Hélt tryllt tónlistarteiti og eignaðist svo tvíbura Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 9. desember 2024 14:03 Egill Breki og Sævar Breki mynda dúóið NUSSUN. Aron Gestsson Það hefur margt á daga Sævars Breka drifið en hann myndar tvíeykið NUSSUN ásamt Agli Breka. Þeir stóðu fyrir stórum útgáfutónleikum í síðustu viku þar sem þeir gáfu út stuttmynd og tónlistarmyndband og á föstudag eignuðust Sævar Breki og unnusta hans Guðrún Lóa svo tvíbura.
Blaðamaður náði tali af Sævari þar sem hann var staddur á fæðingardeildinni og eru nýbökuðu foreldrarnir í skýjunum með frumburðina tvo. View this post on Instagram A post shared by Sævar Breki Einarsson (@saevarbreki) Fegurð skemmtanalífsins Sævar og Egill Breki Scheving stofnuðu sveitina NUSSUN í fyrra og gáfu út eitt lag áður en þeir ákváðu að vinna með góðvini þeirra Andra Fannari sem er betur þekktur sem HÚGÓ. „Við heyrðum í pródúsernum Þormóði Eiríkssyni með það markmið að semja plötu sem herjar á fegurðina við skemmtanalífið, gleði og ást. Úr því varð platan Dansa fram á nótt, pródúseruð af Þormóði, sem við syngjum allir inn á. Platan datt í milljón spilanir í nóvember og fannst okkur gráupplagt að fagna því með stuttmynd og gefa út tónlistarmyndband sem hefur verið í vinnslu í hálft ár,“ segir Sævar. Hér má sjá tónlistarmyndbandið við lagið Hvað með þig, sem er jafn framt mest spilaða lag strákanna: Klippa: NUSSUN ft. HÚGÓ - Hvað með þig? „Stuttmyndin er tekin upp og klippt af Rúnari Inga Guðmundssyni sem hefur fylgt okkur á flest af okkar stærstu giggum hérlendis og var þetta eins konar bak við tjöldin mynd og áður óséð efni frá okkur, sem ratar venjulega ekki á miðla. Við sýndum myndina fyrst á Ísafirði fyrir tveimur vikum síðan við góðar undirtektir, þar sem Húgó og Þormóður koma báðir frá Ísafirði, og endurtókum við svo leikinn á Bullseye fyrir helgi. Um 200 manns mættu og stemningin var yndisleg.“ Það var mikil stemning í frumsýningarteitinu.Aron Gestsson Pressan stundum krefjandi Hann segir að myndbandið hafi mest megnis verið tekið upp í vor og það hafi tekið sinn tíma að fullkomna það. „Það er nú fyrsta íslenska tónlistamyndbandið sem frumsýnt er á Spotify.“ Sævar og Egill þrífast vel í tónlistarbransanum. „Það skemmtilegasta við tónlistina er að heyra og sjá hvað öðrum þykir hún skemmtileg og hvað hún getur haft mikil áhrif á daglegt líf fólks.“ Sömuleiðis eru krefjandi hliðar bransans óumflýjanlegar. „Þessu fylgir mikil pressa sem getur verið krefjandi en maður þarf bara að líta inn á við, muna af hverju maður er að þessu og sama hvað bjátar á þá er maður alltaf með gott fólk í hverju horni.“ Andri Fannar eða HÚGÓ tróð upp með strákunum.Aron Gestsson Þormóður gjörbreytti öllu Andri Fannar eða HÚGÓ er einn af bestu vinum Sævars og Egils til margra ára. „Því var það svo sjálfsagt að fara starfa saman, sem var mikið stökk fyrir okkur Egil enda nýir í tónlistarsenunni. Með þessu samstarfi kom Þormóður Eiríksson inn í líf okkar sem gjörbreytti öllu og getum við þrír vart komið okkar þakklæti í hans garð í orð.“ Þormóður, fyrir miðju, er í miklu uppáhaldi hjá strákunum.Aron Gestsson Strákarnir sýndu sömuleiðis stuttmynd á risa skjávarpa í teitinu sem þeir lýsa sem hrárri, einlægri og skemmtilegri. „Það er óljóst hvort hún muni nokkurn tímann líta dagsins ljós. Innblásturinn fyrir tónlistarmyndbandið er svo hugarvinna okkar allra sem komum að því að semja lagið, takturinn í því, leikur að orðum og fraseringum auk innblásturs frá stærri tónlistarmönnum.“ Hér má hlusta á NUSSUN á streymisveitunni Spotify.
Tónlist Samkvæmislífið Barnalán Mest lesið „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Lífið Fegurðardrottning drepin eða einhver myrtur á hjólhýsasvæðinu Áskorun Sheeran bað aðdáendur afsökunar Tónlist Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn Lífið „Maður getur varla beðið um meira“ Lífið „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Lífið Örvar og María Elísabet nýtt listapar Lífið Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Lífið Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Lífið Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi Lífið Fleiri fréttir Sheeran bað aðdáendur afsökunar „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð „Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Lifa í draumi og heiðra Eyfa Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Highway 61 Revisited fagnar 61 árs afmæli Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Myndaveisla: Leynigestir og innlifun á stórafmælistónleikunum Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Gestafjöldi fjórfaldaðist á Kveldúlfi Kanye treður upp í Rússlandi Hip-hop sveitin Tha Alkaholiks í Iðnó í október Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Sjá meira