„Ef afi minn væri með hjól þá væri hann bíll“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júní 2026 14:03 Hinn meiddi Neymar hlustar hér á þjóðsönginn fyrir vináttulandsleik Brasilíu og Panama í nótt. Getty/Wagner Meier Carlo Ancelotti, þjálfari Brasilíu, ætlar ekki að skipta hinum meidda Neymar út úr HM-hópnum sínum.
Neymar hefur verið frá keppni vegna meiðsla í hægri kálfa síðan 17. maí og hefur ekki spilað fyrir Brasilíu síðan hann sleit krossband í október 2023. Ancelotti valdi hann samt í HM-hóp Brasilíu í síðustu viku. Santos hafði greint Neymar með bólgu í kálfanum en var fullviss um að leikmaðurinn yrði klár í slaginn í þessari viku. Frekari rannsóknir þegar hann gekk til liðs við brasilíska landsliðið leiddu í ljós að hann er með annars stigs vöðvatognun og verður frá í tvær til þrjár vikur í viðbót. Þegar Ancelotti var spurður á laugardag hvort hann hefði valið Neymar ef hann hefði vitað að meiðslin væru annars stigs tognun frekar en bólga, svaraði hann með þekktum ítölskum brandara. „Ef afi minn væri með hjól þá væri hann bíll,“ sagði Ancelotti. „Frá því ég ákvað hópinn var Neymar í 26 manna hópnum.“ Carlo Ancelotti ao responder a pergunta deu repórter na coletiva sobre Neymar: “Se meu avô tivesse rodas, seria um carro.”📽️@CazeTVOficial pic.twitter.com/WXGiKwvHzj— LIBERTA DEPRE (@liberta___depre) May 30, 2026 Ancelotti sagði að brasilíska knattspyrnusambandið hefði tekið yfir læknismál Neymars eftir að leikmaðurinn hafði þegar verið valinn í 26 manna hópinn. Ancelotti ítrekaði að hann byggist við því að Neymar yrði áfram hluti af HM-áætlunum Brasilíu og sagði að framherjinn gæti enn verið tiltækur síðar í riðlakeppninni, jafnvel þótt hann missi af opnunarleik liðsins gegn Marokkó þann 13. júní. „Við héldum að hann gæti verið klár í fyrsta leikinn á HM,“ sagði hann. „Ef hann verður ekki klár í fyrsta leikinn verður hann klár í þann seinni. Þannig að við erum ekki í neinum vafa um það. Ég ætla ekki að gera neinar breytingar. Þeir 26 leikmenn sem valdir voru eru þeir sem munu spila á HM,“ sagði Ancelotti. Ítalski þjálfarinn sagðist einnig hafa rætt við Neymar um hlutverk hans í liðinu og bætti við að framherjinn legði hart að sér til að ná sér aftur. Eftir að hafa hafið HM-keppnina gegn Marokkó mun Brasilía mæta Haítí 18. júní og Skotlandi 23. júní.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Sport Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Fótbolti „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ Fótbolti Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Handbolti Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Fleiri fréttir Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Neitar að hafa tekið þátt í mannráni „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Sjá meira