Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skattlagning kemur á óvart Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að innheimta fjármagnstekjuskatt af þeim, sem skipta húsbréfum yfir í nýju peningabréfin. Þetta kemur öllum á óvart, að sögn Halls Magnússonar, sviðstjóra þróunarsviðs íbúðalánasjóðs. 30.6.2004 00:01
Framseldur til Ítalíu Dómstóll í París féllst í dag á að fyrrverandi liðsmaður Rauðu hersveitanna, yrði framseldur til Ítalíu, þar sem hann var dæmdur fyrir morð á sjöunda áratug síðustu aldar. Cesare Battisti hefur búið, fyrir opnum tjöldum, í París, síðan 1990, eftir að hann afneitaði hryðjuverkum. Nokkrir tugir ítalskra morðingja fluttu til Frakklands, eftir að Francois Mitterand, forsætisráðherra sósíalistastjórnarinnar þar, bauð þeim hæli. 30.6.2004 00:01
Bremer dauðfeginn Paul Bremer, fyrrverandi landstjóri í Írak, kveðst vera dauðfeginn að vera kominn aftur heim til Bandaríkjanna. Bremer talaði við fréttamenn, í dag, á flötum Hvíta hússins, og sagði að hann harmaði að ekki skyldi hafa tekist betur að koma á friði í landinu, áður en hann lét af embætti. 30.6.2004 00:01
Ræða um samstarf eða sameiningu Ákveðið hefur verið að hefja viðræður um samstarf eða sameiningu Félags járniðnaðarmanna og Vélstjórafélags Íslands. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá formönnum félaganna. Markmiðið með því er að sameina alla þá sem starfa við vélstjórn, vélvirkjun, málmiðnað, veiðarfæragerð og í skyldum greinum í eitt öflugt landsfélag. 30.6.2004 00:01
Aukin aðsókn í kvennaathvarf Töluverð fjölgun er á dvalardögum í kvennaathvarfinu það sem af er árinu þó nokkuð rólegt hafi verið yfir athvarfinu í júní. Dvalardagar kvenna eru orðnir 575 og barna 367. Alls eru því dvalardagar kvenna og barna 942 á fyrri helmingi ársins. Þarna er um töluverða fjölgun að ræða á milli ára því dagar barna og kvenna í dvöl á síðasta ári numu 1501 degi allt árið. 30.6.2004 00:01
60 reknir úr starfi í Bosníu Sextíu háttsettir embættismenn voru reknir úr starfi í Bosníu í dag, fyrir að framselja ekki Radovan Karadits, fyrrverandi leiðtoga Bosníuserba. Karadits er eftirlýstur fyrir stríðsglæpi og þjóðarmorð. Paddy Ashdown, fyrrverandi leiðtogi Frjálslynda flokksins, Breska, stýrir málum í Bosníu, fyrir vesturveldin. Það var hann sem tak embættismennina sextíu. 30.6.2004 00:01
Afgreiðslutími skertur Afgreiðslutími Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns verður skertur talsvert í haust. Undanfarin ár hefur verið í gildi samningur milli safnsins og Háskóla Íslands um að Háskólinn borgi hluta af kostnaðinum við að hafa safnið opið fjögur kvöld í viku til klukkan tíu og á sunnudögum. 30.6.2004 00:01
Fleiri voðaverk í Belgíu Franskur skógarvörður hefur viðurkennt hafa hafa myrt sex kornungar stúlkur, og er grunaður um að hafa myrt þrjár til viðbótar. Morðin voru framin í Frakklandi og Belgíu. Í Belgíu eru menn skelfingu lostnir yfir þeim möguleika að þarna sé í uppsiglingu annað mál í líkingu við mál nauðgarans og barnamorðingjans Marks Dutroux, sem nýlega var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir ódæðisverk sín. 30.6.2004 00:01
Seinni ferð Herjólfs aflýst Seinni ferð Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs fellur niður í dag vegna bilunar en skipið mun sigla samkvæmt áætlun á morgun. Herjólfur átti að fara frá Eyjum kl. 16:00 og Þorlákshöfn kl. 19:30 og er þeirri ferð aflýst. Viðgerð fer fram í kvöld og fer skipið frá Vestmannaeyjum á morgun klukkan 8:15 samkvæmt áætlun. 30.6.2004 00:01
