Spáð hlýju veðri norðaustantil Atli Ísleifsson skrifar 25. ágúst 2026 07:04 Spáð er að hiti verði á bilinu ellefu til sautján stig í dag. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir vestlægri eða breytilegri átt í dag þar sem víða verða þrír til átta metrar á sekúndu og skýjað að mestu.
Veðurstofan spáir dálítilli vætu norðvestantil og austast á landinu, en lengst af þurrt í öðrum landshlutum. „Bjart veður er í kortunum á Norðausturlandi. Hiti 11 til 17 stig, hlýjast norðaustantil.Á morgun verður suðlæg átt 3-8 og dálitlar skúrir. Bjart að mestu fyrir austan, en skýjað með rigningu af og til annað kvöld. Kólnar ívið í veðri.Á fimmtudag er útlit fyrir hæga norðlæga átt. Stöku skúrir í flestum landshlutum og hiti 7 til 14 stig, mildast syðst á landinu,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Breytileg átt 3-8 m/s, en heldur hvassara vestast á landinu. Skýjað með köflum og dálitlar skúrir á víð og dreif. Bjart að mestu fyrir austan, en allvíða rigning þar um kvöldið. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Á fimmtudag: Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt og dálítil rigning af og til, en lengst af þurrt sunnan- og vestantil. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á sunnanverðu landinu. Á föstudag: Breytileg átt 3-8 og bjart með köflum, en lítilsháttar skúrir í flestum landshlutum. Kólnar aðeins í veðri. Á laugardag: Fremur hæg norðaustan- og norðanátt og skýjað með köflum. Dálitlar skúrir á víð og dreif. Hiti 6 til 13 stig að deginum, hlýjast sunnanlands. Á sunnudag: Norðaustanátt, skýjað og smáskúrir á stöku stað. Fer að rigna sunnan- og austanlands eftir hádegi. Hiti 6 til 11 stig. Á mánudag: Útlit fyrir norðaustanátt með rigningu, en úrkomuminna á vesturhelmingi landsins. Hiti 4 til 10 stig.
Veður Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Sjá meira