Þroskamerki fyrir KR: „Það sem hefur vantað er andlegur styrkur Valur Páll Eiríksson skrifar 6. apríl 2026 20:04 Aron Sigurðarson fagnar marki sínu Anton Brink/Vísir Aron Sigurðarson skoraði tvö marka KR í góðum 4-2 sigri á Val í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta í dag. Hann segir sigurinn vera þroskamerki fyrir hans menn. „
Þetta var bara drulluerfiður leikur og þetta er drullugott lið. Við gerðum þetta að aðeins meiri leik en þetta þurfti að vera. Mér fannst þetta full tense þegar þeir minnkuðu í 3-1. En þetta var professional,“ segir Aron við Vísi eftir leik. „Við erum að reyna að klífa upp stigann að verða frábært lið, að vinna Valsmenn í alvöru leik sýnir andlegan styrk og það hefur ekki gerst síðan ég kom hingað. Við þurftum að þjást aðeins og verja markið okkar, það er annað,“ „Mér finnst við vera að taka gott skref sem lið. Það er bara frábært að fara áfram í bikar og slá út mjög gott Valslið,“ segir Aron. Líkt og hann nefnir hefur KR ekki tekist að vinna Val í deild eða bikar frá því að hann kom þangað fyrir tveimur árum síðan. Ákveðinni vörðu sé náð og sigurinn sé þroskamerki. „Það sem hefur vantað í þetta lið er andlegur styrkur og að mæta í hvern einasta leik eins, ekki velja okkur leiki þar sem við erum 100 prósent. Ef við mætum í alla leiki svona erum við flottir,“ segir Aron. Sigurinn var síst of stór og KR hefði getað skorað fleiri mörk. Sárabótamark Bjarna Marks Antonssonar fyrir Val undir lokin gefur þá ef til vill ranga mynd. „Mér fannst leikurinn alltaf vera okkar, nema í seinni hálfleik komu 10 mínútur hér og þar en þetta er gegn liði sem varð í öðru sæti í fyrra og hvert einasta lið í þessari Bestu deildinni mun ná augnablikum gegn okkur og þá þurfum við að geta þjáðst í gegnum það. Við gerðum það vel í dag og vorum þéttir og flottir varnarlega og almennt flottir í þessum leik,“ segir Aron sem mátti sjá að naut sín vel í flæðandi sóknarleik KR-inga í dag. „Við erum bestir þegar við njótum okkar, erum frjálsir og orkumiklir. Þá erum við helvíti góðir. En við þurfum að mæta svona í hvern einasta leik. Það er það sem við þurfum að bæta.“
KR Mjólkurbikar karla Valur Besta deild karla Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira