Fiorentina aftur í úr­­slit Sam­bands­deildarinnar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lucas Beltran fagnar markinu sem kom Fiorentina í úrslitaleik Sambandsdeildar Evrópu.
Lucas Beltran fagnar markinu sem kom Fiorentina í úrslitaleik Sambandsdeildar Evrópu. getty/Fantasista

Fiorentina gerði 1-1 jafntefli við Club Brugge í seinni leik liðanna í undanúrslitum Sambandsdeildarinnar í kvöld. Ítalarnir unnu fyrri leikinn, 3-2, og einvígið, 4-3 samanlagt.

Hans Vanaken kom Club Brugge yfir á 20. mínútu og jafnaði þar með metin í einvíginu, 3-3 samanlagt.

Allt stefndi í framlengingu en Argentínumaðurinn Lucas Beltran sá til þess að Fiorentina færi í úrslitaleikinn þegar hann skoraði úr vítaspyrnu fimm mínútum fyrir leikslok.

Í úrslitaleiknum í Aþenu 29. maí mætir Fiorentina annað hvort Olympiacos eða Aston Villa. Grikkirnir unnu fyrri leikinn, 2-4. Seinni leikurinn fer fram annað kvöld.

Fiorentina komst sem áður sagði í úrslit Sambandsdeildarinnar í fyrra en tapaði þá fyrir West Ham United, 2-1.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira