmúr í kringum þinghúsið Breska innanríkisleyniþjónustan, MI 5, vill að róttækar breytingar verði gerðar á fyrirkomulagi öryggismála í og við breska þingið til að koma í veg fyrir hryðjuverk. Meðal þess sem sérfræðingar MI 5 eru sagðir ætla að leggja til er stálmúr í kringum Westminster sem er þinghús þeirra Breta. 12.7.2004 00:01
Möguleg frestun kosninga Bandarísk stjórnvöld hafa undirbúið neyðaráætlun til að fresta fyrirhuguðum forsetakosningum í nóvember ef hryðjuverk verða framin í Bandaríkjunum skömmu fyrir kjördag. Þetta kemur fram í vikuritinu Newsweek í dag. 12.7.2004 00:01
Friðargæsluliðar særðust í Kósóvó Fjórir finnskir friðargæsluliðar særðust lítillega í árás byssumanna í Kósóvó um helgina. Friðargæsluliðarnir voru í eftirlitsferð skammt frá þorpinu Terbovc þegar skotið var á þá. Sex Albanir voru yfirheyrðir vegna málsins en þeim hefur verið sleppt. 12.7.2004 00:01
Vísitala neysluverðs lækkaði Vísitala neysluverðs lækkaði um tæplega hálft prósent frá því í júní. Helsta ástæða lækkunarinnnar er að sumarútsölur hófust fyrir skemmstu og hefur verð á fötum og skóm lækkað um 7,8%. Þá lækkaði verð á bensíni og olíu um 2,3%. 12.7.2004 00:01
Rafgmagnslaust í Aþenu Rafmagn virðist vera farið af stærstum hluta Aþenu, höfuðborgar Grikklands. Starfsmaður rafmagnsveitunnar þar í borg segir fólk hafa verið að hringja hvaðanæva frá í borginni til að tilkynna ragmagnsleysi en ekki er vitað hvað veldur. 12.7.2004 00:01
Ný lög auka vöruábyrgð verslana Verslanir eru ábyrgar fyrir því að vörur sem þær selja fullnægi öryggiskröfum samkvæmt lögum sem nýlega tóku gildi. Í lögunum segir jafnframt að Löggildingarstofan geti stöðvað sölu á vörum sem kunna að hafa hættu í för með sér. 12.7.2004 00:01
Blóðugasti dagurinn til þessa Gærdagurinn var sá blóðugasti það sem af er San Fermin hátíðinni í Pamplona þetta árið. Átta einstaklingar fengu að kenna á hornum nautanna sem þeir reyndu að hlaupa á undan og í það minnsta tíu til viðbótar meiddust með einum eða öðrum hætti. 12.7.2004 00:01
Frakkar og Írakar taka upp þráðinn Frakkar hafa tekið upp stjórnmálasamband við Íraka að nýju en því var slitið eftir innrás Íraka í Kúveit árið 1990. Í yfirlýsingu frá franska utanríkisráðuneytinu nú fyrir stundu segir að stefnt sé að því að stjórnmálasamskiptin muni koma báðum ríkjum til góða. 12.7.2004 00:01
Blóðsýni tekin úr stigangi Blóðsýni voru tekin úr stiga í sameign í húsinu í Stórholti þar sem lögregla hefur rannsakað hvarf indónesískar konu undanfarna daga. Ekki er útilokað að lýst verði eftir henni síðar í vikunni en þá er búist við niðurstöðum DNA-rannsókna frá Noregi. 12.7.2004 00:01
Orkuveitan kaupir hverfla Samningur um kaup á tveimur 40 megavatta hverflum og öðrum búnaði fyrir Hellisheiðarvirkjun var undirritaður hjá Orkuveitu Reykjavíkur í morgun. Samningurinn er gerður við japanska fyrirtækið Mitsubishi og þýska fyrirtækið Balce Durr um tvær vélasamstæður sem eiga að hefja framleiðslu eftir tvö ár. 12.7.2004 00:01
