Hætti við að sækja um hæli og fór frekar heim til Írans Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. mars 2026 08:05 Írönsku fótboltakonurnar sjást hér eftir leik á móti Filippseyjum á Asíumótinu. Getty/Albert Perez Einstaklingur tengdur kvennalandsliði Írans í fótbolta hefur beðið um að fá að snúa aftur til heimalandsins þrátt fyrir að hafa fengið hæli í Ástralíu.
Tony Burke innanríkisráðherra Ástralíu hefur haft í nógu að snúast síðustu daga vegna stöðunnar í kringum íranska landsliðið. Upphaflega höfðu sex leikmenn og einn úr starfsliðinu fengið hæli eftir að hafa keppt á Asíumeistaramótinu í landinu. A member of Iran's women's football team who was granted asylum in Australia has changed her mind and decided to return to Iran.Sky's Nicole Johnston reports.https://t.co/iSfz6fzS3b📺 Sky 501, Virgin 602, Freeview 233 and YouTube pic.twitter.com/6HgFTDv7tT— Sky News (@SkyNews) March 11, 2026 Á miðvikudag fékk Burke þau skilaboð að einn þeirra hefði ákveðið að afsala sér vegabréfsárituninni og snúa aftur til Írans. „Hún hafði talað við nokkra liðsfélaga sína og skipt um skoðun,“ sagði Burke, samkvæmt ABC. Burke greinir enn fremur frá því að staðan hafi skapað nokkur vandamál. Konan hafði nefnilega haft samband við íranska sendiráðið og beðið þá um að sækja sig á hótelið. „Fyrir vikið vissi íranska sendiráðið hvar allir leikmennirnir voru,“ sagði Burke. Members of the Iranian women’s soccer team arrived in Malaysia after Australia granted six players and one staff member humanitarian visas. They had expressed safety concerns about returning to Iran for not singing the national anthem at the Women’s Asian Cup. pic.twitter.com/7lJ1mweTAZ— Al Jazeera English (@AJEnglish) March 11, 2026 Hann gaf fólki sínu strax fyrirmæli um að flytja leikmennina á annan stað. Esmaeil Baqaei, talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, hefur lýst því yfir að leikmönnunum sem snúa aftur til heimalandsins verði tekið opnum örmum. Jafnframt hefur hann gagnrýnt Ástralíu fyrir afskiptasemi og sakar þá um að halda leikmönnunum föngnum gegn vilja þeirra. Nokkrir leikmannanna óttuðust að sögn um líf sitt ef þeir sneru aftur til heimalandsins. Þeir hafa verið stimplaðir sem svikarar í írönskum fjölmiðlum eftir að hafa staðið fyrir þöglum mótmælum fyrir opnunarleikinn gegn Suður-Kóreu á Asíumeistaramótinu. Iran accuses Australia of taking women's soccer team 'hostage' after players claimed asylum https://t.co/VP48H6D51Q pic.twitter.com/UOGe7iyX1a— New York Post (@nypost) March 11, 2026
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Fótbolti Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Sjá meira