UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Sindri Sverrisson skrifar 26. ágúst 2026 13:17 Holland náði lengst Evrópuþjóða á HM U20 kvenna fyrir tveimur árum, eða fjórða sæti. Getty/Hector Vivas Eftir harðorða yfirlýsingu með hótun um að sniðganga allar keppnir á vegum FIFA, vegna áætlana forsetans Gianni Infantino um að selja hlut í HM til einkaaðila, hefur UEFA, knattspyrnusamband Evrópu, nú ákveðið að draga í land.
Heimsmeistaramót kvenna, 20 ára og yngri, hefst í næstu viku og miðað við yfirlýsingar UEFA stefndi í að það mót færi fram án þátttöku Evrópuþjóða. Jafnvel eftir að Infantino hætti við áætlanirnar, sem mætt höfðu gríðarlegri andstöðu, stóðu áfram hótanir um sniðgöngu á mótum FIFA og vantraustsyfirlýsing á hendur Infantino. Nú greina miðlar á borð við The Times og Reuters hins vegar frá því að aðildarþjóðir UEFA taki þátt á HM í næstu viku, eftir að sambandið taldi sig hafa fengið tryggingu fyrir því að ekki yrði aftur farið af stað með áætlanir um að selja mót FIFA til einkaaðila. Samkvæmt heimildum Reuters stendur til að greina formönnum aðildarsambanda UEFA, þar á meðal KSÍ, frá þessu á fundi í Mónakó á morgun. „Það er ekki hægt að líkja þessu við tap hjá UEFA, heldur er með þessu verið að forðast að særa unga leikmenn og svipta þá einstöku tækifæri. Aðgerðir og krafa um breytingar munu halda áfram,“ segir heimildamaður Reuters. Þannig muni sambandið áfram vinna að því að koma Infantino frá völdum en að sú barátta muni ekki hafa áhrif á þátttöku ungra leikmanna á komandi heimsmeistaramóti U20-kvenna í Póllandi.
Deilur um Gianni Infantino Fótbolti FIFA UEFA Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Fleiri fréttir Kveðja Kristinn og Kristinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjá meira