Er hluti af leikmannahópnum þrátt fyrir að vera í fangelsi Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 12. september 2025 07:07 Er í fangelsi en gæti spilað í ensku C-deildinni fyrir jól. Mansfield Town Lucas Akins er hluti af leikmannahóp Mansfield Town í ensku C-deildinni þrátt fyrir að vera í fangelsi fyrir manndráp af gáleysi.
Hinn 36 ára gamli Akins var dæmdur í 14 mánaða fangelsi fyrir að verða valdur að andláti hjólreiðamanns með glannalegum akstri í mars árið 2022. BBC, breska ríkisútvarpið, greinir frá að hann muni að öllum líkindum losna úr haldi eftir að hafa setið inni helming dómsins. Lucas Akins named in Mansfield Town's 21-man squad for EFL season, despite still being in prison https://t.co/th2RxwjMQa— BBC Nottingham Sport (@BBCRNS) September 11, 2025 Það þýðir að Akins gæti spilað fyrir Mansfield Town í ensku C-deildinni fyrir jól þar sem félagið er með hann skráðan í leikmannahóp sinn. Undir lok síðasta tímabils, þegar lið skila inn listum sem innihalda leikmenn sem hafa runnið út á samning, gaf Mansfield út að liðið væri enn að skoða mál Akins. Nú hafa formlegir hópar liðanna verið birtir á heimasíðu EFL og þar er Akins að finna sem leikmann Mansfield. Lucas Akins has been named in #MTFC’s squad list #Stags pic.twitter.com/0djFNgWaJ8— Mansfield Musings (@MTFCMusings) September 10, 2025 „Félagið mun skoða stöðu Lucas þegar honum verður sleppt úr haldi og mun ekki tjá sig frekar að svo stöddu,“ sagði í stuttri yfirlýsingu Mansfield þegar BBC spurðist fyrir um málið. Akins var leikmaður Mansfield árið 2022 þegar hann varð valdur að banaslysi. Hann hélt áfram að spila fyrir félagið á meðan dómsmálinu stóð. Hann byrjaði leik í C-deildinni aðeins klukkustundum eftir að játa sekt sína í réttarsal þann 4. mars síðastliðinn. Þegar dómur var kveðinn upp sagði Nigel Clough, þjálfari félagsins, að niðurstaða dómsins væri „ótrúlegt sjokk“ fyrir alla í félaginu. Akins hefur spilað yfir 150 leiki fyrir Mansfield síðan hann gekk í raðir félagsins í janúar 2022 frá Burton Albion þar sem hann spilaði einnig undir stjórn Clough.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Sjá meira