Forseti Suður-Kóreu húðskammar „vanhæfan“ landsliðsþjálfara Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. júní 2026 15:05 Hong Myung-bo var fyrirliði Suður-Kóreu þegar liðið endaði í 4. sæti á HM á heimavelli 2002. Hann tók við landsliðinu í annað sinn fyrir tveimur árum en þykir valtur í sessi eftir vonbrigðin á HM í Norður-Ameríku. getty/Carl Recine Lee Jae Myung, forseti Suður-Kóreu, var afar ósáttur við að karlalandsliði þjóðarinnar í fótbolta hafi mistekist að komast upp úr riðlakeppninni á HM. Hann kennir landsliðsþjálfaranum um ófarirnar og vill að íþróttamálaráðuneyti Suður-Kóreu láti rannsaka frammistöðu landsliðsins á HM.
Í nótt varð endanlega ljóst að Suður-Kórea kæmist ekki í 32-liða úrslit heimsmeistaramótsins. Suður-Kóreumenn eygðu von um að vera eitt af þeim átta liðum sem voru með bestan árangur í 3. sæti riðlanna tólf á HM og komast þannig áfram en úrslit annarra leikja voru þeim óhagstæð. Suður-Kórea vann Tékkland, 2-1, í fyrsta leik sínum í A-riðli heimsmeistaramótsins en tapaði svo fyrir Mexíkó og Suður-Afríku með einu marki gegn engu. Vonbrigðin voru mikil heima fyrir og Lee var meðal þeirra sem lögðu orð í belg um frammistöðu suður-kóreska liðsins á HM. Og hann dró hvergi af sér. Niðurstaðan augljós „Ég er ekki bara undrandi á þessari óvæntu niðurstöðu heldur er ég gjörsamlega furðu lostinn,“ skrifaði Lee á X. „Enn og aftur hefur sannast að ákvarðanir sem varða einstaklinga eru allt. Þegar „við á móti þeim“ er sett ofar hæfni og vanhæfur einstaklingur er valinn sem leiðtogi er niðurstaðan augljós.“ Lee Jae Myung hefur gengt embætti forseta Suður-Kóreu frá því í byrjun júní á síðasta ári.getty/Massimo Valicchia Öllum mátti ljóst vera að Lee átti þarna við Hong Myung-bo, þjálfara Suður-Kóreu. Hann hefur fengið mikla gagnrýni undanfarna daga, meðal annars fyrir að byrja með Son Heung-min, skærustu stjörnu suður-kóreska liðsins, á bekknum í leiknum gegn Suður-Afríku. Persónulegur ávinningur ofar almannahag „Ástæðan fyrir því að slíkar klúðurslegar ráðningar – þar sem ekki er gerður greinarmunur á almanna- og einkahagsmunum og persónulegur ávinningur er settur ofar almannahag – eru mögulegar er sú að það er ómögulegt eða erfitt að hafa eftirlit með, kanna og draga þá sem ráða til ábyrgðar,“ skrifaði Lee. „Mistökin við að komast ekki áfram, sem hafa valdið almenningi vonbrigðum, virðast vera afleiðing af skipulags- og starfsmannamistökum. Ég bið menningar-, íþrótta- og ferðamálaráðuneytið að rannsaka ítarlega nákvæmlega aðstæður þessa atviks, greina orsakir þess, þróa aðgerðir til að koma í veg fyrir að það endurtaki sig og tryggja að úrbætur verði gerðar.“ Hong stýrði suður-kóreska landsliðinu á árunum 2013-14 og tók svo aftur við því fyrir tveimur árum. Hann hefur stýrt landsliðinu í 26 leikjum síðan hann var ráðinn þjálfari þess á ný í júlí 2024. Fimmtán af þessum leikjum hafa unnist, fimm endað með jafntefli og sex tapast.
HM 2026 í fótbolta Suður-Kórea Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram Sjá meira