Fótbolti

„Smá heppni með okkur og góður karakter“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Guðlaugur Victor Pálsson stóð sína vakt vel í hægri bakverðinum í kvöld.
Guðlaugur Victor Pálsson stóð sína vakt vel í hægri bakverðinum í kvöld. David Balogh - UEFA/UEFA via Getty Images

Guðlaugur Victor Pálsson, leikmaður íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, var eðlilega stoltur af liðinu eftir magnaðan 4-1 sigur gegn Ísrael í kvöld. Með sigrinum er Ísland nú aðeins einum sigri frá sæti á EM í sumar.

Íslenska liðið sýndi mikinn karakter að snúa leiknum við eftir að hafa lent undir eftir tæplega hálftíma leik, en Ísrael skoraði fyrsta mark leiksins úr vítaspyrnu stuttu eftir að íslenska liðið hafði klikkað á algjöru dauðafæri.

„Við byrjum náttúrulega bara leikinn illa. Svo fengum við þetta dauðafæri en við áttum það ekkert skilið,“ sagði Guðlaugur Victor í viðtali eftir leik.

„Við vorum ekki góðir á bolta eða án bolta, en við náðum að svara fyrir okkur með frábæru aukaspyrnumarki og svo eftir annað fast leikatriði. Svo förum við bara inn í hálfleikinn og ræðum aðeins málin. Það var auðvitað smá heppni með í þessu í dag þegar þeir klúðra víti, en þetta var frábær karakter.“

Þá segir Guðlaugur að íslensku strákarnir hafi oft og tíðum sýnt það í leik kvöldsins að þeir eru með betra fótboltalið en Ísraelarnir.

„Við sýndum það vel seinni hluta fyrri hálfleiks. Við sýndum það kannski ekkert mikið í seinni hálfleik, en síðustu 10-15 mínúturnar í seinni hálfleik vorum við með miklu betri stjórn og vorum að spila boltanum meira. Eitthvað sem við hefðum átt að gera miklu fyrr. Við breyttum aðeins taktíkinni okkar og sköpuðum okkur aðeins meira pláss.“ 

„En heilt yfir voru mörkin okkar úr föstum leikatriðum eftir góðan kafla í enda fyrri hálfleiks. Það er fullt af hlutum sem við þurfum að laga eftir þennan leik, alveg fullt, og eins og ég segi var líka heppni með okkur. En þetta var góður karakter og við börðumst vel. Við vorum að djöflast og reyndum að fara í öll þessi einvígi. Þeir voru ekkert lélegir og voru bara flottir þegar kom að því að vera með boltann. Þeir voru að fylla vængsvæðin og gerðu okkur erfitt fyrir. En eins og ég segi þá var smá heppni með okkur og góður karakter sem við tökum með okkur. Við tökum þennan sigur og við fengum frábærar einstaklingsframmistöður hér í kvöld. Nú er það bara Úkraína.“

Að lokum var Guðlaugur beðinn um að lýsa frammistöðu Alberts Guðmundssonar, sem skoraði þrennu í leik kvöldsins. Hann bauð upp á stutt og laggott svar.

„Bara stórkostlegur,“ sagði Guðlaugur einfaldlega að lokum.

Klippa: Guðlaugur Victor eftir Ísraelsleikinn

Leikur Úkraínu og Íslands verður sýndur í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport þriðjudaginn 21. mars. Leikurinn hefst klukkan 19.45 en upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 19.10.


Tengdar fréttir

„Auð­velt að hlaupa vitandi af honum“

Guðmundur Þórarinsson átti góðan leik í vinstri bakverðinum hjá íslenska liðinu í sigrinum á Ísrael í dag. Hann sagðist hafa hugsað að Eran Zahavi myndi klúðra áður en hann tók seinni vítaspyrnu Ísraela í leiknum.

Samfélagsmiðlar yfir leiknum: Ísland fer á EM

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætti því ísraelska í undanúrslitum umspilsins um laust sæti á EM sem fram fer í Þýskalandi nú í sumar. Eins og svo oft áður voru Íslendingar virkir á samfélagsmiðlinum X, áður Twitter, á meðan leik stóð.

Sverrir Ingi: Heppnin með okkur og við ætlum á Evrópumótið

Ísland vann 4-1 í umspilsleik gegn Ísrael um sæti á Evrópumótinu í sumar. Sverrir Ingi, fyrirliði liðsins, sagði heppnina hafa verið með liðinu en var afar ánægður með karakterinn sem liðið sýndi og kvaðst fullur sjálfstrausts fyrir úrslitaleikinn gegn Úkraínu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×