Gengst nú við að gaspra í Rússa Kjartan Kjartansson skrifar 24. mars 2026 13:41 Péter Szijjártó, utanríkisráðherra Ungverjalands, er ekki treyst fyrir upplýsingum sem tengjast hagsmunum Rússa innan Evrópusambandsins. Hér sést hann á ráðstefnu íhaldsmanna um helginni. Vísir/EPA Utanríkisráðherra Ungverjalands viðurkennir nú að hann ræði við rússnesk stjórnvöld í kringum leiðtogafundi á vegum Evrópusambandsins. Hann hélt því fyrst fram að fréttir um slíkt væru falskar.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur krafið Ungverja skýringa eftir að bandaríska blaðið Washington Post greindi frá því um helgina að Péter Szijjártó, utanríkisráðherra Ungverjalands, hefði átt það til að hringja í Sergei Lavrov, rússneskan starfsbróður sinn, í fundarhléum á leiðtogafundum hjá ESB. Szijjártó kallaði þetta „falsfréttir“ og kollegi hans sem er yfir Evrópumálum í ríkisstjórn Viktors Orbán tengdi þær við örvæntingu vegna þess að Orbán væri að ná vopnum sínum í kosningabaráttu fyrir kosningar sem fara fram í næsta mánuði. Nú hefur Szijjártó hins vegar vent kvæði sínu í kross og gengist við því að ræða reglulega við rússneska ráðamenn fyrir og eftir leiðtogafundi í Evrópu. „Ég ræði ekki aðeins við rússneska utanríkisráðherrann en einnig við þann bandaríska, tyrkneska, ísraelska, serbneska og aðra bandamenn okkar fyrir og eftir fundi leiðtogaráðs Evrópusambandsins,“ sagði Szijjártó á kosningafundi í gærkvöldi, að sögn evrópska blaðsins Politico. Ákvarðanir sem teknar væru á vettvangi Evrópusambandsins hefðu áhrif á tengsl og samstarf Ungverjalands við önnur ríki utan sambandsins. Evrópskir ráðamenn eru sagðir hafa brugðist við grunsemdum um að ungverskir ráðamenn lækju viðkvæmum upplýsingum í Rússa með því að takmarka hverju þeir deildu á fundum. Þá hefðu þeir í auknum mæli tekið upp á því að funda í minni hópum til þess að halda trúnaði um vissar upplýsingar. Þýskir þingmenn og evrópskir embættismenn eru einnig sagðir hafa áhyggjur af aðgangi þingmanna Valkosts fyrir Þýskaland, fjarhægriflokks í Þýskalandi, að þúsundum trúnaðarskjala Evrópusambandsins sem þær gætu lekið til Rússa. Á meðal slíkra gagna eru minnisblöð eftir fundi sendiherra aðildarríkjanna þar sem rætt er um stuðning við Úkraínumenn og fjárvetingar til þeirra sem eru fjármagnaðar með frystum fjármunum Rússa í Evrópu.
Ungverjaland Evrópusambandið Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Tengdar fréttir Sakar Orbán og félaga um landráð Péter Magyar, sem kannanir benda til að sé líklegur til að velta Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, úr sessi í komandi kosningum þar í landi, segir að meintar uppljóstranir milli Búdapest og Moskvu um leynilegar upplýsingar Evrópusambandsins verði rannsakaðar. Kannanir benda til þess að flokkur Magyars geti sigrað Fidesz-flokk Orbáns í þingkosningum sem fara fram í næsta mánuði. 23. mars 2026 19:10 Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Fleiri fréttir Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Sjá meira
Sakar Orbán og félaga um landráð Péter Magyar, sem kannanir benda til að sé líklegur til að velta Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, úr sessi í komandi kosningum þar í landi, segir að meintar uppljóstranir milli Búdapest og Moskvu um leynilegar upplýsingar Evrópusambandsins verði rannsakaðar. Kannanir benda til þess að flokkur Magyars geti sigrað Fidesz-flokk Orbáns í þingkosningum sem fara fram í næsta mánuði. 23. mars 2026 19:10