Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 14. október 2026 20:01 Elon Musk segist ekki bera ábyrgð á þeim hluta kerfisins sem setti takmarkanir á úkraínska hermenn. AP/Julia Demaree Nikhinson Elon Musk, eigandi SpaceX sem rekur Starlink, þvertekur fyrir að hafa sett takmarkanir á notkun úkraínskra hermanna á Starlink-móttökustöðunum. Hann vísar á bandarísk stjórnvöld.
Fjallað var um það á Vísi í dag að úkraínskir hermenn hafi fundið fyrir takmörkunum sem felast í því að þegar móttökustöðvarnar nái tilteknum hraða slökkvi þær á sér. Vegna þessa hafi úkraínskir hermenn misst samband við dróna sem þeir hafi verið að fljúga þegar drónarnir eru komnir á sextíu kílómetra hraða. Starshield-kerfið er þá sérstakur hluti af Starlink-kerfinu en honum er stjórnað af varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna. Wall Street Journal sagði í umfjöllun sinni að takmarkanirnar snúi sérstaklega að þeim hluta kerfisins. Starlink-tæknin er notuð í miklum mæli af úkraínska hernum, meðal annars til samskipta á víglínunni og til að stýra drónum. Musk hefur áður verið sakaður um að beita Starlink til að koma í veg fyrir aðgerðir Úkraínumanna gegn Rússum. Í nýrri færslu á samfélagsmiðlinum X, sem er í eigu Musk, vísar hann til bandarískra stjórnvalda. „Starshield-kerfin eru í eigu og undir stjórn bandarískra stjórnvalda. Allar takmarkanir á hraða eða notkun eru ákveðnar af Bandaríkjaher og að lokum af forseta Bandaríkjanna,“ áréttar Musk í færslunni. Starlink hins vegar sé viðskiptaþjónusta í eigu SpaceX. „Notkun Starlink er takmörkuð við borgaralega starfsemi eða varnarstarfsemi og ekki má nota hana til hernaðarlegra árása, þar sem slíkt væri óviðeigandi fyrir fyrirtæki í atvinnurekstri,“ bætir hann við. Með þessu gefur Musk í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanirnar á hernað úkraínsku hermannanna.
Elon Musk Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Donald Trump SpaceX Hernaður Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Innlent Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Erlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Fleiri fréttir Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Sjá meira