Íslenski boltinn

Valur sýndi Berg­lindi meiri á­huga en Breiða­blik

Aron Guðmundsson skrifar
Berglind Björg Þorvaldsdóttir samdi við Bestu deildar lið Vals á dögunum
Berglind Björg Þorvaldsdóttir samdi við Bestu deildar lið Vals á dögunum Vísir/Arnar Halldórsson

Berg­lind Björg Þor­valds­dóttir samdi við Bestu deildar lið Vals á dögunum og iðar í skinninu yfir því að snúa aftur inn á völlinn eftir barns­burð. Hún stefnir á titla sem og endur­komu í lands­liðið. Eftir að hafa raðað inn mörkum fyrir Breiða­blik á sínum tíma er Berg­lind mætt á Hlíðar­enda. Valur sýndi henni ein­fald­lega meiri á­huga en Breiða­blik.

Berglind, sem á að baki 190 leiki og 137 mörk í efstu deild hér á landi, er nú mætt á nýjan leik á klakann eftir feril úti í atvinnumennsku. Hún átti sitt fyrsta barn í desmbermánuði á síðasta ári og nálgast nú þann tímapunkt að geta snúið aftur inn á völlinn í keppnisleik.

„Ég er bara gríðarlega spennt fyrir því að vera komin aftur heim og spila í Bestu deildinni. Staðan er bara fín. Það hefur gengið vel að æfa og ekkert bakslag komið upp. Vonandi, bara á næstu vikum, verð ég komin aftur inn á völlinn.“

Ertu farin að pota í öxlina á Pétri þjálfara og segja honum að fara spila þér?

„Já ég er ábyggilega strax orðin mjög pirrandi. Nei nei. Þetta bara tekur sinn tíma, að koma sér aftur í stand eftir meðgöngu. En þetta er klárlega á réttri leið.“

Berglind hefur áður greint frá því að fundur hennar með Pétri Péturssyni, þjálfara Vals og Ásgerði Stefaníu, aðstoðarþjálfara, hafi selt henni hugmyndina að fullu. Að ganga til liðs við Val. 

„Það eru spennandi tímar hérna hjá Val. Félagið hefur háleit markmið. Sækja báða titla og komast langt í Meistaradeildinni. Metnaðurinn er mikill og liðið hefur yfir að skipa frábærum leikmannahópi. Ég er bara mjög ánægð með þetta skref.

Hún hefur nú oftast verið kennd við Breiðablik og raðaði inn mörkum fyrir liðið áður en hún hélt út árið 2020. Kom það aldrei til greina að snúa aftur í Kópavoginn?

„Jú það var klárlega möguleiki. Við vorum í samskiptum en það var meiri áhugi frá Val.“

Þessi öflugi framherji á að baki 72-A landsleiki fyrir Íslands hönd og stefnan er að bæta við þann leikjafjölda.

„Já það er klárlega markmiðið. Gulrótin að baki þessu öllu. Það væri frábært að komast aftur í íslenska landsliðið. Ég mun reyna allt sem ég get til þess að láta það verða að veruleika. 

Berglind Björg Þorvaldsdóttir fagnar marki fyrir íslenska landsliðið VÍSIR/VILHELM

Berglind hefur yfir að skipa ferli í atvinnumennsku erlendis með liðum á borð við PSG, PSV, AC Milan, Le Havre og Hammarby. Er það stefnan að snúa aftur út á einhverjum tímapunkti?

„Maður lokar aldrei fyrir þessar dyr. Það yrði þá að vera eitthvað gríðarlega spennandi verkefni og yrði að vera þess virði. Maður er náttúrulega orðin fjölskyldumanneskja núna. Þarf að hugsa um eitthvað meira en bara sjálfa sig. Það bara kemur í ljós en er ekki planið eins og er




Fleiri fréttir

Sjá meira


×