Upp­gjörið: Breiða­blik - Þór/KA 2-0 | Ólöf Sig­ríður á skotskónum og víti for­görðum

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Breiðablik vann öruggan sigur á Þór/KA í Bestu deild kvenna.
Breiðablik vann öruggan sigur á Þór/KA í Bestu deild kvenna. Vilhelm Gunnarsson

Breiðablik heldur í við topplið FH eftir 2-0 sigur á Þór/KA á Kópavogsvelli í 13. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta.

Heimaliðið byrjaði af gríðarlegum krafti og komst yfir strax í upphafi leiks. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir lék þá listir sínar upp við endalínu, gaf fyrir markið þar sem Ólöf Sigríður Kristinsdóttir virtist ein með lífsmarki og potaði boltanum í netið.

Staðan orðin 1-0 þegar rétt rúmar þrjár mínútur voru komnar á klukkuna og fengu Blikar tækifæri til að bæta við strax örskömmu síðar. Hrafnhildur Ása fékk þá fínt skotfæri en setti boltann yfir.

Eftir að hafa varla verið með í upphafi leiks lifnaði aðeins yfir gestunum. Það var hins vegar þá sem Blikar fengu umdeilda vítaspyrnu þar sem brotið virtist vera utan teigs. Agla María Albertsdóttir fór á punktinn en boltinn lýgur ekki, spyrna hennar hitti ekki markið og staðan enn 1-0.

Bæði lið komust í fínar stöður en engin afgerandi dauðafæri litu dagsins ljós fyrr en gestirnir fengu vítaspyrnu. Elín Helena Karlsdóttir fékk boltann þá í hendina eftir klafs í kjölfar hornspyrnu. Margrét Árnadóttir fór á punktinn en spyrna hennar fór í stöngina og staðan því enn 1-0 þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks.

Olla, Ólöf Sigríður, gerði hins vegar svo gott sem út um leikinn snemma í síðari hálfleik. Eftir smá klafs fékk hún opna flugbraut að marki sem hún nýtti til fullnustu. Þar sem engin fór í hana lét hún vaða úr fínu færi rétt eftir að hafa hlaupið með boltann inn á vítateig og söng boltinn í netinu, niðri í fjær. Þar með var staðan orðin 2-0 og róðurinn þungur fyrir Akureyringa.

Olla var nálægt því að fullkomna þrennu sína þegar skalli hennar fór í slánna þegar tæpur stundarfjórðungur var til leiksloka. Var þetta hennar síðasti leikur hér á landi í ár þar sem hún er á leið til Bandaríkjanna á nýjan leik þar sem hún stundar nám við Harvard-háskóla.

Birgitta Rún Finnbogadóttir fékk svo besta færi gestanna skömmu síðar en Taylor Kane í marki Breiðabliks sá við henni.

Lokatölur á Kópavogsvelli 2-0 sem þýðir að Breiðablik er í 2. sæti með 30 stig, aðeins einu stigi á eftir toppliði FH sem vann í Vestmannaeyjum. Þór/KA er hins vegar með 12 stig, aðeins stigi frá fallsæti.

Atvik leiksins

Vítaspyrnan sem gestirnir fengu undir lok fyrri hálfleiks. Í stað þess að vera með jafna stöðu 1-1 í hálfleik voru gestirnir marki undir. Því var svo annað mark Blika í raun náðarhöggið.

Stjörnur og skúrkar

Ólöf Sigríður er án efa stjarna þessa leiks enda skoraði hún bæði mörk Breiðabliks og er nú með sjö mörk í 13 leikjum í Bestu deildinni. Þá var Hrafnhildur Ása virkilega spræk og vægast sagt skemmtilegt að horfa á hana spila.

Hjá gestunum var Birgitta Rán hvað best og komst í góðar stöður. Það vantaði hins vegar þessa yfirvegun þegar komið var að því að gefa fyrir markið eða skjóta.

Dómarinn

Ágætlega dæmdur leikur þó svo að vítaspyrnan sem Breiðablik fékk í fyrri hálfleik hafi verið á mörkunum.

Stemning og umgjörð

Ágætlega mætt í Kópavoginn en stuðningsfólk heimaliðsins hefði þó mátt láta betur í sér heyra. Þrátt fyrir fína mætingu verður umræðan um sumarfrí í Bestu deildunum aðeins háværari þar sem allir og amma þeirra eru annað hvort út á landi eða erlendis um þessar mundir.

Væri til í Stærri hóp

Ian Jeffs, þjálfari Breiðablik, væri til í að hafa breiðari leikmannahópVilhelm Gunnarsson

Ian Jeffs var sáttur með sigur síns liðs í kvöld en taldi það þó oft hafa spilað betur. Hann hrósaði Þór/KA og talaði um að Blikar hefðu verið heldur sloppy.

Þá sagði hann að það væri alltaf slæmt að missa leikmann eins og Ollu, hvað þá þegar hópurinn er jafn þunnur og raun ber vitni. Jeffs ýjaði að því í viðtali eftir leik [sem penni gleymdi að taka upp] að hann vildi fleiri leikmenn en það væri ekki í boði.

„Ef maður er ekki efstur á maður alltaf að horfa upp“

Aðalsteinn Jóhann Friðriksson þjálfari Þór/KA, furðaði sig á að sitt lið hafi ekki skorað mark.Guðmundur/Vísir

„Við breyttum til, reyndum að koma þeim á óvart og hristum aðeins upp í þessu hjá okkur. Fengum mark á okkur í upphafi leiks, sem er ekki nógu gott. Í kjölfarið fylgdi ekki alveg nógu góður kafli en mögulega þegar þær klikka á vítinu kemur orka með okkur. Við klárum fyrri hálfleikinn vel og svekktur að fara ekki með 1-1 inn í hálfleikinn,“ sagði Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þórs/KA, beint eftir leik og hélt svo áfram.

„Seinna markið er dálítið högg fyrir okkur. En aftur á móti þá gerum við þetta að leik og eiginlega með ólíkindum að við höfum ekki skorað í dag.“

Aðalsteinn Jóhann talaði um að sitt lið þyrfti að vera on it frá fyrstu mínútu í dag. Það var ekki raunin.

„Við náum því ekki og erum litlar í okkur framan af leik. Það er ekki nógu gott. Það eru jákvæðir punktar sem við tökum áfram með okkur úr þessum leik, það er ekki spurning. Erfiður útivöllur og við svekktar að vera ekki með jafna stöðu í hálfleik og svo svekkjandi að ná ekki að gera þetta að leik aftur í seinni hálfleik. Blikar eru góðar, eru að keppa um að vera Íslandsmeistarar. Við þurfum að taka það sem var gott út úr þessum leik en umfram allt setja leikinn bakvið okkur og höldum áfram því það eru mikilvægir leikir framundan.“

Þór/KA er í gríðarlega jöfnum pakka í neðri hluta deildarinnar.

„Ef maður er ekki efstur á maður alltaf að horfa upp. Fara í næsta leik til að vinna hann. Við eigum ekki að vera horfa of mikið í önnur úrslit eða vera spá of mikið í öðrum liðum. Eigum bara að hugsa um okkur sjálfar, fara í hvern leik til að vinna hann og ná í sem flest stig til að við endum sem efst í deildinni.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira