Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Samúel Karl Ólason skrifar 16. september 2026 16:49 Ljósmynd af árásinni í Jórdaníu. EPA/ATEF SAFADI Bandarískir hermenn notuðu allt að og um áttatíu háþróuð og rándýr flugskeyti til að verjast nýlegri árás Írana á herstöð í Jórdaníu. Íranir notuðu um tuttugu skotflaugar við árásina og sprengjur úr þeim náðu til jarðar. Enginn bandarískur hermaður lét lífið en herþotur og aðrar flugvélar urðu fyrir skaða.
Við árásina skutu Íranir skotflaugum að herstöðinni en það eru eldflaugar sem fara gífurlega hátt til himins og falla til jarðar á mjög miklum hraða. Á meðal þeirra voru nokkrar skotflaugar sem báru klasasprengjur en það þýðir að sprengjuoddar þeirra opnast yfir skotmarkinu og dreifa fleiri sprengjum. Árásin á herstöðina í Jórdaníu var gerð á sama degi og Bandaríkjamenn réðust á nokkur írönsk olíuflutningaskip. Sjá einnig: Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skotflaugunum reyndu Bandaríkjamenn að verjast með sextíu til sjötíu flugskeytum úr Patriot-loftvarnarkerfum og á annan tug flugskeyta úr Thaad-kerfi. Heimildarmenn Wall Street Journal segja þetta samræmast heildarnotkun Bandaríkjamanna á flugskeytum í loftvarnarkerfi á einni viku á öðrum tímabilum í stríðinu gegn Íran. Myndbönd náðust af árásinni. Additional footage of tonight's massive Iranian ballistic missile attack on Muwaffaq Salti Airbase in Jordan via @kimhvik2. More than 60 PATRIOT interceptors were fired. Multiple Iranian cluster-munition MRBMs can be seen incoming. pic.twitter.com/XNMtW1s94h— OSINTtechnical (@Osinttechnical) September 8, 2026 Árásin og það hvað hún kostaði Bandaríkjamenn þykir til marks um það hvernig árásir sem þessar geta kostað þann sem þarf að verjast þeim og hvernig Íranir hafa þróað árásir sínar til að kosta Bandaríkjamenn hvað mest af þessum dýrmætu flugskeytum. Skortur er á þessum flugskeytum í heiminum en Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra í Mið-Austurlöndum hafa skotið gífurlegum fjölda gegn írönskum skotflaugum og hræódýrum drónum á árinu. Í ágúst var til að mynda birt skýrsla þar sem áætlað var að áður en stríðið gegn Íran hófst í lok febrúar hefðu Bandaríkjamenn átt 2.330 flugskeyti í Patriot og 452 í Thaad. Í lok júlí var talið að þetta væri komið niður í 759-827 flugskeyti í Patriot og 234-278 í Thaad. Hvert PAC-3 flugskeyti, sem notað eru í Patriot-kerfi, kostar um fjórar milljónir dala (fjórar milljónir dala eru 486 milljónir króna) í framleiðslu og getur farið vel yfir það, samkvæmt gögnum frá bandaríska hernum sem hafa litið dagsins ljós. Hvert flugskeyti í Thaad-kerfin er talið kosta 12,7 milljónir dala (um einn og hálfan milljarð króna). Ef við göngum út frá því að sjötíu PAC-3 og fimmtán Thaad-flugskeyti hafi verið notuð til að verjast árásinni er kostnaður við þær varnir um 470,5 milljónir dala, gróflega reiknað. Það samsvarar um 57,2 milljörðum króna. Iranian missiles are targeting U.S. bases in Jordan. pic.twitter.com/x4NwvCt8Lg— Clash Report (@clashreport) September 8, 2026 WSJ vísar í yfirlýsingu frá Sean Parnell, talsmanni varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna, sem segir að allar fregnir af skotfæraskorti Bandaríkjanna séu rangar. Bandaríski herinn sé enn sá öflugasti í heiminum. Gífurleg eftirspurn eftir flugskeytum Íranir eru sagðir hafa grafið upp fjölda skotflauga úr byrgjum sem Bandaríkjamenn gerðu árásir á fyrr á árinu og eru byrjaðir að framleiða fleiri eldflaugar og dróna. Lockheed Martin, sem framleiðir Patriot-flugskeyti, framleiddi 620 slík í fyrra en forsvarsmenn fyrirtækisins hafa sett það markmið að framleiða tvö þúsund á ári. Mikil eftirspurn er eftir þessum flugskeytum en ráðamenn í Mið-Austurlöndum, í ríkjum sem hafa orðið fyrir árásum Írana, vilja ólmir koma höndum yfir fleiri. Það sama á við um Úkraínumenn og ríki Evrópu sem hafa sent stóran hluta flugskeyta sinna til Úkraínu á undanförnum árum. Patriot-loftvarnarkerfi eru þau einu sem Úkraínumenn eiga sem geta skotið niður rússneskar skotflaugar.
Bandaríkin Hernaður Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Jórdanía Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira