KR - Valur 4-2 | Síst of stór sigur og KR áfram Valur Páll Eiríksson skrifar 6. apríl 2026 20:15 Aron Sigurðarson skoraði tvö í dag. KR vann 4-2 sigur á Val í 32-liða úrslitum í Mjólkurbikar karla í fótbolta í Egilshöll síðdegis. Sigurinn var síst of stór þar sem KR var með öll völd á vellinum stærstan part. KR-ingar hófu leikinn kröftuglega gegn Valsmönnum sem áttu hreinlega ekki roð í orrahríð KR, hvort sem var oddaflugið í sóknarleiknum eða pressan sem KR setti á öftustu línu Vals þegar þeir svarthvítu vörðust. Það tók KR aðeins sex mínútur að brjóta ísinn þegar Eiður Gauti Sæbjörnsson potaði boltanum yfir línuna er hann fylgdi eftir eigin skalla að marki. Finnur Tómas Pálmason tvöfaldaði forystuna á tuttugustu mínútu og var spurningin hreinlega hversu stór sigur KR-inga yrði gegn Valsliði sem hafði vart farið yfir miðju á fyrri helmingi fyrri hálfleiks. Valsmenn gerðu taktískar breytingar og uppskáru skyndisóknir sem hefðu getað orðið að mörkum en heilt yfir voru KR-ingar töluvert líklegri til að bæta við en Valur til að minnka muninn. Staðan var 2-0 í hálfleik og möguleikar opnir fyrir Valsmenn ef þeir kæmu marki inn snemma. Jónatan Ingi Jónsson, sem er að koma upp úr meiðslum, kom inn í hálfleik fyrir Dag Orra Garðarsson sem var aðeins treyst til að spila 45 mínútur vegna eigin meiðsla í vetur. Það tók KR aðeins 50 sekúndur að breyta stöðunni í 3-0. Þar var að verki Aron Sigurðarson sem vippaði boltanum snyrtilega yfir Frederik Schram í marki Vals er hann fylgdi eftir eigin skoti í kjölfar þess að KR hafði unnið boltann ofarlega á vellinum. Skömmu síðar fór Jónatan Ingi meiddur af velli eftir slæmt misstig og gæti verið frá um hríð. Val tókst að minnka muninn eftir fína sókn á 66 mínútu þar sem Jakob Franz Pálsson, fyrrum leikmaður KR, skallaði boltann inn eftir skalla frá Tryggva Hrafni Haraldssyni fyrir markið. Staðan 3-1 og tíu mínútum síðar ætlaði allt um koll að keyra. Arnar Freyr Ólafsson, markvörður KR, fór í skrautlegt úthlaup og lenti í samstuði við Valsarann Tryggva Hrafn Haraldsson á miðjum velli. Arnar fór í boltann en einnig heldur harkalega á blindu hliðina á Tryggva sem lá óvígur eftir vænt högg. Ekkert var dæmt og leikurinn hélt áfram en Valsmenn vildu aukaspyrnu og jafnvel rautt spjald á Arnar. Liðin skiptust á að sækja en Aron Sigurðarson gerði út um leikinn með sínu öðru marki á 85. mínútu eftir hreint stórkostlegt spil KR-inga upp völlinn sem lauk með því að Aron lagði boltann í netið af stuttu færi eftir stoðsendingu Finns Tómasar Pálmasonar. Fimm mínútum fyrr hafði Frederik Schram bjargað stórkostlega í tvígang úr dauðafæri frá KR. Bjarni Mark Antonsson skoraði sárabótamark í uppbótartíma sem var af laglegri gerðinni en segja má að 4-2 sigur KR hafi síst verið of stór. Fín innspýting fyrir svarthvíta fyrir komandi átök í Bestu deildinni en Valsmenn skemmra á veg komnir með sitt verkefni. KR verður í pottinum í 16-liða úrslitum í vikunni en Valsmenn, sem fóru í bikarúrslit í fyrra, hafa lokið keppni í ár. Óskar Hrafn: Mikilvægt að bæta það versta Óskar Hrafn var kátur og sá jákvæðar hliðar á því sem var neikvætt í leiknum.Vísir/Diego Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var ánægður með sína menn eftir leik og leit á jákvæðar hliðar þess að KR hafi misst tök á leiknum um tíma í síðari hálfleik. „Ég held að við höfum fengið að langstærstum hluta það sem vildum og þurftum að fá rétt fyrir mót. Við fengum feykilega kröftuga frammistöðu í 60 mínútur. Svo duttum við niður og misstum stjórn á leiknum, og bara hrós til Valsmanna að koma til baka, en stemningin varð pínu rafmögnuð og spenna í loftinu þó þeir væru ekki að skapa sér færi af ráði,“ „Þá var svona tilfinning yfirvofandi: „Ef þeir ná næsta marki, hvað gerist þá?“ Þetta er eitthvað sem við höfum ekki lent í í vetur og ég held þetta hafi verið frábær lærdómur fyrir liðið,“ „Við sáum bestu útgáfu af KR-liðinu í leiknum, við sáum líka útgáfu af KR-liðinu sem fellur niður verður ragt og missir aðeins stjórn en nær að berjast í gegnum það og við erum áfram í bikarnum. Það er eiginlega ekki hægt að kvarta yfir neinu. Þetta er frábær undirbúningur fyrir Bestu deildina,“ segir Óskar í samtali við Vísi eftir leik. „Auðvitað áttum við ekki að missa leikinn niður og missa stjórnina. Það var engin ástæða til þess. En úr því sem komið var þá höfðum við líka gott af því að finna að það er hægt að lifa af þó þú sért ekki með 100 prósent stjórn,“ „Ég held að þetta sé merki þess að KR-liðið sé að þroskast og ég er bara býsna glaður með þetta,“ segir Óskar jafnframt. Hvað gefur þetta ykkur þá fyrir komandi átök í Bestu deildinni? „Þetta gefur okkur það að þegar við erum fullhlaðnir af orku, þegar það er flæði í liðinu og menn gera hlutina hratt, þá erum við mjög erfiðir við að eiga og ég tel að þá getum við unnið öll lið. En frá í fyrra þurfum við að bæta botn levelið okkar. Við þurfum að bæta verstu frammistöður okkar, við þurfum að vera betri í því að þjást og berjast fyrir lífi okkar. Ég sá svolítið af því í dag. Við sjáum við sjö leikmenn í báðum liðum fá krampa,“ „Þannig að ég fer mjög spenntur inn í þetta mót. Ég ætla ekki að segja að KR-liðið sé einhver óstöðvandi lest sem er ekki hægt að stoppa, það er alls ekki þannig. En við höfum sýnt það að við erum gott lið en við erum raunverulega bara eins gott lið og hausinn okkar leyfir okkur að vera held ég,“ „Ég get ekki beðið eftir leiknum á sunnudaginn. Það má bara aðeins fara að lægja og hætta að snjóa því að einn þriðji af vellinum okkar er ekki upphitaður og ég held við eigum ekki nægilega mikið salt til að halda honum yfir frostmarki í marga daga,“ segir Óskar léttur. Mjólkurbikar karla KR Valur Íslenski boltinn