Bruce Campbell með ólæknandi krabbamein Magnús Jochum Pálsson skrifar 5. mars 2026 16:16 Bruce Campbell hefur leikið í fjölmörgum B-myndum og hrollvekjum á ferlinum en er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Ash í Evil Dead. Getty Bruce Campbell, sem er þekktastur fyrir leik sinn í Evil Dead-myndunum, hefur greinst með krabbamein. Hann gefur ekki upp hvernig krabbamein hann glímir við og segir það ólæknandi þó hægt sé að halda því í skefjum með lyfjameðferð.
Campbell greindi frá fregnunum fyrr í vikunni og sagðist þar ætla að taka sér veikindaleyfi frá öllum störfum á meðan hann gengst undir krabbameinsmeðferð. „Ég biðst afsökunar ef það er sjokk - það var það fyrir mig líka,“ skrifaði hann í tilkynningu á samfélagsmiðlum sínum. Bruce Campbell hefur háð ófáa baráttuna við skrímsli á skjánum. „Góðu fréttirnar eru, að ég ætla ekki að fara út í frekari smáatriði. Ég birti þetta því hvað starfið varðar munu nokkrir hlutir þurfa að breytast - viðburðir, ráðstefnur og vinna munu fara aftur í forgangsröðunina á kostnað meðferðarinnar,“ sagði hann í tilkynningunni. Sagðist hann ætla sér að verða eins hraustur og mögulegt væri yfir sumarið svo hann gæti kynnt nýjustu mynd sína, Ernie & Emma, í haust en hann skrifar hana, leikstýrir og leikur aðalhlutverkið. Fyrir vikið væru nokkrar ráðstefnur sem hann myndi ekki mæta á. „Ég er ekki að reyna að fiska samúð - eða ráð - ég vildi bara koma þessum upplýsingum út áður en falsfréttir fara að berast (sem þær munu gera). Óttist ekki, ég er harður gamalreyndur tíkarsonur og er með sterkt bakland, svo ég á von á að vera hérna í þónokkurn tíma,“ sagði hann jafnframt. Konungur költmynda og B-hrollvekja Eitt fyrsta hlutverk Campbell var Ash Williams í hrollvekjunni The Evil Dead (1981) í leikstjórn Sam Raimi, vinar Campbell úr menntaskóla. Frábærar viðtökur gagnrýnenda og hrollvekjumeistarans Stephens King urðu til þess að myndin fékk dreifingu í Bandaríkjunum og erlendis, sló í gegn og hefur fest sig í sessi sem költ-klassík. Bruce í hlutverki Ash í Evil Dead II. Campbell lék Ash Williams áfram í gamansamari framhaldsmyndunum Evil Dead II (1987) og Army of Darkness (1992) og sjónvarpsseríunni Ash vs Evil Dead (2015-18). Raimi hélt áfram tryggð við Campbell sem hefur leikið aukahlutverk í flestum mynda leikstjórans. Honum bregður einmitt stuttlega fyrir í Send Help (2026), nýjustu hrollvekju leikstjórans. Campbell hefur leikið í rúmlega 120 kvikmyndum og sjónvarpsþáttum á ferlinum, hann lék í The Hudsucker Proxy (1994) eftir Coen-bræður, lék Elvis í költ-grínhrollvekjunni Bubba Ho-Tep (2002) og burðarhlutverk í sjónarpsþáttunum Burn Notice (2007-13) og hefur einnig talsett vinsælar teiknimyndir.
Bíó og sjónvarp Bandaríkin Krabbamein Hollywood Mest lesið Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Lífið Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Menning Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi Lífið Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Lífið Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Lífið Allir héldu Michelin-stjörnunni Lífið Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Lífið „Mun aldrei geta þakkað henni nógu mikið fyrir“ Tíska og hönnun Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Lífið „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Lífið Fleiri fréttir Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin Ástin sem eftir er sigursælust á Eddunni „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Barátta við fíkn, íslensk millistétt og æðavarp á Skjaldborg Rick og Morty á stóra skjáinn Nítján ára þegar Óskarsverðlaunahafi sýndi henni punginn Dóra og Glassriver náðu samkomulagi Stefnir Cameron fyrir að stela andliti hennar Tvær þáttaraðir og tvær myndir á leiðinni frá Vesturporti Andri Snær verðlaunaður og ný stikla fyrir Um tímann og vatnið Sjá meira