Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. desember 2025 12:03 Ethan McLeod gekk til liðs við unglingaakademíu Wolverhampton Wanderers sjö ára gamall en náði aldrei að spila fyrir aðallið félagsins. Getty/Jack Thomas Ethan McLeod, framherji enska fótboltaliðsins Macclesfield, lést í bílslysi á M1-hraðbrautinni á þriðjudag þegar hann var á leiðinni heim úr fótboltaleik.
McLeod, sem var aðeins 21 árs gamall, var að koma til baka eftir leik liðs síns í norðurdeildinni gegn Bedford Town, þar sem hann hafði verið varamaður. Slysið varð um klukkan 22:40 um kvöldið nálægt Northampton þegar hvít Mercedes-bifreið hans lenti á vegriði. Breska ríkisútvarpið segir frá. Macclesfield lýsti McLeod á miðlum sínum sem „ótrúlega hæfileikaríkum“ og „vel metnum meðlimi“ í leikmannahópi sínum. Í yfirlýsingu frá félaginu sagði: „Fréttirnar af andláti Ethans hafa lagt allt félagið okkar í rúst og engin orð geta lýst þeirri gríðarlegu sorg og missi sem við finnum fyrir núna.“ We are heartbroken by the tragic passing of Ethan McLeod at the age of 21.Ethan joined @WolvesAcademy at seven-years-old and went on to sign professional terms at the club, before leaving in September 2024.We are sending our thoughts and love to Ethan’s family, friends and… pic.twitter.com/5rkirPcM33— Wolves (@Wolves) December 17, 2025 McLeod gekk til liðs við unglingaakademíu Wolverhampton Wanderers sjö ára gamall. Hann lék síðar með U21-liði félagsins í EFL Trophy en kom aldrei við sögu með aðalliðinu. Framherjinn, sem er fæddur í Birmingham, var um tíma á láni hjá Alvechurch í suðurdeildinni, áður en hann lék stuttlega með Rushall Olympic og Stourbridge eftir að hafa yfirgefið Molineux. Hann kom til Macclesfield í júlí eftir vel heppnaðan reynslutíma. Macclesfield lýsti McLeod sem manni með mikinn „lífsþorsta“ og „óbilandi vinnusiðferði“, sem væri innblástur fyrir þá sem voru í kringum hann. Félagið minntist líka á „einstakt bros“ hans og sendi fjölskyldu og vinum leikmannsins samúðarkveðjur. „Djúpu andlegu örin sem andlát Ethans skilur eftir sig munu óneitanlega aldrei gróa – en eitt er víst, og það er að lífleg arfleifð Ethans mun aldrei fölna, sama hversu langur tími líður,“ bætti félagið við. With the heaviest of hearts and an overwhelming sense of surrealism that Macclesfield FC can confirm the passing of 21-year-old forward Ethan McLeod.Travelling back from Bedford Town last night, Ethan was involved in a car accident on the M1 which tragically took his life.… pic.twitter.com/DWpTqVuFzT— Macclesfield FC (C) (@thesilkmen) December 17, 2025
Enski boltinn Mest lesið Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn „Það var ekkert í heiminum að fara breytast“ Sport Völdu kærustu hennar líka númer eitt Körfubolti Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Enski boltinn „Þeir geta tekið þetta með sér“ Fótbolti „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ Fótbolti Real Madrid goðsögn fallin frá Fótbolti Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Fótbolti „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ Handbolti Fleiri fréttir „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Sjá meira