Sagður hafa samið við Real og fá 2,2 milljarða á ári Sindri Sverrisson skrifar 25. mars 2025 07:31 Trent Alexander-Arnold gæti kvatt Liverpool með Englandsmeistaratitli í vor. AFP/Oli Scarff Það virðist endanlega frágengið að bakvörðurinn Trent Alexander-Arnold gangi í raðir Evrópumeistara Real Madrid í sumar þegar samningur hans við Liverpool rennur út.
Vistaskipti Alexander-Arnold hafa lengi legið í loftinu en Sky Sports í Sviss segir að nú sé loks í höfn samkomulag við Real Madrid um samning sem talið sé að sé til fimm ára og taki gildi 1. júlí. Miðillinn segir að Alexander-Arnold fái 15 milljónir evra í árslaun, eða hátt í 2,2 milljarða króna, auk þess sem að hans bíði umtalsverð fjárhæð við undirskrift samningsins – upphæð sem kalla megi kaupverð þó að Real þurfi ekki að borga Liverpool fyrir kappann. Alexander-Arnold, sem er 26 ára, er uppalinn í Liverpool og hefur spilað fyrir liðið allan sinn feril. Sky segir að Liverpool sé með Leverkusen-manninn Jeremie Frimpong í sigtinu sem mögulegan arftaka. Þessi 24 ára hollenski landsliðsmaður hefur spilað í Þýskalandi frá árinu 2021 en ólst upp hjá Manchester City. Arne Slot, stjóri Liverpool og landi Frimpongs, er sagður ætla að ræða við fulltrúa leikmannsins á komandi vikum.
Enski boltinn Spænski boltinn Mest lesið Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Fleiri fréttir Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjá meira