Krefur Disney um tíu milljarða dala Magnús Jochum Pálsson skrifar 14. janúar 2025 15:18 Teiknarinn Buck Woodall vill meina að persónan Moana og saga hennar byggi á verki hans. Disney Teiknarinn Buck Woodall segir Disney hafa stolið hugmyndum úr verkum hans og notað í tveimur teiknimyndum. Woodall óskar eftir skaðabótum upp á tíu milljarða Bandaríkjadala eða 2,5 prósentum af tekjum Moana.
Hollywood Reporter greinir frá. Woodall höfðaði málsókn fyrir alríkisdómstóli í Kaliforníu á föstudag og sagði Disney hafa tekið þætti úr handrit sem hann skrifaði fyrir teiknimyndina „Bucky“ snemma á fyrsta áratug þessarar aldar. Myndirnar Moana (2016) og Vaiana 2 (2024) hafi tekið fléttupunkta (e. plot points) óbreytta úr handriti hans að myndinni sem kom aldrei út. Bæði „Bucky“ og Moana eiga sér stað í fornu pólýnesísku þorpi og fjalla um táninga sem ögra foreldrum sínum með því að fara í hættulega sjávarför til að bjarga heimilum sínum og kynnast öndum í formi dýra á leiðinni. Disney hefur svarað lögsókninni með yfirlýsingu frá leikstjóranum Ron Clement, sem leikstýrði Móönu. Hann sagði engan þeirra sem vann við gerð myndarinnar hafa séð gögn Woodall. Þá hefur Disney einnig birt gögn frá framleiðslu myndarinnar, söguhugmyndir, handritavinnu og ýmislegt annað. Moana fjallar um hina pólýnesísku Móönu sem kynnist hálfguðinum Maui og heldur í ferðalag yfir hafið.Disney Töluverð líkindi milli handritanna Woodall segist hafa skrifað handrit og búið til stiklu fyrir „Bucky“ handa Jenny Marchick, fyrverandi þróunarstjóra Mandeville Films og núverandi kvikmyndaþróunarstjóra hjá DreamWorks. Hún hafi óskað eftir frekara efni, karakteraskissum, framleiðsluplönum og söguborðum (e. story boards) og fullvissað Woodall um hún gæti gefið myndinni grænt ljós. Samkvæmt kærunni hafi Mandeville verið með svokallaðan „first-look“-samning við Disney, eins konar forkaupsrétt, á þessum tíma og verið með skrifstofur sínar í höfuðstöðvum Disney í Burbank í Kaliforníu. Höfuðstöðvar Walt Disney í Burbank þar sem Mandeville Films voru til húsa. Líkindin milli Móönu og „Bucky“ eru töluverð. Til að mynda tengist stórt endurtekið þema í báðum myndum pólýnesíska trúin á að forfeður geti tekið sér bólfestu í dýrum. Þá hefst ferðalag beggja söguhetja þegar þær hitta fyrir skjaldbaka, innihalda söguhetju sem rekst á húðflúraðan hálfguð með risastóran öngul og risaveru sem er falin inni í fjalli. Kæran lýsir líka meintum líkindum milli Bucky og framhaldsmyndarinnar Móönu 2 (sem heitir Vaiana 2 í Evrópu) sem kom út á síðasta ári. Til að mynda sogast Moana og áhöfn hennar inn í hringiðulega gátt í hafinu. Slíkt sé svo áþekkt myndefni stefnanda að það „gæti ekki mögulega hafa verið þróað af tilviljun eða án meinfýsins ásetnings“. Í kærunni segir að Móana hafa verið framleidd í kjölfar þess að Woodall færði verjana nærri öll nauðsynleg gögn sem þurfti til að þróa og framleiða myndina eftir að hann hafði varið meira en sautján árum í að þróa sitt eigið verk. Var of seinn í fyrra skiptið Woodall hefur áður reynt að lögsækja Disney vegna málsins en dómarinn Consuelo Marshall sagði í nóvember á síðasta ári að hann væri of seinn til vegna fyrningarlaga. Útgáfu framhaldsmyndarinnar, sem hefur þegar halað inn tæplega milljarði Bandaríkjadala, í fyrra gerði Woodall kleift að reyna aftur að lögsækja Disney. Í úrskurði Marshall í nóvemer kom fram að einstaklingur hjá Disney Animation TV gæti hafa séð höfundarréttarvarin gögn úr „Bucky“ áður en framleiðsla á Móönu hófst árið 2011.
Bíó og sjónvarp Höfundar- og hugverkaréttur Hollywood Disney Mest lesið Scary Movie-stjarna látin Lífið Víkingar fengu son í jólagjöf Lífið Stjörnulífið: „Ekkert nýársheit í ár því það sem ég er að gera virkar greinilega“ Lífið Fannst látinn á fjöllum degi eftir afmælisdaginn Lífið Kraftaverkaaðgerð batt enda á fimm ár af sársauka Lífið Játaði ást sína á Jenner Bíó og sjónvarp Eldgosið sem lýsti upp næturhiminninn og lamaði Evrópu Lífið Óútskýrð ráðgáta í Havana endurvakti fjandskap Kúbu og Bandaríkjanna Lífið Nyrsta barn ársins fæddist fyrsta dag ársins Lífið Óttast að kvikmyndahús endi eins og djassklúbbar Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Óttast að kvikmyndahús endi eins og djassklúbbar Játaði ást sína á Jenner Marvel-stjarna varð fyrir heilaskaða Enduðu Stranger Things í Þjórsárdal Fyrsta stiklan úr Íslandsstórvirki Nolan mætt á netið Wire-stjarna látin langt fyrir aldur fram Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2025 Framhald af Napóleonsskjölunum í vinnslu Enginn Óskar til Íslands 2026 Bestu myndir Robs Reiner Dick van Dyke á hundrað ára afmæli Pulp Fiction leikarinn Peter Greene látinn Frumsýning á Vísi: „Sýna fólki hver Bubbi er í raun og veru“ Nágrannar kveðja endanlega í dag Lawrence og Hutcherson snúa aftur í Hungurleikana Ósáttur við framhaldið: „Skildu ekki hvað gerði þá fyrstu sérstaka“ „Það er hægt að búa til alvöru hasarmyndir á Íslandi“ Yrsa, Hannes og Björg í eina sæng með Thule Sjá meira