Trump hótar að taka HM-leiki af Boston Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. október 2025 08:30 Donald Trump Bandaríkjaforseti ásamt forseta FIFA, Gianni Infantino. Þeim er vel til vina. epa/CJ GUNTHER Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað að færa leiki á HM 2026 í fótbolta sem eiga að fara fram í Boston.
Áætlað er að sjö leikir á HM á næsta ári fari fram á Gillette-leikvanginum í Massachusetts, heimavelli New England Patriots í NFL-deildinni. Michelle Wu hefur verið borgarstjóri í Boston síðan 2021 en hún er Demókrati. Trump sagði að hún væri klár en róttæk vinstrikona. „Við gætum tekið leikina af þeim. Ég elska fólkið í Boston og veit að það er uppselt á leikina. En borgarstjórinn ykkar er ekki góður,“ sagði Trump. Hann hefur áður hótað að taka leiki á HM af borgum þar sem Demókratar ráða ríkjum og hann telur ótryggar. Í kjölfar hótana Trumps steig FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandið, fram og sagði að hann hefði enga heimild til að færa leiki á HM. Það væri alfarið í höndum FIFA. Trump gaf sig ekki og sagði að hann myndi einfaldlega heyra í góðvini sínum, Gianni Infantino, forseta FIFA, og hann myndi færa leikina úr ótryggum borgum. „Ef einhver er að vinna slæmt starf og ég tel að öryggi sé ógnað myndi ég hringja í Gianni, hinn frábæra forseta FIFA, og segja við hann: Færum leikina og þeir myndu gera það,“ sagði Trump og bætti við að Infantino yrði kannski ekki í skýjunum með að þurfa að breyta um leikstaði en hann myndi gera það. Fyrr í þessum mánuði meiddust fjórir lögreglumenn í tengslum við mótmæli stuðningsmanna Palestínu í Boston Common-almenningsgarðinum. Heimsmeistaramótið næsta sumar fer fram í Kanada, Bandaríkjunum og Mexíkó. Leikið verður í ellefu borgum í Bandaríkjunum.
HM 2026 í fótbolta Donald Trump Bandaríkin Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Sjá meira