Ólafur og Lúðvík stýra U21-strákunum Sindri Sverrisson skrifar 7. janúar 2026 17:34 Ólafur Kristjánsson tók til starfa hjá KSÍ í haust eftir að hafa síðast stýrt kvennaliði Þróttar. vísir/Diego Knattspyrnusamband Íslands hefur nú fundið arftaka Ólafs Inga Skúlasonar sem hætti með U21-landslið karla til þess að taka við Breiðabliki síðastliðið haust.
Það verða þeir Lúðvík Gunnarsson og Ólafur Helgi Kristjánsson sem taka við liðinu og stýra því út yfirstandandi undankeppni EM sem lýkur í október. Ólafur Helgi var ráðinn inn til KSÍ í haust sem aðstoðarþjálfari A-landsliðs kvenna auk þess sem hann leiðir þróun og stefnumótun yngri landsliða kvenna og sinnir verkefnum tengdum fræðslumálum hjá KSÍ. Lúðvík var aðstoðarþjálfari U21-liðsins. Ólafur Helgi aðstoðaði Lúðvík þegar hann stýrði U21-liðinu í 3-1 sigri gegn Lúxemborg í nóvember, skömmu eftir að Ólafur Ingi hætti, en í tilkynningu KSÍ segir að þeir verði nú saman sem tveir aðalþjálfarar liðsins. Lúðvík Gunnarsson er áfram þjálfari U17-landsliðs karla.Getty/Seb Daly Lúðvík er einnig þjálfari U17 landsliðs karla og hefur KSÍ ákveðið að þar sem verkefni U21 liðsins skarast á við verkefni U17 landsliðs karla í mars þá muni Ómar Ingi Guðmundsson, sem er þjálfari U15 karla og aðstoðarþjálfari U19 karla auk þess að vera yfirmaður hæfileikamótunar, stýra U17 liðinu í fjarveru Lúðvíks í því verkefni. Næstu leikir U21-landsliðsins eru við Eistland á heimavelli 26. mars og við Frakkland á útivelli 30. mars. Liðið lýkur svo undankeppninni með þremur leikjum næsta haust. Frakkland er efst í riðli Íslands með 10 stig eftir 4 leiki. Næst koma Færeyjar með 9 stig eftir 6 leiki en bæði Sviss og Ísland hafa 8 stig eftir 5 leiki. Lúxemborg er svo með 4 stig og Eistland neðst með 2 stig.
Landslið karla í fótbolta KSÍ Mest lesið Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Formúla 1 Trump styður við bakið á Tiger Golf Lét ekki viðbeinsbrot stoppa sig og fagnaði í fatla Fótbolti Í fyrsta sinn á þessari öld sem enginn fellur á lyfjaprófi Sport Dagskráin í dag: Átta liða úrslit FA bikarsins og úrslitakeppnir í körfuboltanum Sport Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Enski boltinn Glódís skallaði sig inn í lið umferðarinnar Fótbolti Tiger var hissa á handtökunni og hringdi í Trump forseta Golf Verða allir með gullmerki til að sýna liðsfélaga sínum stuðning Fótbolti Sindri sópaði Snæfelli en Fjölnismenn héldu sér á lífi gegn KV Körfubolti Fleiri fréttir Einn lést og 47 slösuðust á fótboltaleik í Perú Verða allir með gullmerki til að sýna liðsfélaga sínum stuðning Lét ekki viðbeinsbrot stoppa sig og fagnaði í fatla Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Dembélé með aðra tvennu gegn Toulouse Glódís skallaði sig inn í lið umferðarinnar Ægir Jarl mættur til Fram Mo Salah fékk ráð frá Steven Gerrard Bikarævintýri Davíðs Smára halda áfram Gattuso hættir með sorg í hjarta Diljá flaug á hausinn en skoraði samt Afturelding áfram í sextán liða úrslit bikarsins „Svona er lífið, en allt gerist af ástæðu“ Forsetinn segir af sér og UEFA hótar Ítölum Uppgjörið: Breiðablik - FH 3-1 | Breiðablik meistarar meistaranna Isak gæti spilað á móti Man City um helgina og Salah er heill Draumabyrjun hjá Lindu Líf í atvinnumennskunni Enzo Fernandez verður í agabanni í næstu tveimur leikjum Chelsea Fyrrverandi markakóngur HM lagður inn á sjúkrahús „Ofboðslega stórir skór að fylla“ Besta-spáin 2026: Vilja segja upp áskriftinni Sérfræðingarnir svara: Telja að ungu KR-ingarnir slái í gegn Gæti Guardiola tekið við Ítölum? Mæta meisturum Arsenal eftir sigur í framlengingu Íslenskur sigurvegari á fyrstu leiktíð Evrópubikarsins Niðurlægðu Real og mæta Glódísi Skoruðu í Reykjavík og unnu í Hafnarfirði Vill vera lengi hjá „stórliðinu“ Tottenham Meistarakeppni kvenna í fótbolta aflýst vegna veðurs Flautað af í Árbæ vegna snjókomu Sjá meira