Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Freyja Þórisdóttir skrifar 12. október 2026 20:24 Helga Rósa Másdóttir er hjúkrunarfræðingur og jafnframt formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Aðsend/Arnar Halldórsson Í nýbirtri skýrslu heilbrigðisráðuneytisins er greint frá því að um fjörutíu prósenta undirmönnun sé á sextán bráðalegudeildum Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri. Þetta er meðal þess sem formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) snertir á í innsendri grein á Vísi en hún segir mönnun hafa áhrif á afdrif sjúklinga. Á deildunum sem um ræði dvelji margir af veikustu sjúklingum landsins.
Helga Rósa Másdóttir formaður Fíh skrifar meðal annars um það í greininni að undirmannaðar deildir geti haft mikið að segja um öryggi sjúklinga og afdrif þeirra. Sýnt hafi verið fram á að rétt mönnun hjúkrunarfræðinga tengist minni dánartíðni sjúklinga. Rannsóknir hafi jafnframt sýnt tengsl ónógrar mönnunar við aukna tíðni fylgikvilla, lengri legutíma og meiri líkur á endurinnlögnum. Ekki einungis horft á launakostnað „Rétt mönnun er því ekki aðeins spurning um útgjöld heldur einnig um nýtingu fjármuna, gæði þjónustunnar og öryggi sjúklinga. Það er því mikilvægt að horfa á heildarkostnað heilbrigðisþjónustunnar en ekki einungis launakostnað einstakra eininga,“ skrifar hún jafnframt. Þá sé það áætlað í skýrslu heilbrigðisráðuneytisins að viðbótarkostnaður við innleiðingu mönnunarviðmiða á þessum sextán deildum sem séu til skoðunar nemi 1,5 milljörðum króna á ári, á verðlagi ársins 2024. Í umsögn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um fjármálaáætlun 2027–2031 hafi félagið lýst áhyggjum af fjármögnun heilbrigðisþjónustunnar og bent á að fjárveitingar til reksturs nægðu ekki einu sinni til að viðhalda óbreyttu ástandi. Jafnframt hafi félagið lagt áherslu á að uppbyggingu heilbrigðisþjónustunnar þurfi að fylgja fjármagn til mönnunar og reksturs en ekki eingöngu bygginga. Endurskoðun brýn nauðsyn „Þessar áhyggjur verða enn áleitnari þegar fyrir liggur faglegt mat sem sýnir jafn mikla undirmönnun og raun ber vitni,“ skrifar Helga og snýr sér að því hversu brýnt sé að endurskoða forsendur mönnunar í heilbrigðisþjónustunni. „Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur um árabil kallað eftir lögbundnum mönnunarviðmiðum sem byggja á hjúkrunarþyngd og faglegu mati. Stjórnvöld þurfa að tryggja að slík viðmið verði grundvöllur mönnunar og að fjárveitingar taki mið af raunverulegri hjúkrunarþörf sjúklinga.“ Vinnuhópur heilbrigðisráðuneytisins leggi jafnframt til að komið verði á fót embætti yfirhjúkrunarfræðings innan stjórnsýslunnar til að styrkja stefnumótun í hjúkrun, leiða innleiðingu samræmdra mönnunarviðmiða og tryggja eftirfylgni með þeim. „Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur lengi beitt sér fyrir stofnun slíks embættis og fagnar því að tillagan sé nú hluti af niðurstöðum vinnuhópsins. Skýrslan markar mikilvægt skref, en nú þurfa stjórnvöld að fylgja tillögunum eftir,“ skrifar Helga og ítrekar að endingu: „Einskiptisaðgerðir og kerfisleg lausatök duga ekki til.“
Heilbrigðismál Félagasamtök Landspítalinn Hjúkrunarheimili Akureyri Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Fleiri fréttir „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Sjá meira