Sextán í bann fyrir nasistakveðjur Valur Páll Eiríksson skrifar 17. september 2026 09:31 Mynd úr Curva Sud frá leik Roma við Atalanta þann 5. september síðastliðinn. Ivan Romano/Getty Images Sextán stuðningsmenn Roma hafa verið dæmdir í bann frá fótboltavöllum vegna nasistakveðja og klæðnaðar sem kenna má við öfgahægristefnu. Bannið kemur til vegna hegðunar og klæðnaðar á leik við Atalanta á dögunum.
Í yfirlýsingu ítölsku lögreglunnar kemur fram að stuðningsmennirnir hafi verið í Curva Sud, suðurstúkunni á Ólympíuleikvanginum í Róm, en þar koma blóðheitustu stuðningsmenn Roma, ultras, saman. Fram kemur að einstaklingarnir sextán séu á milli 19 og 42 ára gamlir og þeir hafi saman sýnt svokallaða „rómanska kveðju“ sem teknar voru upp af fasistum í stjórnartíð Benito Mussolini og nasistum undir Adolf Hitler snemma á 20. öldinni. Einnig hafi þeir klæðst peysum sem hafi verið áletraðar með orðunum uber alles, þýskum frasa sem þýðir „ofar öllum öðrum“ – sem lögreglan lýsir sem „vel þekktri nasistakveðju“. Einstaklingarnir fara í bönn frá einu ári upp í fimm ár sem gilda á öllum fótboltavöllum Ítalíu auk allra valla sem Roma eða ítalska landsliðið leika á utan landssteinanna. Fjórir þeirra sextán sem fara í bann þurfa þá að skrá sig inn á lögreglustöð í Rómarborg fyrir og eftir leiki til að sýna fram á að þeir séu ekki á leikjum Roma. Þeir sem fara í lengri bönn fá þau vegna fyrri brota. Þó nokkrir af einstaklingunum sextán hafa áður fengið bönn vegna „vopnahalds, hótana, skemmdarverka, slagsmála og smygls“ segir ítalska lögreglan. Einstaklingarnir voru dæmdir í bann á grundvelli Mancino-laganna á Ítalíu, sem leidd voru til laga árið 1993 í tíð Nicola Mancino sem innviðaráðherra. Lögin miða að því að refsa fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar, þjóðernisuppruna, trúarbragða, hatursorðræðu og ofbeldisfulla hatursglæpi.
Ítalski boltinn Kynþáttafordómar Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira