Fleiri fréttir

Segja Heilsugæsluna gera mistök

Formaður Meinatæknafélags Íslands segir Heilsugæsluna í Reykjavík hafa gert mistök með því að leggja niður störf allra meinatækna, með þriggja daga fyrirvara. Forstjóri heilsugæslunnar segir að tólf mánaða biðlaunaréttur þeirra tefji fyrir markmiðum um sparnað.

Múrinn að hluta ólöglegur

Allir hrósa sigri eftir að hæstiréttur Ísraels skipaði svo fyrir að hluti af öryggismúr Ísraelsmanna yrði fluttur. Dómararnir sögðu réttmætt að reisa varnarmúr en að gæta yrði hófs, ekki mætti brjóta gróflega á Palestínumönnum.

Milljónir ganga til vinnu

Milljónir Lundúnabúa héldu á tveimur jafnfljótum til vinnu í dag, þar sem starfsmenn neðanjarðarlestarkerfis borgarinnar voru í sólarhrings- verkfalli. Yfirvöld hvöttu fólk til að vera heima, en í það minnsta þrjár milljónir gerðu samt tilraun til að komast leiðar sinnar.

Faldi e-töflur hjá ömmu sinni

26 ára gamall maður faldi 480 e-töflur hjá ömmu sinni. Lögreglan réðst inn á heimili ömmunnar og fann fíkniefnin. Maðurinn mætti ekki fyrir dóm í fyrradag og hefur verið gefin út handtökuskipun á manninn. Rætt er við manninn og ömmu hans í nýju DV í dag.

Lögmaður dæmdur til sektar

Lögmaður sem dæmdur var fyrir að sýna dómara óvirðingu segist ekki skilja hvað hann hafi gert ámælisvert og vill fá skýringar. Hann var dæmdur til sektar. Hann segist ekki hafa verið ókurteis auk þess sem dómarar verði að sætta sig við að vitni séu spurð ítarlega út úr.

Tíu sagt upp hjá Morgunblaðinu

Tíu starfsmönnum ritstjórnar Morgunblaðsins hefur verið sagt upp, og taka uppsagnirnar gildi um mánaðamótin. Uppsagnirnar byggjast meðal annars á tæknibreytingum og breytingum á skipulagi og efni blaðsins sjálfs.

Saddam afhentur Írökum

Eftir flótta og felur í holum, fangelsisvist hjá Bandaríkjaher og yfirheyrslur, er Saddam Hússein á ábyrgð landa sinna, sem hyggjast ákæra hann á morgun. Óbreyttum Írökum virðist þó standa á sama og vilja frekar að tekist sé á við vanda samtíðar en fortíðar.

Greiða þarf skatt við skipti

Greiða þarf skatt þegar skipt er á húsbréfum og nýju húsnæðisbréfunum sem taka gildi nú um mánaðamótin. Þetta kom forsvarsmönnum Íbúðalánasjóðs gjörsamlega í opna skjöldu. Þeir segja að með breytingunum sé ekki verið að innleysa hagnað, heldur breyta um fjárfestingu.

Harmleikur í Súdan

Mesti harmleikur frá vargöldinni í Rúanda er yfirvofandi í Súdan. Milljón manna er á flótta undan blóðþyrstum skæruliðum og komið er í veg fyrir starf hjálparsamtaka. Í dag létu þungavigtarmenn þó til sín taka og beittu stjórnvöld í Kartúm enn meiri þrýstingi.

Hitti Nistelrooy

Gunnar Ari Kristjánsson, sonur Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra, hitti hollenska knattspyrnukappann Ruud Van Nistelrooy í Portúgal á dögunum.

Andstaðan með eigið frumvarp

Stjórnarandstaðan ætlar að leggja fram frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðsluna um fjölmiðlalögin. Samkvæmt því á einfaldur meirihluti að duga til þess að hafna lögunum. Formaður Samfylkingarinnar segir að ríkisstjórnin sé hrædd við vilja fólksins í landinu.

Þögnin er gull, segir Guðni

Forystumönnum í Framsóknarflokknum líst illa á hugmyndir sjálfstæðismanna um að gera kröfu um að 44 prósent kosningabærra manna þurfi, til að hafna lögum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, hvetur til þess að ófriðaröldur verði lægðar í samfélaginu, en telur þó sjálfur mikilvægt að lágmarksskilyrði verði sett.

Lettar mótmæltu í Hafnarfirði

Lettneskir sjómenn á skipinu Arnarborginni sem liggur við höfn í Hafnarfirði mótmæltu í gær. Þeir eru með 18 þúsund krónur á mánuði í laun og mótmæltu því að þeir fengu ekki borguð launin. Eigandi skipsins er Íslendingur. Meira um málið í DV í dag.

Davíð fundar með Bush

Davíð Oddsson forsætisráðherra væntir þess að niðurstaða geti fengist um framtíð Keflavíkurstöðvarinnar á fundi með George Bush í Hvíta húsinu á þriðjudaginn kemur. Bandaríkjaforseti býður til fundarins, en á honum á að ræða um alþjóðamál og samskipti landanna. Davíð segir fundinn í Washington engin áhrif hafa á fyrirhugaða fundi Alþingis á sama tíma.

Edwards vinælasta varaforsetaefnið

Fjórir mánuðir eru til forsetakosninga í Bandaríkjunum. George W. Bush og John Kerry eru nánast hnífjafnir samkvæmt skoðanakönnunum. Mikið veltur á vali frambjóðendanna á varaforsetaefni.

Hugsanlega sæst á skilyrði um 1/3

Enn á ný standa stjórnarflokkarnir frammi fyrir því að þurfa að ná lendingu í stórmáli sem flokkarnir eru í aðalatriðum ósammála um. Nú eru það lög um þjóðaratkvæðagreiðslu. Líklegt þykir að flokkarnir sættist á skilyrði um þriðjung.

Þjóðarbókhlaðan minna opin

Formaður Stúdentaráðs segir styttri afgreiðslutíma Þjóðarbókhlöðunnar bakslag fyrir baráttu stúdenta fyrir betri aðgangi að Háskólanum. Rektor segir þjónustu við nemendur aukast og Háskólann spara þrettán milljónir.

Fá 260 milljónir fyrir hitaveituna

Minnihluti bæjarstjórnar segir upphæðina ekki réttlæta söluna. Fjölmörg vafamál séu ekki afgreidd í samningnum. Forseti bæjarstjórnar segir söluna gríðarlegan kost fyrir bæjarbúa og verðið ásættanlegt. Meirihlutinn felldi tillögu minnihlutans um borgarafund.

Lögreglan tekur ekki skuldarana

Lögreglan hefur ekki sinnt þeim skyldum sínum að handtaka skuldara, sem hunsað hafa boðun sýslumanns, og færa þá til embættisins, að sögn formanns Lögmannafélags Íslands. Hann segir þetta óþolandi með öllu.

Ónóg virðing fyrir öldruðum

Ónóg virðing fyrir einkamálum aldraðra á fimm öldrunarstofnunum, og skortur á sjálfræði er meðal þess sem fram kemur í athyglisverðri könnun sem birt hefur verið. Æskilegt er að fólkið taki virkari þátt í sínu daglega umhverfi.

Víða barist í Tsjetsjeníu

Árásir og sprenging í námu kostuðu sex rússneska hermenn lífið og særðu tólf í Tsjetsjeníu í gær. Rannsókn sprengingar fyrir utan kaffihús í Grosní, höfuðborg Tsjetsjeníu, á sunnudag stendur enn yfir en hún kostaði einn lífið og særði fimm.

Óvænt valdaafsal

Bráðabirgðastjórn tók við óvænt við völdum í Írak í gær, tveimur dögum fyrr en áætlað hafði verið. Paul Bremer, landstjóri Bandaríkjamanna í Írak, afhenti nýjum stjórnvöldum skjöl um valdaafsalið í lítilli athöfn í höfuðstöðvum hernámsliðsins í gærmorgun. Um tveimur klukkustundum síðar yfirgaf Bremer Írak.

Búist við hörðum viðbrögðum

Palestínskir vígamenn skutu fjölda heimatilbúinna sprengja að ísraelskum landamærabæ í gær. Skothríðin kostaði tvo Ísraela lífið, þriggja ára dreng og afa hans, auk þess sem sjö særðust

93% ætla að kjósa um fjölmiðlalög

93% landsmanna telja líklegt að þeir taki þátt í þjóðaratkvæðagreiðslu um fjölmiðlalögin, samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallups. RÚV skýrði frá þessu í gær. Rúmlega sex af hverjum tíu sögðust ætla að greiða atkvæði gegn fjölmiðlalögunum en þrír af hverjum tíu sögðust munu greiða atkvæði með þeim.

Ákærður fyrir 480 e-töflur

Maður á þrítugsaldri hefur verið ákærður af ríkissaksóknara fyrir að hafa haft, í október í fyrra, 480 e-töflur og tæp þrjú grömm af töflumulningi í sinni vörslu á heimili sínu. Hann er sakaður um að hafa ætlað fíkniefni til sölu hér á landi.

Fimm fluttir á sjúkrahús

Fimm ferðamenn voru fluttir með sjúkrabíl til Reykjavíkur eftir að bíll þeirra valt á Vatnaleið á Snæfellsnesi seinnipart sunnudags. Að sögn lögreglunnar í Stykkishólmi voru meiðsl þeirra ekki alvarleg en bíllinn er mjög illa farinn og talinn ónýtur.

Lofa mikilli aðstoð við Írak

Leiðtogar NATO lofuðu miklum stuðningi við ný stjórnvöld í Írak á fundi sem nú stendur yfir í Istanbul. Leiðtogarnir samþykktu meðal annars að veita hjálp við þjálfun hersveita Íraka. Þá mun NATO íhuga frekari aðgerðir til að auka öryggi Íraka.

Skipið í Straumsvík í skoðun hér

Súrálskipið sem losnaði af standstað út af Straumsvík í gær fer í sérstaka skoðun hér á landi samkvæmt Parísarsamkomulaginu svonefnda um öryggi skipa. Komið er í ljós að það hefur tvisvar verið stöðvað á jafn mörgum árum fyrir að framfylgja ekki samkomulaginu en það nær m.a. til ýmissa öryggisþátta.

Viðskiptahindranir á bjór afnumdar

Þótt ótrúlegt megi virðast er nú verið að að afnema viðskiptahindranir með bjór í Danmörku og færa þá viðskiptahætti til þess sem ríkir í yngsta bjórvædda landi Evrópu, Íslandi.

Tveir vélhjólaökumenn slasast

Tveir ökumenn torfærumótorhjóla slösuðust í gærkvöldi þegar þeir voru að æfa sig. Annars vegar stakkst hjól inn í fyrirstöðu á æfingasvæðinu á Álfsnesi þannig að ökumaður kastaðist fram á stýrið og meiddist á brjósti.

Kona slasast í bílveltu

Þýsk ferðakona slasaðist alvarlega þegar bíll sem hún var í valt út af þjóðveginum sunnan við Húsavík í gærkvöldi. Hún var fyrst flutt ásamt annarri konu úr bílnum á Sjúkrahúsið á Akureyri og síðan með sjúkraflugi á Landspítalann í Reykjavík þar sem hún liggur nú.

Bandarískur gísl tekinn af lífi

Hryðjuverkamenn í Írak hafa tekið bandarískan hermann sem var í gíslingu þeirra af lífi. Sjónvarpsstöðin al-Jazeera greindi frá þessu í gærkvöldi. Sýnt var myndbandsupptaka af manni með bundið fyrir augun en ekki var sýnt þegar maðurinn var skotinn.

Áframhaldandi árásir Ísraela

Enn á ný héldu ísraelskar hersveitir á Gasa-ströndina í nótt og drápu þar Palestínumann. Skriðdrekar og jarðýtur sáust á götum bæjarins Beit Hanoun. Skömmu áður gerðu herþyrlur árás á byggingu upplýsingaskrifstofu sem sögð er tengjast Hamas-samtökunum. Í sömu byggingu eru m.a. CNN, BBC, tyrkneska sjónvarpið og al-Jazeera með skrifstofur.

Bush sækir á Kerry

George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sækir nú á ný á John Kerry samkvæmt nýrri könnun CBS. Fyrir mánuði var átta prósentu munur á þeim en nú er Kerry með 45% fylgi og Bush 44%.

Nader ekki frambjóðandi Græningja

Öllum á óvart tilnefndi Græningjaflokkurinn í Bandaríkjunum ekki Ralph Nader sem forsetaframbjóðanda sinn um helgina. Fyrir fjórum árum sökuðu margir demókratar Nader um að hafa stolið atkvæðum frá Al Gore og þar með komið í veg fyrir að hann yrði forseti.

Fiskveiðideila í uppsiglingu

Enn ein fiskveiðideilan við Norðmenn kann að bresta á í sumar og eru gagnkvæmar hótanir þegar hafðar uppi. Flestir muna líklega eftir Smugudeilunni svonefndu sem blossaði upp fyrir tæpum áratug vegna þorskveiða íslenskra skipa á alþjóðlegu hafsvæði á milli Noregs og Íslands. 

Reglur fyrir þjónustu á netinu

Samkeppnisstofnun hefur tekið saman skýrar og aðgengilegar starfsreglur fyrir fyrirtæki sem veita þjónustu á netinu. Reglurnar eiga við um öll fyrirtæki, einstaklinga og félög sem veita slíka þjónustu.

Mega ekki bera höfuðklúta

Mannréttindadómstóllinn í Strassburg hefur úrskurðað að ríkisháskólar í Tyrklandi megi banna múslimum að bera höfuðklúta þar sem það sé undirstöðuatriði í aðskilnaði ríkis og kirkju. Þetta gæti verið fordæmisgefandi úrskurður í málaferlum um þetta atriði.

Berjast við sjóræningja

Malasía, Singapúr og Indónesía ætla að senda sérstakar flotadeildir út á Malakka-sund til þess að berjast gegn sjóræningjum. Meira en eitt sjórán á dag var framið þar á síðasta ári. Malakka-sund er ein mikilvægasta sjóleið heimshafanna en um það fer um fjórðungur sjóflutninga í heimsviðskiptum.

Írakar fá Saddam á morgun

Íröksk stjórnvöld fá lögsögu yfir Saddam Hússein á morgun og ellefu háttsettum flokksfélögum hans. Saddam verður þó ekki seldur Írökum í hendur í orðsins fyllstu merkingu því hann verður áfram í gæsluvarðhaldi hjá Bandaríkjaher.

Líklega mistök flugmanna

Flest bendir til þess að mistök flugmanna hafi orðið til þess að Dornier-flugvél Íslandsflugs magalenti á Siglufjarðarflugvelli í síðustu viku. Fulltrúar frá Rannsóknarnefnd flugslysa fóru með flugrita flugvélarinnar til aflestrar í Englandi í gær og verða niðurstöðurnar skoðaðar síðar í dag.

Þarf fleiri en kusu Ólaf Ragnar

Fleiri þurfa að kjósa gegn fjölmiðlalögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu til að fella lögin úr gildi en kusu Ólaf Ragnar Grímsson forseta lýðveldisins þriðja kjörtímabilið í röð, verði þess krafist að minnst 44% atkvæðabærra manna synji lögunum.

Samfylkingin stærst

Samfylkingin fengi 33,6% atkvæða ef kosið yrði til Alþingis nú, samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallups. Sjálfstæðisflokkurinn fengi 31,1%. Könnunin var gerð á tímabilinu frá 26. maí til 24. júní. Úrtakið var 2.638 manns en 63% þeirra svöruðu.

Umboðsmaður vísar frá kvörtun

Umboðsmaður Alþingis hefur vísað frá kvörtun fréttastjóra Stöðvar 2 og Bylgjunnar vegna ákvörðunar Davíðs Oddssonar forsætisráðherra að neita að svara spurningum fréttastofunnar eftir að forseti Íslands synjaði fjölmiðlalögunum staðfestingar.

Samstarf gegn hryðjuverkum

Mikið hefur verið fjallað um aukið samstarf ríkja gegn hryðjuverkum á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem nú fer fram. Lagt hefur verið til að auka upplýsingaflæði á milli aðildarríkja bandalagsins og samstarfsríkja til að sporna við alþjóðlegum hryðjuverkum.

Sjá næstu 50 fréttir