Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Ágúst Orri Arnarson skrifar 22. ágúst 2026 11:02 Nobel Mendy fagnar öðru marki Hull. George Wood/Getty Images Tímabilið hefst stórkostlega hjá nýliðum Hull, með 2-0 sigri gegn Manchester United í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Semi Ajayi og Nobel Mendy skoruðu mörkin. United-menn fóru bjartsýnir inn í fyrsta leik tímabilsins en olli sínum aðdáendum miklum vonbrigðum. Hull var hættulegra liðið og leiddi verðskuldað með tveimur mörkum í hálfleik. Miðvörðurinn Semi Ajayi varð fyrstur á blað fyrir Hull á 17. mínútu þegar hann fylgdi eftir skoti frá Oli McBurnie sem Senne Lammens varði í stöngina. Hull tvöfaldaði síðan forystuna á 38. mínútu þegar Nobel Mendy stangaði boltann í netið. Regan Slater gaf stoðsendinguna en bæði mörkin komu eftir hættulegar fyrirgjafir frá honum. Hull átti ekki skot á markið í seinni hálfleik en var samt nálægt því að setja þriðja markið, þegar tilraun Cody Drameh á 73. mínútu flaug rétt framhjá. Liðið varðist líka vel og hélt sínu marki hreinu. United ógnaði ekki nóg til að opna vörnina og varð að sætta sig við 2-0 tap. Enski boltinn Hull City AFC Manchester United