Lífið

Álfa- og jólahúsið í Laugar­dalnum heyrir sögunni til

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Vísir heimsótti Birnu í aðdraganda jóla árið 2017
Vísir heimsótti Birnu í aðdraganda jóla árið 2017 Vísir/Egill

Birna Sigmundsdóttir hefur komið upp miklu jólaþorpi í garði sínum að Dragavegi fimm í Laugardalnum ár hvert í fimmtán ár. Nú standa yfir nágrannaerjur við fólk á efri hæðinni sem vill ekkert með skreytingarnar hafa. Birna hefur yfirleitt skreytt garðinn með álfastyttum í stað jólakrauts á sumrin.

Birna birti pistil á Facebook-síðunni Langholtshverfi - 104, þar sem hún sagði að nú væri komin upp sú staða að hún megi ekki vera með neitt skraut í garðinum. Hún segir garðinn vera sameign hennar og efri hæðarinnar, en nágrannar hennar hafi aldrei verið með vesen fyrr en fyrir tveimur árum. Þá hafi hún fengið nýja nágranna sem hún segir vera „illt í frekjunni.“ 

Hún þurfi nú að fjarlægja allt skraut úr garðinum. Færslan fékk mikla athygli en þegar þetta er skrifað hefur hún fengið 186 viðbrögð og 34 athugasemdir. Athugasemdirnar eru margar á þá leið að mikil eftirsjá verði af garðinum sem lengi hafi vakið upp mikla ánægju meðal íbúa Laugardals. 

Aðrar athugasemdir benda kurteisislega á það að tvær hliðar séu á öllum málum.

Vísir heimsótti Birnu árið 2014.

Lögreglan kölluð til vegna deilnanna

Það hefur gengið á ýmsu frá því deilurnar hófust fyrir um tveimur árum síðan, en Birna segir að nágrannar hennar hafi margsinnis fjarlægt allt skraut úr garðinum. Birna hefur þá yfirleitt hringt á lögregluna og tilkynnt þjófnað. 

Birna segir að garðurinn sé óskipt sameign, sem hún hafi alfarið séð um síðastliðin fimmtán ár. Nágrannar hennar fyrir fimmtán árum fólu henni það verkefni. Nú sé öldin önnur og nágrannar hennar krefjast þess að hún taki skrautið niður.

Birna hefur yfirleitt fyllt garðinn af álfastyttum og öðru slíku á sumrin.Vísir/GVA

Birna hefur ekki aðeins hringt á lögregluna vegna horfinna skreytinga, en lögreglan hefur verið kölluð til vegna deilna um eftirlitsmyndavélar á dyrabjöllum. Birna segir söguna þannig að nágrannar hennar hafi nýverið sett upp eftirlitsmyndavél fyrir framan hurð sína sem taki upp allan daginn og visti upptökuna á einhverju skýi í ákveðinn tíma. 

Birnu leist mjög illa á þetta og tók myndavélina niður. Þetta hafi vakið mikla reiði hjá nágrönnunum sem fóru að banka fast og sparka í hurðina þannig að hún brotnaði. Birna hringdi þá á lögregluna.

Nágrannar Birnu á efri hæðinni vildu ekkert tjá sig um málið við fréttastofu þegar eftir því var leitað.

Fréttastofa heimsótti Birnu árið 2017:


Tengdar fréttir

Skreytir til að gleðja

Fallega skreytt hús við Laugardal hefur vakið mikla athygli og dæmi eru um að rútur séu farnar að stöðva þar með farþega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×