Sjáðu kveðjumark Kjartans Kára fyrir FH og Keflavík klára KA á níu mínútum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. ágúst 2026 10:02 Kjartan Kári Halldórsson í baráttu við Ástbjörn Þórðarson í leik FH og KR í Kaplakrika í gær. vísir/guðmundur Sautjándu umferð Bestu deildar karla lauk í gær með tveimur leikjum. Nýliðar Keflavíkur kláruðu KA með þremur mörkum á níu mínútum og þrátt fyrir mikla yfirburði tókst KR ekki að vinna botnlið FH.
KR réði lögum og lofum í leiknum gegn FH í Kaplakrika og skotin buldu á marki heimaliðsins. En Jökull Andrésson var í miklum ham og varði allt hvað af tók í marki FH. Luke Rae var sá eini sem sigraðist á Jökli þegar hann kom KR yfir á 32. mínútu. Hann fór hins vegar illa með nokkur önnur færi í leiknum. KR hefndist fyrir að nýta ekki færin því á 62. mínútu jafnaði Kjartan Kári Halldórsson fyrir FH. Eftir leikinn greindi Albert Ingason frá því í Stúkunni að FH hefði samþykkt tilboð Íslandsmeistara Víkings í Kjartan Kára. Kjartan Kári virðist því vera á förum frá FH en hann kvaddi félagið með marki sem gæti reynst mikilvægt. FH-ingar hafa nú ekki tapað í átta leikjum í röð en eru þrátt fyrir það enn á botni deildarinnar. Klippa: FH - KR 1-1 Keflavík komst upp í 5. sæti deildarinnar með 3-0 sigri á KA á heimavelli. Sindri Snær Magnússon kom Keflvíkingum yfir á 27. mínútu með frábæru marki og fimm mínútum síðar skoraði Dagur Ingi Valsson eftir gott spil heimamanna. Stefan Alexander Ljubicic gerði svo þriðja mark Keflavíkur á 36. mínútu. Keflvíkingar kláruðu leikinn manni færri eftir að Eiður Orri Ragnarsson fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt á 62. mínútu. Klippa: Keflavík - KA 3-0 Mörkin úr leikjum gærdagsins í Bestu deild karla má sjá hér fyrir ofan.
Besta deild karla FH KR Keflavík ÍF KA Tengdar fréttir Uppgjörið: FH - KR 1-1 | Ótrúlegt að KR hafi ekki unnið FH og KR skildu jöfn, 1-1, í 17. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. FH er sem fyrr á botni deildarinnar og KR í þriðja sætinu. 5. ágúst 2026 21:45 „Það er skellur“ Jökull Andrésson var öflugur í marki FH er botnliðið náði í stig í 1-1 jafntefli við KR í Kaplakrika í kvöld. Hann segir einu leiðina upp fyrir hans menn sem hafa ekki tapað í síðustu átta deildarleikjum. 5. ágúst 2026 21:39 „Gjörsamlega hömruðum járnið á meðan það var heitt“ Keflavík lyfti sér upp í efri hluta deildarinnar með öflugum 3-0 sigri á KA í kvöld en Sindri Snær Magnússon, sem var fyrirliði Keflavíkur í leiknum, skoraði fyrsta mark leiksins sem breytti heldur betur gangi leiksins. 5. ágúst 2026 21:08 Uppgjörið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú mörk á níu mínútum kláraði KA Keflvíkingar héldu áfram góðu gengi sínu á grasinu í Keflavík með 3-0 sigri á KA í sautjándu umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. 5. ágúst 2026 19:52 Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni Sjá meira
Uppgjörið: FH - KR 1-1 | Ótrúlegt að KR hafi ekki unnið FH og KR skildu jöfn, 1-1, í 17. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. FH er sem fyrr á botni deildarinnar og KR í þriðja sætinu. 5. ágúst 2026 21:45
„Það er skellur“ Jökull Andrésson var öflugur í marki FH er botnliðið náði í stig í 1-1 jafntefli við KR í Kaplakrika í kvöld. Hann segir einu leiðina upp fyrir hans menn sem hafa ekki tapað í síðustu átta deildarleikjum. 5. ágúst 2026 21:39
„Gjörsamlega hömruðum járnið á meðan það var heitt“ Keflavík lyfti sér upp í efri hluta deildarinnar með öflugum 3-0 sigri á KA í kvöld en Sindri Snær Magnússon, sem var fyrirliði Keflavíkur í leiknum, skoraði fyrsta mark leiksins sem breytti heldur betur gangi leiksins. 5. ágúst 2026 21:08
Uppgjörið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú mörk á níu mínútum kláraði KA Keflvíkingar héldu áfram góðu gengi sínu á grasinu í Keflavík með 3-0 sigri á KA í sautjándu umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. 5. ágúst 2026 19:52
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“