Frakkinn Phillippe Jean-Mateta skoraði bæði mörk Palace í sigri kvöldsins á Selhurst Park. Þar með fylgir liðið eftir 5-2 sigri á West Ham um helgina og 1-0 sigri á Liverpool helgina á undan.
Bournemouth vann þá 1-0 útisigur á Wolves þar sem Antoine Semenyo skoraði eina mark leiksins.
Everton vann þá 2-0 sigur á Liverpool-liði sem er heillum horfið og Manchester United vann seiglusigur, 4-2, á botnliði Sheffield United.