Getur ekki sett ný lög um leið Sigurður Líndal, fyrrverandi lagaprófessor, telur að Alþingi geti ekki sett ný fjölmiðlalög um leið og fyrri lög eru felld úr gildi. Þar með gangi Alþingi lengra en þjóðin og brjóti stjórnarskrána. 12.7.2004 00:01
Undrast ekki fylgi Framsóknar Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins og forsætisráðherra, undrast ekki slæma útkomu flokksins í skoðanakönnunum því hann sé á villigötum í fjölmiðlamálinu. Flokkurinn eigi að sjá til þess að fjölmiðlalögin verði felld úr gildi og að vinna við nýtt fjölmiðlafrumvarp eigi að hefjast að nýju í haust. 12.7.2004 00:01
Óttast nýtt vígbúnaðarkapphlaup Pakistönsk stjórnvöld hafa áhyggjur af auknum útgjöldum Indverja til varnarmála og óttast að nýtt vígbúnaðarkapphlaup kunni að hefjast á milli þessara nágrannaríkja sem hafa átt í stöðugum deilum um áratugaskeið. 12.7.2004 00:01
Klerkar óttast hörð áfengislög Króatískir klerkar óttast að ný lög gegn ölvunarakstri eigi eftir að koma í bakið á þeim. Stjórnvöld hafa brugðist við fjölgun banaslysa í umferðinni með því að setja lög sem kveða á um að ekkert áfengi megi finnast í blóði ökumanna. Klerkarnir óttast að þetta komi sér illa fyrir þá vegna þess að hluti af messuhaldi sé að drekka messuvín. 12.7.2004 00:01
Milljónir flýja heimili sín Á þriðja hundrað manns hafa látið lífið og milljónir neyðst til að flýja heimili sín vegna flóða sem hafa lagt stór landsvæði í Indlandi, Bangladess og Nepal undir vatn. Þrjár milljónir íbúa Bangladess hafa ýmist neyðst til að flýja heimili sín eða eru innilokaðir á þeim. Tvær milljónir Indverja hafast við í tjöldum. 12.7.2004 00:01
Esso hækkar bensínverð Esso hækkaði verð á 95 oktana eldsneyti rétt fyrir hádegi í dag. Verðið hækkaði um tvær krónur lítrinn og kostar nú 106,10 krónur en kostaði áður 104,10. Verð hjá Shell er enn óbreytt, 104,10 krónur líterinn, og sömuleiðis er algengasta verðið hjá Olís 104,10. 12.7.2004 00:01
Japanskir tökumenn á Jökulsárlóni Starfsmenn frá japönsku kvikmyndafyrirtæki voru við myndatöku á á Jökulsárlóni um helgina. Kvikmyndin sem tekin var verður sýnd á heimssýningunni í Japan á næsta ári og verður hún á tjaldi sem er 50 metrar á breidd og 10 metrar á hæð. 12.7.2004 00:01
Á móti dauðarefsingu Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins hvetja bráðabirgðaríkisstjórn Íraks til að innleiða ekki dauðarefsingu á ný. Þetta kemur fram í drögum að yfirlýsingu sem Reuters-fréttastofan hefur undir höndum en ríkisstjórn Íraks hefur hugleitt að innleiða dauðarefsingu. 12.7.2004 00:01
Framsóknarflokkurinn fundar Þingflokksfundur Framsóknarflokksins hófst klukkan hálf tvö. Á fundinum er vafalítið rædd staða mála eftir slæma útkomu flokksins í skoðanakönnun Fréttablaðsins í gær þar sem flokkurinn mældist með aðeins 7,5% fylgi. 12.7.2004 00:01
Hjálpaði við hengingu konu sinnar Íranskur eiginmaður rauf sáttmála sem hann hafði gert við konu sína þess efnis að þau myndu svipta hvort annað lífi vegna sektarkenndar yfir því að hafa stundað kynlíf fyrir giftingu. Hjónin höfðu verið gift í aðeins tvo daga þegar þau gerðu með sér sáttmála um að drepa hvort annað samtímis. 12.7.2004 00:01
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent