Helgi Sigurðsson: ,,Mér fannst við vinna þennan leik mjög sanngjarnt” Theódóra Guðný Vilhjálmsdóttir skrifar 29. júní 2026 22:41 Helgi Sigurðsson, aðstoðarþjálfari Fram, var hæstánægður eftir leik kvöldsins. Vísir/Diego Helgi Sigurðsson, aðstoðarþjálfari Fram, var afar sáttur eftir 2-0 sigur liðsins gegn ÍA á ELKEM-vellinum á Akranesi í kvöld. Framarar voru sterkari aðilinn frá upphafi, skoruðu tvö mörk á fyrstu 23 mínútunum og styrktu stöðu sína í þriðja sæti Bestu deildarinnar. „
Tilfinningin er bara mjög góð. Það er frábært að koma hingað og taka þrjú stig. Mér fannst við vinna þennan leik mjög sanngjarnt,“ sagði Helgi eftir leik. Fram komst í 2-0 með tveimur mörkum frá Atla Þór Jónassyni í fyrri hálfleik og að mati Helga lagði góða byrjunin grunninn að sigrinum. „Við byrjuðum leikinn af miklum krafti, náðum því forskoti sem við vildum ná og síðan sigldum við þessu heim á mjög fagmannlegan hátt. Ég er mjög ánægður með alla strákana.“ Framarar héldu ÍA frá hættulegum færum í síðari hálfleik og voru aldrei í teljandi vandræðum með að verja tveggja marka forystuna. Atli Þór Jónasson, sem skoraði bæði mörk Framara, þurfti að fara af velli vegna meiðsla í síðari hálfleik. Helgi sagði þó ekkert benda til þess að um alvarleg meiðsli væri að ræða. „Nei, það held ég ekki. Hann fékk eitthvað smá högg á kálfann, ekkert alvarlegt. Við gerum bara ráð fyrir því að hann verði ferskur í næsta leik, eins og aðrir leikmenn,“ sagði Helgi Sigurðsson í lokin.
Besta deild karla Fram Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Leik lokið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Sjá meira