Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Samúel Karl Ólason skrifar 17. september 2026 06:25 Donald Trump virðist ekki alveg viss um hvernig hann eigi að taka því að Kanadamenn gætu fengið aukaaðild að Evrópusambandinu. AP/Luis M. Alvarez Donald Trump segir að það að hleypa Kanada inn í Evrópusambandið með einhverjum hætti gæti verið „fjandsamlegt“ gagnvart Bandaríkjunum. Forsetinn hótar því að beita ESB enn frekari tollum og jafnvel hætta viðskiptum við Evrópu á einhverjum sviðum.
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, bauð í gærmorgun Kanada að verða aukaaðildarríki ESB. Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, var viðstaddur stefnuræðu hennar, en hann hefur að undanförnu leitað nýrra vina fyrir Kanada vegna viðskiptastríðs Trumps gegn nágrönnum sínum í norðri. Meðal annars hefur Carney leitað til Evrópusambandsins. Sjá einnig: Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Trump ræddi tilkynningu von der Leyen við fjölmiðla í gærkvöldi og þá sagði hann að mögulegt væri að Evrópa væri að reyna að koma höggi á Bandaríkin. Hann sagði þetta þó „hlægilegt“ og sagði að Kanada væri „hræðilegur viðskiptafélagi“. „Ef þau gera það, ef ég held að það sé fjandsamlegt, mun ég setja mjög alvarlega tolla eða hætta alfarið viðskiptum við Evrópu á mörgum hlutum.“ Hann bætti við að ef verið væri að gera þetta í góðri trú, væri honum alveg sama. Samskipti Bandaríkjanna og Kanada hafa sjaldan verið eins slæm og þau eru nú og eiga ríkin í viðskiptastríði eftir að viðræður um viðskiptasamband þeirra féllu saman fyrr í sumar. Trump hefur beitt Kanada umfangsmiklum tollum og bannað innflutning vara frá Kanada, eftir að Kanadamenn svöruðu með eigin tollum gegn Bandaríkjunum. Þá hefur Trump einnig skrifað undir forsetatilskipun um að breyta eigi nafni Ontario-vatns í Ameríku-vatn. Vill þvinga Kanadamenn til innlimunar Trump hefur lengi talað niður til Kanada og sagt að landið eigi að verða 51. ríki Bandaríkjanna. Hann hefur jafnvel sagt opinberlega að hann vilji þvinga Kanadamenn til þess að ganga inn í Bandaríkin með efnahagslegum aðgerðum. Til þessa hefur hann hótað og beitt þvingunum og efnahagsaðgerðum eins og tollum gegn Kanada. Kanadamenn hafa brugðist reiðir við þessum aðgerðum Trumps. Þeir hafa hætt að kaupa vörur frá Bandaríkjunum og dregið verulega úr ferðalögum sínum til Bandaríkjanna, svo eitthvað sé nefnt.
Bandaríkin Donald Trump Kanada Evrópusambandið Tengdar fréttir Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Seðlabanki Hollands hefur flutt 86 tonn af gullforða sínum frá Bandaríkjunum og Kanada til London í Bretlandi, vegna vaxandi ólgu í alþjóðamálum. Auðveldara verði að selja gullforðann komi til neyðarástands í Bretlandi heldur en í Bandaríkjunum eða Kanada. 3. september 2026 07:50 Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Donald Trump Bandaríkjaforseti spyr í færslu á samfélagsmiðlum hvort hann ætti að breyta heiti Hormússunds í Trumpsund. Nokkrir dagar eru síðan hann tilkynnti um breytingu á Ontaríó-vatni. 2. september 2026 17:10 Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur undirritað tilskipun þess efnis að Ontaríó-vatn beri nú heitið Ameríku-vatn. 27. ágúst 2026 17:56 Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Þrátt fyrir háværan áróður og beitingu tolla milli Bandaríkjanna og Kanada segjast greinendur vestanhafs sannfærðir um að ríkisstjórnir landanna muni komast að samkomulagi. Hvorki Bandaríkjamenn né Kanadamenn vilji í raun vera í viðskiptastríði. Donald Trump og félagar virðast þó telja sig með pálmann í höndunum. 26. ágúst 2026 23:42 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira
Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Seðlabanki Hollands hefur flutt 86 tonn af gullforða sínum frá Bandaríkjunum og Kanada til London í Bretlandi, vegna vaxandi ólgu í alþjóðamálum. Auðveldara verði að selja gullforðann komi til neyðarástands í Bretlandi heldur en í Bandaríkjunum eða Kanada. 3. september 2026 07:50
Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Donald Trump Bandaríkjaforseti spyr í færslu á samfélagsmiðlum hvort hann ætti að breyta heiti Hormússunds í Trumpsund. Nokkrir dagar eru síðan hann tilkynnti um breytingu á Ontaríó-vatni. 2. september 2026 17:10
Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur undirritað tilskipun þess efnis að Ontaríó-vatn beri nú heitið Ameríku-vatn. 27. ágúst 2026 17:56
Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Þrátt fyrir háværan áróður og beitingu tolla milli Bandaríkjanna og Kanada segjast greinendur vestanhafs sannfærðir um að ríkisstjórnir landanna muni komast að samkomulagi. Hvorki Bandaríkjamenn né Kanadamenn vilji í raun vera í viðskiptastríði. Donald Trump og félagar virðast þó telja sig með pálmann í höndunum. 26. ágúst 2026 23:42