Arteta sér ekkert eftir valinu: „Hver sem er getur gert mistök“ Sindri Sverrisson skrifar 22. mars 2026 20:29 Mikel Arteta varð að horfa á eftir deildarmeistaratitlinum í hendur síns gamla læriföður. Getty/Chris Brunskill Mikel Arteta, stjóri Arsenal, kvaðst ekki sjá eftir því að hafa valið markvörðinn Kepa Arrizabalaga í byrjunarliðið í úrslitaleiknum við Manchester City í enska deildabikarnum í dag.
Kepa gerði sig sekan um slæm mistök þegar City komst yfir í leiknum og Arsenal tapaði á endanum 2-0. Spánverjinn hafði varði mark Arsenal í keppninni og Arteta treysti honum áfram í úrslitaleiknum í dag. „Ég myndi gera það aftur. Hann átti skilið að spila þennan leik og hefur verið stórkostlegur fyrir okkur. Mistök eru hluti af fótbolta og hver sem er getur gert þau,“ sagði Arteta við Sky Sports eftir leik. Arsenal hefur beðið lengi eftir titli og þarf að bíða áfram eftir tapið í dag en útlitið er afar gott hjá liðinu í ensku úrvalsdeildinni auk þess sem það er komið í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu sem og enska bikarsins. „Það er sárt þegar maður kemst í úrslitaleik og hefur þennan vilja til að vinna fyrsta titil tímabilsins eftir átta mánaða vinnu, það er alltaf erfitt. Við fengum besta færi leiksins til að komast í 1-0 og þá hefði leikurinn orðið öðruvísi. Þeir áttu tvö skot og skoruðu tvö mörk,“ sagði Arteta. „Þetta voru tveir ólíkir hálfleikir. Fyrri hálfleikurinn var mjög jákvæður á allan hátt, en sá seinni var allt öðruvísi. Maður verður að hrósa andstæðingnum,“ bætti hann við. Ljóst er að Arteta ætlar ekki að láta tapið draga menn of mikið niður. „Við höfum átt frábæra, ótrúlega mánuði saman. Dagurinn í dag er vonbrigði, en það er hluti af fótboltanum. Við verðum að nota baráttuna til að eiga tvo magnaða mánuði í lok tímabilsins.“
Enski boltinn Arsenal FC Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti 42 ára aldursmunur á keppendum í 1500 metra hlaupi kvenna Sport Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira