Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Freyja Þórisdóttir skrifar 12. október 2026 20:24 Helga Rósa Másdóttir er hjúkrunarfræðingur og jafnframt formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Aðsend/Arnar Halldórsson Í nýbirtri skýrslu heilbrigðisráðuneytisins er greint frá því að um fjörutíu prósenta undirmönnun sé á sextán bráðalegudeildum Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri. Þetta er meðal þess sem formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) snertir á í innsendri grein á Vísi en hún segir mönnun hafa áhrif á afdrif sjúklinga. Á deildunum sem um ræði dvelji margir af veikustu sjúklingum landsins.
Helga Rósa Másdóttir formaður Fíh skrifar meðal annars um það í greininni að undirmannaðar deildir geti haft mikið að segja um öryggi sjúklinga og afdrif þeirra. Sýnt hafi verið fram á að rétt mönnun hjúkrunarfræðinga tengist minni dánartíðni sjúklinga. Rannsóknir hafi jafnframt sýnt tengsl ónógrar mönnunar við aukna tíðni fylgikvilla, lengri legutíma og meiri líkur á endurinnlögnum. Ekki einungis horft á launakostnað „Rétt mönnun er því ekki aðeins spurning um útgjöld heldur einnig um nýtingu fjármuna, gæði þjónustunnar og öryggi sjúklinga. Það er því mikilvægt að horfa á heildarkostnað heilbrigðisþjónustunnar en ekki einungis launakostnað einstakra eininga,“ skrifar hún jafnframt. Þá sé það áætlað í skýrslu heilbrigðisráðuneytisins að viðbótarkostnaður við innleiðingu mönnunarviðmiða á þessum sextán deildum sem séu til skoðunar nemi 1,5 milljörðum króna á ári, á verðlagi ársins 2024. Í umsögn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um fjármálaáætlun 2027–2031 hafi félagið lýst áhyggjum af fjármögnun heilbrigðisþjónustunnar og bent á að fjárveitingar til reksturs nægðu ekki einu sinni til að viðhalda óbreyttu ástandi. Jafnframt hafi félagið lagt áherslu á að uppbyggingu heilbrigðisþjónustunnar þurfi að fylgja fjármagn til mönnunar og reksturs en ekki eingöngu bygginga. Endurskoðun brýn nauðsyn „Þessar áhyggjur verða enn áleitnari þegar fyrir liggur faglegt mat sem sýnir jafn mikla undirmönnun og raun ber vitni,“ skrifar Helga og snýr sér að því hversu brýnt sé að endurskoða forsendur mönnunar í heilbrigðisþjónustunni. „Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur um árabil kallað eftir lögbundnum mönnunarviðmiðum sem byggja á hjúkrunarþyngd og faglegu mati. Stjórnvöld þurfa að tryggja að slík viðmið verði grundvöllur mönnunar og að fjárveitingar taki mið af raunverulegri hjúkrunarþörf sjúklinga.“ Vinnuhópur heilbrigðisráðuneytisins leggi jafnframt til að komið verði á fót embætti yfirhjúkrunarfræðings innan stjórnsýslunnar til að styrkja stefnumótun í hjúkrun, leiða innleiðingu samræmdra mönnunarviðmiða og tryggja eftirfylgni með þeim. „Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur lengi beitt sér fyrir stofnun slíks embættis og fagnar því að tillagan sé nú hluti af niðurstöðum vinnuhópsins. Skýrslan markar mikilvægt skref, en nú þurfa stjórnvöld að fylgja tillögunum eftir,“ skrifar Helga og ítrekar að endingu: „Einskiptisaðgerðir og kerfisleg lausatök duga ekki til.“
Heilbrigðismál Félagasamtök Landspítalinn Hjúkrunarheimili Akureyri Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Sjá meira