Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Sindri Sverrisson skrifar 20. ágúst 2026 14:17 Eiður Smári Guðjohnsen fór yfir margt í Sunnudagsmessunni í gær, fyrir komandi tímabil í ensku úrvalsdeildinni. Sýn Sport Eftir mikil fjárútlát í fyrrasumar hefur Liverpool haft mun hægara um sig á félagaskiptamarkaðnum í sumar. Sérfræðingar Sunnudagsmessunnar gefa félaginu falleinkunn eftir viðskipti sumarsins en enn er tími til að breyta þeirri einkunn.
Liverpool hefur fest kaup á franska miðverðinum Jérémy Jacquet frá Rennes og spænska kantmanninum Victor Munoz frá Osasuna, auk þess að fá miðvörðinn Ronald Araujo að láni frá Barcelona, en misst Mohamed Salah, Andrew Robertson og Ibrahima Konaté alla frítt. „Þetta er rosalega þunnur hópur. Það vantar enn hægri bakvörð, miðsvæðið… það vantar betra „cover“ fyrir öftustu fjóra. Svo er Salah farinn, Diaz árið á undan… það vantar meira þar inn líka,“ sagði Albert Brynjar Ingason í upphitunarþætti Sunnudagsmessunnar sem sjá má á Vísi og Sýn+. Klippa: Messan - Viðskipti Liverpool í sumar Sérfræðingar Messunnar gáfu félagaskiptum hvers félags í deildinni einkunn á bilinu 1-5 og fékk Liverpool aðeins 1 í einkunn frá Eiði Smára Guðjohnsen, og 2 frá Alberti og Hjörvari Hafliðasyni. „En um leið og Bradley Barcola klárast þá kannski fer maður í fjarkann,“ sagði Hjörvar, sannfærður um að Liverpool þurfi að styrkja liðið meira. „Þeir þurfa það. Hvern vilja þeir sem hægri bakvörð? Conor Bradley er meiddur, ætlar hann að hafa Frimpong í hægri bakverði? Svo held ég að það vanti hafsent með Van Dijk,“ sagði Hjörvar og Eiður tók þá við: „Og á hvaða stalli verður Van Dijk? Það var augljóst að hann var að gera fleiri áberandi mistök á síðasta tímabili. Nær hann að koma til baka út úr þeim? Hann verður náttúrulega ekki yngri með árunum. Þetta snýst svo mikið um hvort Van Dijk getur spilað í sínum hæsta gæðaflokki, svo að maðurinn sem kemur við hliðina á honum geti stutt hann og búið til geggjað hafsentapar. Konate gat það ekki, mér fannst hann bara ekki nógu góður, svo það er spurning hver er maðurinn sem mun „complimenta“ Van Dijk og segja: „Heyrðu Virgil, þú mátt gera mistök líka, ég bakka þig upp.““
Enski boltinn Liverpool FC Messan Mest lesið „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Enski boltinn Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Handbolti Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ Fótbolti Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Fleiri fréttir Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Sjá meira