Upp­gjörið: Valur - Stjarnan 2-3 | Örvar tryggði langþráðan og mikil­vægan sigur

Hjörvar Ólafsson skrifar
Örvar Eggertsson reyndist gulls ígildi fyrir Stjörnuna. 
Örvar Eggertsson reyndist gulls ígildi fyrir Stjörnuna.  Vísir/Anton Brink

Stjarnan fjarlægðist fallsvæði Bestu-deildar karla í fótbolta með dramatískum 3-2 sigri sínum gegn Val í 17. umferð deildarinnar á N1-vellinum að Hlíðarenda í kvöld.

Liðin hafa verið í brasi í deildinni í sumar en Valur siglir lygnan sjó um miðja deild og Stjarnan hefur verið að sogast nær og nær fallsvæðinu.

Chris Brazell á enn eftir að fagna sigri í deildinni eftir að hann tók við stjórnartaumunum hjá Valsliðinu í lok júní fyrr í sumar. Valsliðið heur undir hans stjórn tapað fyrir ÍBV, FH og Fram í síðustu þremur deildarleikjum sínum.

Þjálfaraskiptin hjá Stjörnunni um miðjan júnímánuð höfðu til þessa heldur ekki borið tilætlaðan árangur. Jón Þór Hauksson hafði halað inn fimm stigum í sex leikjum í stjórnartíð sinni í Garðabænum.

Þá var hlutskipti liðanna í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu í síðustu viku ólíkt en Valur fór áfram í viðureign sinni við Mostar Zrinjski frá Bosníu og Hersegóveníu á meðan Stjarnan var slegin út í rimmu sinni við finnska liðið Ilves.

Stjörnumenn voru með tögl og haldir framan af leiknum og Emil Atlason fékk upplagt marktækifæri strax í upphafi leiksins en hann setti boltann framhjá í dauðafæri.

Benedikt V. Warén náði svo forystunni fyrir Stjörnuna eftir rúman stundarfjórðung en mark gestanna hafði legið í loftinu áður en að því kom. Benedikt skoraði með hnitmiðuðu skoti úr vítateignum.

Valsmenn vöknuðu af værum blundi eftir að hafa lent undir og um miðjan fyrri hálfleikinn jafnaði Jónatan Inig Jónsson metin. 

Markus Lund Nakkim átti þá góða stungusendingu úr vörn Vals og Shkelzen Veseli missti boltann frá sér í móttöku sinni. Jónatan Ingi, sem hafði fram að þessu látið lítið fyrir sér fara, tók við keflinu og vippaði boltanum smekklega yfir Árna Snæ Ólafsson í marki Stjörnunnar.

Tryggvi Hrafn Haraldsson var hársbreidd frá því að koma Val yfir í uppbótartíma fyrri hálfleiks en Jakob Franz Pálsson og Dagur Orri Garðarsson sáu um að setja Tryggva Hrafn í það færi.

Inn vildi boltinn ekki og staðan var 1-1 þegar liðin gengu til búningsklefa í hálfleik og gaf það rétta mynd af þróun fyrri hálfleiksins þar sem Stjarnan byrjaði mun betur og Valur vann sig svo hægt og bítandi inn í leikinn.

Guðmundur Kristjánsson fór meiddur af velli í fyrri hálfleik og Ari Leifsson leysti hann af hólmi í hjarta varnarinnar.

Karakter hjá Stjörnunni að koma til baka

Stjörnumenn voru sterkari aðilinn í fyrri hluta seinni hálfleiks og eftir tæplega klukkutíma leik var Benedikt V. Warén nálægt því að skora sitt annað mark í leiknum þegar hann átti skot í stöngina.

Eins og í fyrri hálfleik óx Valsmönnum ásmegin þegar líða tók á seinni hálfleikinn. Myles Veldman sem kom inná sem varamaður kom Val í 2-1 með þrumufleyg sínum þegar rúmar tíu mínútur voru eftir af leiknum. 

Chris Brazell var á þessum tímapunkti farinn að eygja eftir fyrsta deildarsigri sínum. Sveinar Jóns Þórs Hauksson voru hins vegar á öðru máli og snéru taflinu sér í vil á lokamínútum leiksins. 

Þegar skammt var eftir af leiknum opnaði Árni Vilhjálmsson markareikning sinn í búningi Stjörnunnar með snotru skallamarki sínu eftir góða fyrirgöf frá Benedikt V. Warén. 

Benedikt lagði svo upp sigurmark leiksins sem kom á lokaandartökum leiksins en Örvar Eggertsson rak þá tána í boltann sem endaði í netinu. 

Stjarnan skaust með þessum sigri upp í áttunda sæti deildarinnar með sín 18 stig en liðið er nú fimm stigum á undan FH sem er í næstneðsta sæti. FH-ingar eiga þó leik til góða en þeir fá KR í heimsókn á miðvikudaginn kemur. 

Atvik leiksins

Stjörnur og skúrkar

Shkelzen Veseli var mikið í boltanum inni í miðsvæðinu, var öruggur í sínum aðgerðum og bjó til margar góðar stöður fyrir samherja sína.

Ingimar Torbjörnsson átti góðan leik í vinstri vængbakvarðarstöðunni

Birnir Snær Ingason var líflegur á kantinum hjá Stjörnunni og var iðinn við að koma sjálfum sér og liðsfélögum sínum í færi. Benedikt V. Warén skoraði mark Stjörnunnar og var þar að auki hættulegur í nokkur skipti.

Örvar Logi Örvarsson átti nokkur góð hlaup úr vinstri bakverðinum og ógnaði með fyrirgjöfum sínum.

Dómarar leiksins

Dómarar leiksins, Gunnar Freyr Róbertsson Egill Guðvarður Guðlaugsson, Eysteinn Hrafnkelsson og Gunnar Oddur Hafliðason, höfðu góð tök á þessum leik og ekkert upp á þá að klaga. Þeir fá sjö í kladdann fyrir vel unnin störf sín.

Stemming og umgjörð

Góð mæting á Hlíðarenda og stuðningsmenn liðanna létu ekki sitt eftir liggja í leit sinni að langþráðum sigri. Topp þjónusta í blaðamannastúkunni og þægilegur andi sveif yfir vötnum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira