Fjölgun erlendra lækna í Danmörku 12. júlí 2004 00:01
Fjöldi erlendra lækna sem starfa í Danmörku hefur þrefaldast á síðustu árum. Vegna mikils skorts á heilbrigðisstarfsfólki í landinu ráðgera stjórnvöld nú að flytja inn starfsfólk frá Austur- Evrópu. Skortur á læknum hefur ríkt í Danmörku undanfarin ár, sem og öðru heilbrigðisstarfsfólki. Ríkisstjórnin hefur svarað þessu m.a. með því að minnka kröfur í tungumálaprófum sem læknarnir verða að gangast undir til að þeir geti fengið starfsleyfi sín viðurkennd í Danmörku. Samkvæmt fréttum dagblaðsins Information fengu í fyrra 750 erlendir læknar starfsleyfi í Danmörku en fyrir fimm árum voru þeir rúmlega 200. Einnig er mikill skortur á hjúkrunarfólki og sjúkraliðum í Danmörku og eru uppi ráðagerðir um að flytja inn heilbrigðisstarfsfólk frá Austur-Evrópu. Ekki eru þó allir á eitt sáttir um þetta. Birthe Skaarup, einn þingmanna Danska þjóðarflokksins, telur sig þekkja dæmi þess að erlendir læknar hafi hreinlega ekki skilið sjúklinga sína og samtöl milli lækna og sjúklinga hafi gengið mjög erfiðlega. Því verði að stíga mjög varlega til jarðar og setja ströng skilyrði. Félag danskra lækna fagnar hins vegar þessum aðgerðum stjórnvalda. Carsten Rygaard, einn talsmanna félagsins, bendir annars vegar á læknaskortinn og hins vegar að Danmörk sé á frjálsu vinnumarkaðssvæði og því sé sjálfsagt að erlendir læknar geti sótt um og fengið vinnu í Danmörku.
Erlent Fréttir Mest lesið Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Innlent Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Innlent Fleiri fréttir Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Sjá meira