Suárez dæmdur í sex leikja bann fyrir hrákann Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. september 2025 09:31 Luis Suárez kom sér enn og aftur í klandur á dögunum. epa/CRISTOBAL HERRERA-ULASHKEVICH Luis Suárez, framherji Inter Miami, hefur verið dæmdur í sex leikja bann fyrir að hrækja á starfsmann Seattle Sounders í úrslitaleik deildabikars Norður- og Mið-Ameríku.
Á sunnudaginn tryggði Seattle sér deildabikarinn með því að vinna Inter Miami, 3-0, í úrslitaleik. Eftir að lokaflautið gall lenti leikmönnum liðanna saman og Suárez var í hringiðunni þar. Hann greip í hálsinn á Obed Vargas, leikmanni Seattle, áður en hann hrækti í andlit öryggisstjóra Seattle, Gene Ramirez. Eftir leikinn baðst Suárez baðst afsökunar á framkomu sinni á Instagram. Úrúgvæinn hefur nú verið úrskurðaður í sex leikja bann í deildabikarnum og spilar því væntanlega ekkert í keppninni á næsta ári. Samherjar Suárez, Sergio Busquets og Tomas Aviles, fengu tveggja og þriggja leikja bann fyrir þeirra þátt í ólátunum eftir leikinn. Suárez er ekki óvanur að komast í kast við fótboltalögin. Þegar hann lék með Liverpool fékk hann átta leikja bann fyrir að beita Patrice Evra, þáverandi leikmann Manchester United, kynþáttaníði. Þá hefur hann þrisvar sinnum verið dæmdur í bann fyrir að bíta andstæðing. Suárez, sem er 38 ára, gekk í raðir Inter Miami í fyrra. Hann hefur skorað 38 mörk í 77 leikjum fyrir liðið.
Bandaríski fótboltinn Mest lesið Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Íslenski boltinn McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Fótbolti Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Fleiri fréttir „Leikurinn sýnir að við erum að þróast í rétta átt“ „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Uppgjörið: FH - Valur 2-0 | Gils gerði gæfumuninn í langþráðum sigri FH-liðsins Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Magnaður Sveinn Margeir: „Við eigum fullt inni“ Uppgjörið: KA - ÍA 3-2 | Víti í blálokin og loksins vann KA leik „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Uppgjörið: KR - ÍBV 5-2 | Eyjamenn sáu ekki til sólar í rokinu vestur í bæ Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Segir FIFA skoða að fjölga liðum á HM í 64 Uppgjörið: Fram - Þór 6-1 | Framarar settu upp sýningu Draumabyrjun Freys hjá norska stórveldinu Sjáðu Róbert Frosta tryggja GAIS dísætan sigur „Mikil saga og mikill sársauki“ Sýður á Svisslendingum Haaland eldri hraunar yfir dómarana Argentínsk goðsögn fallin frá FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Sveindís og stöllur unnu toppliðið Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Bellingham sendi sára Norðmenn heim Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Hissa á útspili Haalands „Frakkar eiga að óttast okkur“ Sjá meira