Isak tæpur og Gakpo frá Valur Páll Eiríksson skrifar 12. desember 2025 12:33 Alexander Isak komst á blað í ensku úrvalsdeildinni með Púllurum gegn West Ham á dögunum. Óvíst er hvort hann leiki með liðinu gegn Brighton á morgun. Vísir/Getty Sænski framherjinn Alexander Isak er tæpur fyrir leik Liverpool við Brighton á Anfield í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Cody Gakpo er frá næstu vikur.
Arne Slot greindi frá meiðslastöðunni á blaðamannafundi fyrir leik morgundagsins í dag. Mestar vangaveltur eru um þátttöku Egyptans Mohamed Salah í þessum síðasta leik Liverpool áður en hann heldur á Afríkumótið. Slot gæti hreinlega neyðst vegna meiðslastöðu liðsins til að nýta krafta Salah, en líkt og greint var frá í morgun mun hollenski þjálfarinn funda með Salah um framhaldið í dag. Isak meiddist í leik Liverpool við Inter í vikunni en um smávægileg meiðsli er að ræða. Það er þrátt fyrir það óvíst með þátttöku hans á morgun. Þá eru þeir Cody Gakpo og Wataru Endo frá og munu missa af næstu vikum samkvæmt Slot. Gakpo glímir við vöðvameiðsl en Endo er meiddur á ökkla. Conor Bradley mun ekki spila leikinn við Brighton vegna leikbanns en þá eru þeir Giovanni Leoni og Jeremie Frimpong áfram frá. Leoni spilar ekki meira á leiktíðinni en vonast er til að Frimpong spili fyrir árslok. Federico Chiesa getur tekið þátt á morgun eftir að hafa glímt við veikindi í vikunni, að sögn Slot. Leikur Liverpool og Brighton er klukkan 15:00 á morgun og verður sýndur beint á Sýn Sport 2. Honum verður einnig fylgt eftir í Doc Zone á Sýn Sport.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Bakgarðsáskorunin: „Éta eða vera étinn“ Sport Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sport Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Fótbolti „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti Siggi Raggi saknar barnanna og gefur íslenskum liðum undir fótinn Fótbolti Fleiri fréttir Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ Sjá meira