HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Valur Páll Eiríksson skrifar 29. maí 2026 09:01 Sergio Goycochea er hér á milli Juan Ernesto Simon og Diego Maradona fyrir úrslitaleikinn á HM 1990. Alessandro Sabattini/Getty Images Þrettán dagar eru þar til HM í fótbolta hefst vestanhafs. Vísir mun daglega rifja upp skemmtilegar minningar frá fyrri mótum fram að upphafsflauti. Byrjum á argentínskum markverði sem pissaði á völlinn.
Sergio Goycochea var varamarkvörður argentínska landsliðsins á HM 1990 á Ítalíu. Hann hafði aðeins spilað einn landsleik fram að mótinu en fékk óvæntan séns þegar aðalmarkvörðurinn Nery Pumpido fótbrotnaði í öðrum leik Argentínu á mótinu gegn Sovétríkjunum. Argentína fór naumlega upp úr riðlinum eftir tap fyrir Kamerún, sigur á Sovétríkjunum og jafntefli við Rúmeníu. Brasilía vannst í 16-liða úrslitum 1-0 þar sem Goycochea hélt hreinu og hann var hetjan í sigrum á Júgóslavíu í 8-liða úrslitum og heimamönnum Ítala í undanúrslitum. Báðir þeir leikir réðust í vítaspyrnukeppni og einkar sérstök athöfn markvarðarins í aðdraganda þeirra keppna vakti athygli. Furðuleg hjátrú kappans var á þá leið að hann þyrfti að létta á sér fyrir vítaspyrnukeppnir. Goycochea var ekki heimilt að yfirgefa völlinn fyrir vítaspyrnukeppnina og þurfti því að gera þarfir sínar á vellinum. Liðsfélagar hans mynduðu um hann hring á meðan hann kastaði þvagi á völlinn. Goycochea ver víti frá Roberto Donadoni er Argentína sló heimamenn Ítala út í undanúrslitum á HM 1990.Ross Kinnaird/EMPICS via Getty Images Þetta virkaði gegn bæði Júgóslavíu og Ítalíu þar sem vörslur hans komu Argentínu áfram. Allt stefndi í vítaspyrnukeppni í úrslitaleiknum við Vestur-Þýskaland í úrslitaleiknum en þeir þýsku fengu vítaspyrnu þegar fimm mínútur voru til leiksloka. Goycochea var nálægt því að verja spyrnu Andreasar Brehme en sú fór inn. Ef til vill var það vegna þess að argentínska markverðinum tókst ekki að framkvæma óhefðbundna pissuathöfn sína fyrir það. Hjátrúin viðhélt sér það sem eftir lifði af ferli Goycochea og hann varð eftir mótið aðalmarkvörður Argentínu næstu árin. Hann var hluti af liðinu sem vann Suður-Ameríkukeppnina, Copa America, árin 1991 og 1993 og Álfukeppnina árið 1992. Hann fór þá aftur á HM með liðinu árið 1994 en það mót var mikil vonbrigði er sterkt lið Argentínu féll úr leik fyrir Rúmeníu í 16-liða úrslitum. Goycochea var að vísu varamarkvörður á því móti og sá sína menn því falla úr keppni af bekknum í Bandaríkjunum.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Sport Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Fótbolti „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ Fótbolti „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Íslenski boltinn Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Handbolti Fleiri fréttir Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Neitar að hafa tekið þátt í mannráni „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Sjá meira