Fótbolti

„Alltaf skemmti­legt að taka á móti Víkingum heima“

Andri Broddason skrifar
Ólafur Ingi Skúlason er fullur tilhlökkunar fyrir leiknum gegn Víkingi í kvöld.
Ólafur Ingi Skúlason er fullur tilhlökkunar fyrir leiknum gegn Víkingi í kvöld. Vísir / Diego

Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, er bjartsýnn fyrir leikinn gegn Víkingum í kvöld. Stórleikir eru skemmtilegustu leikirnir og eru leikmennirnir fullir tilhlökkunar.

Víkingur fer í heimsókn í Kópavoginn í kvöld þar sem liðin mætast í tólftu umferð Bestu deildar karla. Víkingur er sem stendur í efsta sæti deildarinnar á meðan Breiðablik er í því fjórða.

„Þetta verður spennandi og skemmtilegur leikur. Við erum að mæta hörkuliði sem er á mikilli siglingu,“ segir Ólafur Ingi og bætir við að leikmönnirnir hlakki til að spila leikinn.

„Allir leikir eru mikilvægir en saga liðanna síðustu ár setur extra mikið krydd á leikinn. Það er alltaf skemmtilegt að taka á móti Víkingum heima.“

Breiðablik og Víkingur eiga að mætast aftur á sunnudaginn á Kópavogsvelli og því eru aðeins þrír dagar milli leikja. Sá leikur er í Mjólkurbikarnum en Ólafur segir að seinni leikurinn hafi lítil áhrif á þann fyrri.

„Okkar mantra hefur alltaf verið að horfa bara einn leik fram í tímann, þá er leikurinn á sunnudaginn aðeins fyrir aftan. Við höfum það bak við eyrað að það er stutt milli leikja en fókusinn er fyrst og fremst á leikinn í kvöld.“

Davíð Ingvarsson og Kristófer Ingi Kristinsson voru ekki með Breiðablik gegn KA í síðustu umferð. Ólafur Ingi gat samt ekki staðfest að þeir yrðu klárir í leikinn í kvöld.

„Það eru ansi margir leikmenn á meiðslalistanum. En menn eru að skríða saman og þetta eru nokkrir með smávægileg meiðsli. Við endurheimtum eitthvað og sjáum hversu mikið þeir geta tekið þátt í kvöld ef þeir geta tekið þátt yfirhöfuð.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×