Varnar­múr Gana hélt gegn Eng­landi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Harry Kane svekktur eftir að hafa skotið yfir úr dauðafæri í leik Englands og Gana.
Harry Kane svekktur eftir að hafa skotið yfir úr dauðafæri í leik Englands og Gana. getty/Tom Weller

England fann ekki leiðina í gegnum þétta vörn Gana í leik liðanna í Foxborough í L-riðli heimsmeistaramótsins í kvöld. Lokatölur 0-0.

Englendingar sýndu góða sóknartakta í 4-2 sigrinum á Króötum í fyrsta leik sínum á HM en mættu meiri mótspyrnu frá Ganverjum í kvöld.

Enska liðið var miklu meira með boltann en gekk illa að opna ganversku vörnina. England átti aðeins þrjú skot á mark Gana í leiknum og Benjamin Asare átti nokkuð náðugan dag í marki ganverska liðsins. Hann þurfti þó að taka á honum stóra sínum undir lok leiks þegar hann varði skot Bukayos Saka vel.

Gana átti fáar sóknir en var þó nálægt því að skora þegar Prince Adu slapp í gegnum vörn Englands á 79. mínútu. Skot hans fór hins vegar í Antoine Semenyo sem var rangstæður.

Skömmu síðar átti Nico O'Reilly skalla í slána á marki Gana. Boltinn féll fyrir Harry Kane sem skaut yfir. Þetta reyndust hættulegustu færi Englands í leiknum.

England og Gana eru bæði með fjögur stig í L-riðlinum. Í lokaumferð riðlakeppninnar mætir England Panama og Gana Króatíu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira