Meistaradeildardraumur Roma lifir góðu lífi

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Gianluca Mancini og Paulo Dybala fagna marki þess fyrrnefnda.
Gianluca Mancini og Paulo Dybala fagna marki þess fyrrnefnda. Paolo Bruno/Getty Images

Roma vann mikilvægan 1-0 sigur er liðið tók á móti Lazio í Rómar-slagnum í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Roma og Lazio eru bæði í harðri Evrópubaráttu þar sem Roma er að eltast við Meistaradeildarsæti, en Lazio heldur enn í vonina um að komast í Evrópu- eða Sambandsdeildina.

Það var Gianluca Mancini sem skoraði eina mark leiksins er hann kom Roma yfir á 42. mínútu eftir stoðsendingu frá Paulo Dybala og tryggði heimamönnum sigurinn.

Roma situr enn í fimmta sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar, nú með 55 stig eftir 31 leik, tveimur stigum á eftir Bologna sem situr í síðasta Meistaradeildarsætinu. Lazio situr hins vegar í sjöunda sæti með 46 stig, fjórum stigum á eftir Atalanta í baráttunni um sæti í Sambandsdeildinni, en Atalanta á tvo leiki til góða.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira