Enski boltinn

Nær allir leik­menn Man Utd til sölu fyrir rétt verð

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Það má reikna með breytingum á leikmannahóp Man United í sumar.
Það má reikna með breytingum á leikmannahóp Man United í sumar. Catherine Ivill/Getty Images

Flestir af stærstu fjölmiðlum Bretlandseyja hafa staðfest að enska knattspyrnufélagið Manchester United sé tilbúið að hlusta á tilboð í nærri alla leikmenn liðsins, þar á meðal Marcus Rashford.

Frá þessu greina fjölmiðlar á borð við The Athletic, The Telegraph og fleiri. Þar segir að þó Man United stefni ekki á að selja hinn 26 ára gamla Rashford þá sé það tilbúið að hlusta ef nægilega góð tilboð berast.

Rashford hefur átt erfitt uppdráttar á leiktíðinni líkt og svo margir aðrir leikmenn liðsins. Hann skrifaði hins vegar undir nýjan fimm ára samning síðasta sumar og er samningsbundinn félaginu til 2028.

Í frétt The Telegraph kemur fram að allir leikmenn liðsins séu falir fyrir rétt verð ef frá eru taldir hinir ungu og efnilegu Kobbie Mainoo, Alejandro Garnacho og danski framherjinn Rasmus Højlund.

Það var vitað að þetta yrði sumar mikilla breytinga á Old Trafford en nú þegar hafa orðið gríðarlega breytingar á skrifstofu félagsins síðan Sir Jim Ratcliffe varð minnihluta eigandi í Man United.

Það stefnir í að svipaðar breytingar verði á leikmannahóp félagsins og ljóst að leikmenn eru að spila upp á framtíð sína það sem eftir lifir tímabils.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×