Brentford tók Tottenham í karphúsið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. ágúst 2026 18:30 Keane Lewis-Potter fagnar eftir að hafa komið Brentford yfir gegn Tottenham. getty/Alex Pantling Tottenham sá aldrei til sólar þegar liðið sótti Brentford heim í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Brentford vann 3-0 sigur. Tottenham hefur endað í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar undanfarin tvö ár og liðið fer ekki vel af stað á þessu tímabili. Brentford var mun sterkari aðilinn allt frá upphafsflautinu. Heimamenn náðu forystunni á 12. mínútu þegar Mamadou Sangaré lagði boltann fyrir markið á Keane Lewis-Potter sem skoraði. Á 33. mínútu juku heimamenn forskot sitt. Vitaly Janelt tók þá frákast eftir að Antonín Kinský varði skot frá Matthias Jensen og skoraði annað mark Brentford. Roberto De Zerbi, knattspyrnustjóri Spurs, gerði tvöfalda breytingu í hálfleik og vonaðist væntanlega eftir að hún hleypti nýju lífi í lið sitt. En vont varð enn verra fyrir Tottenham þegar Michael Kayode skoraði þriðja mark Brentford á 48. mínútu. Hann fylgdi þá eftir skoti Sangarés sem Kinský varði. Igor Thiago, næstmarkahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili, hefði getað komið Brentford í 4-0 á 55. mínútu en skaut í stöng úr vítaspyrnu. Fleiri urðu mörkin ekki og Brentford fagnaði öruggum 3-0 heimasigri. Næsti leikur liðsins er gegn Birmingham City í 2. umferð deildabikarsins á þriðjudaginn. Í næsta deildarleik sínum mætir Brentford Leeds United á Elland Road á sunnudaginn. Næsti leikur Tottenham er í deildabikarnum gegn Charlton Athletic á miðvikudaginn. Á laugardaginn fær Tottenham Newcastle United í heimsókn í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn Tottenham Hotspur Brentford FC