Sjónmengun af majónesdós "Haldi þetta áfram þá munu auglýsingar við þjóðveginn spretta upp sem gorkúlur og við munum aka um frumskóg af auglýsingaskiltum," segir Steingrímur Gunnarsson leiðsögumaður um risastóra majónesdós frá Gunnars majónes sem búið er að komna fyrir skammt frá Þjórsárbrú og á að vekja athygli ferðalanga. 30.6.2004 00:01
Uppsagnir hjá Morgunblaðinu Á annan tug starsfmanna Morgunblaðsins hafa fengið uppsagnarbréf, samkvæmt upplýsingum Vísis og taka uppsagnirnar gildi frá og með morgundeginum. Ekki fengust upplýsingar um hve mörgum verður sagt upp. 30.6.2004 00:01
Jarðböð á Mývatni Margra ára draumur Mývetninga um baðlón í sveitinni varð að veruleika í dag þegar jarðböð Baðfélags Mývetninga voru formlega tekin í notkun. Starfsemin hefur verið í undirbúningi í um áratug og nemur kostnaðurinn um hundrað milljónum króna. 30.6.2004 00:01
Segja Heilsugæsluna gera mistök Formaður Meinatæknafélags Íslands segir Heilsugæsluna í Reykjavík hafa gert mistök með því að leggja niður störf allra meinatækna, með þriggja daga fyrirvara. Forstjóri heilsugæslunnar segir að tólf mánaða biðlaunaréttur þeirra tefji fyrir markmiðum um sparnað. 30.6.2004 00:01
Múrinn að hluta ólöglegur Allir hrósa sigri eftir að hæstiréttur Ísraels skipaði svo fyrir að hluti af öryggismúr Ísraelsmanna yrði fluttur. Dómararnir sögðu réttmætt að reisa varnarmúr en að gæta yrði hófs, ekki mætti brjóta gróflega á Palestínumönnum. 30.6.2004 00:01
Milljónir ganga til vinnu Milljónir Lundúnabúa héldu á tveimur jafnfljótum til vinnu í dag, þar sem starfsmenn neðanjarðarlestarkerfis borgarinnar voru í sólarhrings- verkfalli. Yfirvöld hvöttu fólk til að vera heima, en í það minnsta þrjár milljónir gerðu samt tilraun til að komast leiðar sinnar. 30.6.2004 00:01
Faldi e-töflur hjá ömmu sinni 26 ára gamall maður faldi 480 e-töflur hjá ömmu sinni. Lögreglan réðst inn á heimili ömmunnar og fann fíkniefnin. Maðurinn mætti ekki fyrir dóm í fyrradag og hefur verið gefin út handtökuskipun á manninn. Rætt er við manninn og ömmu hans í nýju DV í dag. 30.6.2004 00:01
Lögmaður dæmdur til sektar Lögmaður sem dæmdur var fyrir að sýna dómara óvirðingu segist ekki skilja hvað hann hafi gert ámælisvert og vill fá skýringar. Hann var dæmdur til sektar. Hann segist ekki hafa verið ókurteis auk þess sem dómarar verði að sætta sig við að vitni séu spurð ítarlega út úr. 30.6.2004 00:01
Tíu sagt upp hjá Morgunblaðinu Tíu starfsmönnum ritstjórnar Morgunblaðsins hefur verið sagt upp, og taka uppsagnirnar gildi um mánaðamótin. Uppsagnirnar byggjast meðal annars á tæknibreytingum og breytingum á skipulagi og efni blaðsins sjálfs. 30.6.2004 00:01
Saddam afhentur Írökum Eftir flótta og felur í holum, fangelsisvist hjá Bandaríkjaher og yfirheyrslur, er Saddam Hússein á ábyrgð landa sinna, sem hyggjast ákæra hann á morgun. Óbreyttum Írökum virðist þó standa á sama og vilja frekar að tekist sé á við vanda samtíðar en fortíðar. 30.6.2004 00:01
Greiða þarf skatt við skipti Greiða þarf skatt þegar skipt er á húsbréfum og nýju húsnæðisbréfunum sem taka gildi nú um mánaðamótin. Þetta kom forsvarsmönnum Íbúðalánasjóðs gjörsamlega í opna skjöldu. Þeir segja að með breytingunum sé ekki verið að innleysa hagnað, heldur breyta um fjárfestingu. 30.6.2004 00:01
Harmleikur í Súdan Mesti harmleikur frá vargöldinni í Rúanda er yfirvofandi í Súdan. Milljón manna er á flótta undan blóðþyrstum skæruliðum og komið er í veg fyrir starf hjálparsamtaka. Í dag létu þungavigtarmenn þó til sín taka og beittu stjórnvöld í Kartúm enn meiri þrýstingi. 30.6.2004 00:01
Hitti Nistelrooy Gunnar Ari Kristjánsson, sonur Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra, hitti hollenska knattspyrnukappann Ruud Van Nistelrooy í Portúgal á dögunum. 30.6.2004 00:01
Andstaðan með eigið frumvarp Stjórnarandstaðan ætlar að leggja fram frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðsluna um fjölmiðlalögin. Samkvæmt því á einfaldur meirihluti að duga til þess að hafna lögunum. Formaður Samfylkingarinnar segir að ríkisstjórnin sé hrædd við vilja fólksins í landinu. 30.6.2004 00:01
Þögnin er gull, segir Guðni Forystumönnum í Framsóknarflokknum líst illa á hugmyndir sjálfstæðismanna um að gera kröfu um að 44 prósent kosningabærra manna þurfi, til að hafna lögum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, hvetur til þess að ófriðaröldur verði lægðar í samfélaginu, en telur þó sjálfur mikilvægt að lágmarksskilyrði verði sett. 30.6.2004 00:01
Lettar mótmæltu í Hafnarfirði Lettneskir sjómenn á skipinu Arnarborginni sem liggur við höfn í Hafnarfirði mótmæltu í gær. Þeir eru með 18 þúsund krónur á mánuði í laun og mótmæltu því að þeir fengu ekki borguð launin. Eigandi skipsins er Íslendingur. Meira um málið í DV í dag. 30.6.2004 00:01
Davíð fundar með Bush Davíð Oddsson forsætisráðherra væntir þess að niðurstaða geti fengist um framtíð Keflavíkurstöðvarinnar á fundi með George Bush í Hvíta húsinu á þriðjudaginn kemur. Bandaríkjaforseti býður til fundarins, en á honum á að ræða um alþjóðamál og samskipti landanna. Davíð segir fundinn í Washington engin áhrif hafa á fyrirhugaða fundi Alþingis á sama tíma. 30.6.2004 00:01
Edwards vinælasta varaforsetaefnið Fjórir mánuðir eru til forsetakosninga í Bandaríkjunum. George W. Bush og John Kerry eru nánast hnífjafnir samkvæmt skoðanakönnunum. Mikið veltur á vali frambjóðendanna á varaforsetaefni. 30.6.2004 00:01
Hugsanlega sæst á skilyrði um 1/3 Enn á ný standa stjórnarflokkarnir frammi fyrir því að þurfa að ná lendingu í stórmáli sem flokkarnir eru í aðalatriðum ósammála um. Nú eru það lög um þjóðaratkvæðagreiðslu. Líklegt þykir að flokkarnir sættist á skilyrði um þriðjung. 30.6.2004 00:01
Þjóðarbókhlaðan minna opin Formaður Stúdentaráðs segir styttri afgreiðslutíma Þjóðarbókhlöðunnar bakslag fyrir baráttu stúdenta fyrir betri aðgangi að Háskólanum. Rektor segir þjónustu við nemendur aukast og Háskólann spara þrettán milljónir. 30.6.2004 00:01
Fá 260 milljónir fyrir hitaveituna Minnihluti bæjarstjórnar segir upphæðina ekki réttlæta söluna. Fjölmörg vafamál séu ekki afgreidd í samningnum. Forseti bæjarstjórnar segir söluna gríðarlegan kost fyrir bæjarbúa og verðið ásættanlegt. Meirihlutinn felldi tillögu minnihlutans um borgarafund. 30.6.2004 00:01
Lögreglan tekur ekki skuldarana Lögreglan hefur ekki sinnt þeim skyldum sínum að handtaka skuldara, sem hunsað hafa boðun sýslumanns, og færa þá til embættisins, að sögn formanns Lögmannafélags Íslands. Hann segir þetta óþolandi með öllu. 30.6.2004 00:01
Ónóg virðing fyrir öldruðum Ónóg virðing fyrir einkamálum aldraðra á fimm öldrunarstofnunum, og skortur á sjálfræði er meðal þess sem fram kemur í athyglisverðri könnun sem birt hefur verið. Æskilegt er að fólkið taki virkari þátt í sínu daglega umhverfi. 30.6.2004 00:01
Víða barist í Tsjetsjeníu Árásir og sprenging í námu kostuðu sex rússneska hermenn lífið og særðu tólf í Tsjetsjeníu í gær. Rannsókn sprengingar fyrir utan kaffihús í Grosní, höfuðborg Tsjetsjeníu, á sunnudag stendur enn yfir en hún kostaði einn lífið og særði fimm. 29.6.2004 00:01
Óvænt valdaafsal Bráðabirgðastjórn tók við óvænt við völdum í Írak í gær, tveimur dögum fyrr en áætlað hafði verið. Paul Bremer, landstjóri Bandaríkjamanna í Írak, afhenti nýjum stjórnvöldum skjöl um valdaafsalið í lítilli athöfn í höfuðstöðvum hernámsliðsins í gærmorgun. Um tveimur klukkustundum síðar yfirgaf Bremer Írak. 29.6.2004 00:01
Búist við hörðum viðbrögðum Palestínskir vígamenn skutu fjölda heimatilbúinna sprengja að ísraelskum landamærabæ í gær. Skothríðin kostaði tvo Ísraela lífið, þriggja ára dreng og afa hans, auk þess sem sjö særðust 29.6.2004 00:01
93% ætla að kjósa um fjölmiðlalög 93% landsmanna telja líklegt að þeir taki þátt í þjóðaratkvæðagreiðslu um fjölmiðlalögin, samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallups. RÚV skýrði frá þessu í gær. Rúmlega sex af hverjum tíu sögðust ætla að greiða atkvæði gegn fjölmiðlalögunum en þrír af hverjum tíu sögðust munu greiða atkvæði með þeim. 29.6.2004 00:01
Ákærður fyrir 480 e-töflur Maður á þrítugsaldri hefur verið ákærður af ríkissaksóknara fyrir að hafa haft, í október í fyrra, 480 e-töflur og tæp þrjú grömm af töflumulningi í sinni vörslu á heimili sínu. Hann er sakaður um að hafa ætlað fíkniefni til sölu hér á landi. 29.6.2004 00:01
Fimm fluttir á sjúkrahús Fimm ferðamenn voru fluttir með sjúkrabíl til Reykjavíkur eftir að bíll þeirra valt á Vatnaleið á Snæfellsnesi seinnipart sunnudags. Að sögn lögreglunnar í Stykkishólmi voru meiðsl þeirra ekki alvarleg en bíllinn er mjög illa farinn og talinn ónýtur. 29.6.2004 00:01
Lofa mikilli aðstoð við Írak Leiðtogar NATO lofuðu miklum stuðningi við ný stjórnvöld í Írak á fundi sem nú stendur yfir í Istanbul. Leiðtogarnir samþykktu meðal annars að veita hjálp við þjálfun hersveita Íraka. Þá mun NATO íhuga frekari aðgerðir til að auka öryggi Íraka. 29.6.2004 00:01
Skipið í Straumsvík í skoðun hér Súrálskipið sem losnaði af standstað út af Straumsvík í gær fer í sérstaka skoðun hér á landi samkvæmt Parísarsamkomulaginu svonefnda um öryggi skipa. Komið er í ljós að það hefur tvisvar verið stöðvað á jafn mörgum árum fyrir að framfylgja ekki samkomulaginu en það nær m.a. til ýmissa öryggisþátta. 29.6.2004 00:01
Viðskiptahindranir á bjór afnumdar Þótt ótrúlegt megi virðast er nú verið að að afnema viðskiptahindranir með bjór í Danmörku og færa þá viðskiptahætti til þess sem ríkir í yngsta bjórvædda landi Evrópu, Íslandi. 29.6.2004 00:01
Tveir vélhjólaökumenn slasast Tveir ökumenn torfærumótorhjóla slösuðust í gærkvöldi þegar þeir voru að æfa sig. Annars vegar stakkst hjól inn í fyrirstöðu á æfingasvæðinu á Álfsnesi þannig að ökumaður kastaðist fram á stýrið og meiddist á brjósti. 29.6.2004 00:01
Kona slasast í bílveltu Þýsk ferðakona slasaðist alvarlega þegar bíll sem hún var í valt út af þjóðveginum sunnan við Húsavík í gærkvöldi. Hún var fyrst flutt ásamt annarri konu úr bílnum á Sjúkrahúsið á Akureyri og síðan með sjúkraflugi á Landspítalann í Reykjavík þar sem hún liggur nú. 29.6.2004 00:01
Bandarískur gísl tekinn af lífi Hryðjuverkamenn í Írak hafa tekið bandarískan hermann sem var í gíslingu þeirra af lífi. Sjónvarpsstöðin al-Jazeera greindi frá þessu í gærkvöldi. Sýnt var myndbandsupptaka af manni með bundið fyrir augun en ekki var sýnt þegar maðurinn var skotinn. 29.6.2004 00:01
Áframhaldandi árásir Ísraela Enn á ný héldu ísraelskar hersveitir á Gasa-ströndina í nótt og drápu þar Palestínumann. Skriðdrekar og jarðýtur sáust á götum bæjarins Beit Hanoun. Skömmu áður gerðu herþyrlur árás á byggingu upplýsingaskrifstofu sem sögð er tengjast Hamas-samtökunum. Í sömu byggingu eru m.a. CNN, BBC, tyrkneska sjónvarpið og al-Jazeera með skrifstofur. 29.6.2004 00:01